25.03.1981
Efri deild: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3074 í B-deild Alþingistíðinda. (3209)

238. mál, aldurslagatryggingar fiskiskipa

Flm. (Kjartan Jóhannsson):

Herra forseti. Það frv. til laga, sem ég mæli hér fyrir fyrir hönd okkar þriggja flm., er hið síðasta af fjórum lagafrv. sem við þm. Alþfl. flytjum hér í þessari hv. deild fyrir hönd flokks okkar. Hin frv. fjölluðu um afnám ríkisstjórnarheimildar til sjálfskuldarábyrgðar vegna skuttogarakaupa, í annan stað um stofnun greiðslutryggingarsjóðs til að jafna afla og auka samræmi milli veiða og vinnslu og hið þriðja um hagkvæmni og stærð í endurnýjun skipastólsins.

Í þessum frumvörpum fjórum samanlögðum felst stefnumörkun í veigamiklum þætti sjávarútvegsmála, þ. e. í skipastólsmálum, en þau ráða í raun og sannleika mjög miklu um það, hvernig okkur vegnar í þessari atvinnugrein í framtíðinni.

Við flm. höfum valið þann kost að setja stefnuna fram í lagaformi, því að þannig er hún frá gengin skýr og klár eins og Alþingi sæmir að ganga frá henni, jafnframt því að verða með þeim hætti sá fasti rammi sem framkvæmdavaldinu ber að starfa eftir. Vitaskuld hefði verið hampaminna að setja stefnuna fram í formi þál. Slík meðferð hefur þó þann annmarka, að af slíkri samþykkt er framkvæmdavaldið ekki bundið og því allt í óvissu um hvort einhverju hefði verið áorkað. Reynslan kennir okkur líka að framkvæmdavaldið er harla ístöðulaust og því ekki vanþörf á lagafyrirmælum.

Ég get ekki látið hjá líða að ítreka fáein grundvallaratriði í þessu sambandi.

1. Einungis með markvissri heildarstjórn verður frambúðarafrakstur af auðlindum hafsins tryggður.

2. Hver einstakur útgerðaraðili sækist vitaskuld eftir sem mestu í sinn hlut og hefur því m. a. tilhneigingu til að vilja auka sóknarmátt sinn eða skipa sinna, þótt það verði einungis á kostnað annarra þegar fiskimiðin eru þegar fullnýtt. Þess vegna, einmitt af þessum orsökum verða stjórnvöld að takmarka heildarsókn og þar með fjárfestingu í nýjum skipum.

3. Of stór fiskiskipastóll þýðir aukna skömmtun, minna í hvern hlut og verri afkomu fyrir sjómenn, útgerð og þjóðina í heild.

4. Það skömmtunarkerfi í fiskveiðum, sem nú er beitt, er til sannindamarks um það, að fiskiskipastóllinn er of stór miðað við afrakstursgetu fiskstofnanna.

5. Til að takmarka stærð fiskiskipastólsins og draga úr henni er það helst til ráða, nærtækast ráða að sjá til þess að viðbætur á hverjum tíma verði minni en brottfall úr flotanum.

Í frv. okkar Alþfl.-manna um hagkvæmni í stærð og endurnýjun skipastólsins eru sett þau takmörk á endurnýjun og viðbætur, að þau megi ekki fara fram úr helmingi brottfalls á hverjum tíma næstu fimm árin. Í því frv., sem ég mæli nú fyrir, eru gerðar ráðstafanir til að auka möguleika á brottfalli og skapa þannig svigrúm til endurnýjunar umfram það sem ella væri. Samkv. frv. er gert ráð fyrir að hluti útflutningsgjalds til úreldingarstyrkja hækki úr 3% í 5% af útflutningsgjaldi, en hluti Fiskveiðasjóðs minnki að sama skapi. Enn fremur er Fiskveiðasjóði gert að greiða 20% af framlagi ríkisins til sjóðsins til aukningar á úreldingarstyrkjum.

Í grg. með frv. er þetta rökstutt nánar með svofelldum hætti. Þar segir:

„Ríkjandi hömlur á fiskveiðum, svo sem takmarkanir á þorskveiðum togara og báta og loðnuveiðum bátaflotans, eru til marks um að sóknargeta fiskiskipaflotans er meiri en svarar til afrakstursgetu fiskstofnanna eins og sakir standa. Augljóslega er dýrt og óhagkvæmt að standa undir rekstri á stærri flota en fiskstofnarnir þola. Á hinn bóginn verður að skapa svigrúm til endurnýjunar, einkanlega á bátaflotanum. Sú leið er nærtækust til þess að draga úr stærð flotans jafnframt því að endurnýjun eigi sér stað að sjá til þess, að meiri sóknarþungi hverfi úr rekstri en það sem við bætist í endurnýjun.

