24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3061 í B-deild Alþingistíðinda. (3190)

377. mál, greiðslufrestur á tollum

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Úr því að farið er að orðlengja svo mjög um forsögu þessa máls þykir mér við hæfi að það komi alveg skýrt fram hver gangur málsins hefur verið. Það er rétt sem hér hefur komið fram, að það er í tíð ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar, hv. núv. 1. þm. Reykv., að nefndarálitið, sem hér er um rætt, verður til. Því er skilað í ágústmánuði 1978. Kannske hefði ekki verið fráleitt að nál. hefði þá verið útbýtt til þm. og það kynnt fyrir þeim. En það var ekki gert í valdatíð ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar.

Sú stjórn, sem þá tók við, tók málið ekki upp, og ég vil upplýsa það hér, að mér var ekki kunnugt um þetta nefndarálit fyrr en ég kom í fjmrn. veturinn 1980. Nú spyr ég, úr því að mönnum lá svo mjög á að koma þessu máli fram og eru nú með þungar ásakanir í minn garð vegna þess að ég skuli ekki hafa komið málinu fram, hvernig stóð þá á því að þessir ágætu hv. þm. Sjálfstfl. fluttu ekki málið hér á Alþingi veturinn 1978–1979? Þeir virtust ekki vita frekar en ég að þetta mál væri til þann vetur. Það er ekki fyrr en á s. l. vetri að málið er flutt. (Geir H: Það átti að gefa viðtakandi ríkisstj. tækifæri til þess að flytja málið.) Ja, menn gátu vissulega sýnt áhuga sinn í verki úr því að sú ríkisstj. bar ekki málið strax fram. Mér kemur á óvart ef það er rétt, sem hér er upplýst, að þessi bók, sem inniheldur nefndarálitið, hafi ekki náð til þm. Ég held að það sé fyllilega tímabært að svo verði hið fyrsta.

En sem sagt, ég held að forsaga þessa máls, sem er nú áreiðanlega orðin eins áratugs löng, og ýmislegt það, sem komið hefur fram jafnvel hjá þeim mönnum sem stóðu að nefndarálitinu, eins og tollstjóranum í Reykjavík, sýni og sanni að málið er alls ekki einfalt og það þarf bersýnilega að gera talsverða úttekt á ýmsum hliðum þess áður en hægt er að koma því í framkvæmd. Það hefur greinilega vafist fyrir fleirum en mér og það hefur greinilega vafist fyrir fleiri ríkisstjórnum en þeirri, sem nú situr, að koma málinu fram.

Ég ætla að vonast til að það sé eins mikil hreyfing á málinu núna og hér hefur verið gerð grein fyrir svo að hægt sé að ljúka því hið fyrsta. Ég tel að það samstarf, sem hefur tekist, m. a. fyrir forgöngu hv. þm. Alberts Guðmundssonar, milli fjmrn., tollstjórans í Reykjavík og Verslunarráðsins, sem hefur sent okkur ýmsar gagnlegar upplýsingar um þetta mál, verði til þess að hægt sé að koma málinu í framkvæmanlegt horf innan tíðar.