Mörg úrelt og óhagkvæm fiskiskip eru nú í rekstri. Þegar hefur verið gripið til nokkurra aðgerða til þess að auðvelda útgerðaraðilum að hætta útgerð úreltra skipa. Óhætt mun að fullyrða að reynslan af þeim aðgerðum hafi verið allgóð. Hins vegar virðist einsýnt að auka beri möguleikana til að taka skip úr rekstri með þessum hætti. Fyrir því er þetta frv. flutt.“

Í frv. er gert ráð fyrir að auka hlut úreldingarstyrkja í útflutningsgjaldi og tiltekinn hundraðshluti af ríkisframlagi til Fiskveiðasjóðs fari sömuleiðis til þessa verkefnis. Eins og nú háttar til mun það styrkja afkomu útgerðarinnar í landinu að verja auknu fé til úreldingar frekar en til innkaupa á fiskiskipum. Meginatriðið er þó engu síður að skapa með þessum hætti svigrúm til endurnýjunar án þess að fiskiskipastóllinn stækki.

Með samþykkt þessa frv. mundu fjárráð til úreldingar rúmlega tvöfaldast. Tekjur af þessum þáttum, sem ráðstafað er tif úreldingarstyrkja, færu þannig úr um það bil 780 millj. gkr. í um 1650 millj. gkr.

Í þessu sambandi þykir mér rétt að benda á nokkrar staðreyndir varðandi stærð skipastólsins og þróun hans á undanförnum árum. Lítum fyrst á viðbætur við skipastólinn á árunum 1971–1980. Á því tímabili voru keypt fiskiskip erlendis frá sem voru alls 51 433 brúttórúmlestir. Nýsmíðar innanlands á þessum sama tíma námu 12 879 brúttórúmlestum. Heildarviðbætur námu því 64 312 brúttórúmlestum. Af þessum viðbótum voru 43 872 brúttórúmlestir í skuttogurum eða 2/3, 6682 brúttórúmlestir voru í loðnuskipum en 9340 lestir í öðrum fiskibátum.

Lítum svo á brottfall úr flotanum á sama tímabili. Á þessu sama tímabili voru eyðilagðar 14 723 brúttórúmlestir af fiskiskipum, en skip, sem fórust, töldust alls 6321 brúttórúmlest. Úr landi voru flutt fiskiskip sem í heild töldust 6085 brúttórúmlestir. Ef þetta er tekið saman var heildarbrottfall á þessu tímabili 27 129 brúttórúmlestir á sama tíma og viðbætur námu 64 312 brúttórúmlestum. Auk þess voru mörg skip stækkuð, eins og kunnugt er, og veiðihæfni þeirra þar með aukin og heildarstærð flotans aukin umfram það sem hér er talið.

Í stað þess að fara nánar út í þessar tölur fyrir áratuginn í heild er rétt að líta nánar á seinustu fjögur ár, þ. e. 1977–1980 að báðum árum meðtöldum, og þá ekki síst með tilliti til þess, að um þær mundir má telja að fullljóst hafi verið að skipastóllinn stefndi í það að fara að verða of stór. Lítum á þessi ár, árin 1977–1980 hvert fyrir sig svo og tímabilið í heild.

Árið 1977 voru viðbætur 5083 tonn, sem voru innflutt erlendis frá, og 991 tonn, sem var smíðað hér innanlands, eða alls viðbætur á árinu 1977 upp á 6074 tonn. En brottfall á þessu sama ári var 2039 tonn. Nettóviðbót á árinu 1977 fyrir utan stækkanir og því um líkt voru því 4000 tonn rúmlega.

Árið 1978 voru innflutt fiskiskip alls 3849 brúttórúmlestir. Innanlandssmíðin nam 1390 rúmlestum. Alls voru viðbætur því 5239 tonn á árinu 1978, en brottfallið á því ári var einungis 241 tonn. Nettóviðbótin á því ári var því um 5000 tonn, rétt tæplega.

Árið 1979 nemur innflutningur fiskiskipa 2050 tonnum. Innanlandssmíðin nam 722 brúttórúmlestum svo að alls eru þá viðbætur af þessu tagi 2772 tonn, en brottfallið á þessu ári, 1979, reyndist 4 672 tonn. Þetta ár, árið 1979, minnkaði því fiskiskipastóllinn um 1900 tonn.

Árið 1980 nema innflutt fiskiskip 2040 tonnum, innanlandssmíðin 1112 tonnum. Samtals gerir þetta viðbætur upp á 3152 tonni, en brottfallið á árinu 1980 eru 1253 tonn. Það ár tók því fiskiskipastóllinn að vaxa á ný og var nettóviðbótin nokkurn veginn sú sama og nettósamdrátturinn hafði verið árið áður. Nettóviðbótin árið 1980 er 1899 tonn.

Á árinu 1979 hafði stækkunarþróunin þannig ekki bara verið stöðvuð, heldur hafði þróuninni verið snúið við. Strax á árinu 1980 sótti svo aftur í sama stækkunarfarveginn.

Það er athyglisvert að skoða tölur yfir brottfall úr flotanum nokkru nánar, einkanlega með tilliti til þess frv. sem hér var flutt og ég mæli nú fyrir. Ef litið er á fjölda þeirra fiskiskipa, sem beinlínis svarar til þess sem venjulega má flokka undir brottfall, þá má telja slík skip, skip af því tagi sem eyðilögð eru og úrelt eða send í brotajárn. Árið 1977 voru það einungis tvö skip sem þessi örlög hlutu. Árið 1978 voru þau þrjú talsins, en árið 1979 voru þau 35 að tölu. Árið 1980 voru þau aftur á móti 12 talsins. Árið 1979 sker sig þannig úr, enda var þá gert sérstakt átak til þess að taka úrelt skip úr rekstri. Það átak hefur aftur runnið að verulegu leyti út í sandinn síðan eins og þessar tölur sýna.

Það er ekki síður athyglisvert að líta á tölur yfir brottflutning skipa úr landi, ekki síst með tilliti til þess, að ýmsir sjútvrh. hafa gert sérstakt númer úr því að skip færi úr landi í stað innflutts skips. Árið 1977 voru þrjú skip flutt úr landi. Árið 1978 var ekkert skip flutt úr landi, en árið 1979 voru þau sjö talsins. Árið 1980 er öld hins vegar aftur snúin því að þá er einungis eitt skip flutt úr landi.

Það er líklega ekki úr vegi að geta þess, að á árinu 1979 var sérstakt átak gert til þess að þvinga erlenda kaupendur íslenskra fiskiskipa til að flytja úr landi þau skip sem þeir höfðu keypt og áttu að flytja úr landi. Því höfðu þeir ekki vanist og þetta kostaði nokkra fyrirhöfn. En líka í þessum efnum er öld snúin og undanlátssemin ríður nú húsum á ný.

Oft hefur verið haft á orði að meðalbrottfall úr fiskiskipastólnum á ári væri væntanlega um 1700 tonn. Hefur þá verið stuðst við svonefnda fiskiskipaáætlun, en samkv. spá í henni yrði meðalbrottfall á árunum 1976–1985 1689 brúttórúmlestir. Á liðnum árum hefur þessi spá þó reynst of há. Sé lítið á árin 1976–1978, þá var spáð meðalbrottfalli upp á 1385 tonn á ári. En brottfallið reyndist aðeins rúmur helmingur þess. Átakið 1979 réttir þetta hins vegar af þannig að árleg rauntala fyrir árin 1976–1979 verður 1340 tonn meðan spáin er 1279 tonn. Með því átaki, sem gert var á árinu 1979, tókst þannig að ná þeirri tölu, sem spáð hafði verið, og vel það.

Þetta sannar að með átaki er svigrúm til þess að ná spátölunum og vel það, en án sérstakra aðgerða fer því fjarri, eins og árin þar á undan sanna okkur að svo sé. Þetta sannar nauðsyn þess, að úreldingarstyrkir séu auknir eins og hér er flutt frv. um.

Sé hins vegar litið á spána samkv. fiskiskipaáætlun fyrir næstu ár, árin 1981–1985, þá verður að taka vara við því, að inni í henni er brottfall á síðutogurum upp á 3558 tonn, en nú er einungis einn síðutogari í rekstri og hann er ekki svona stór og reyndar ekkert sérstakt útlit fyrir að hann hverfi úr flotanum á næstunni. Sé leiðrétt fyrir þessu gerir spáin í rauninni ekki ráð fyrir meira brottfalli en 1417 tonnum að meðaltali á þessu tímabili fram til ársins 1985. Hins vegar mætti segja mér að þessi spá sé of lág miðað við aldurssamsetningu bátaflotans og væri það auðvitað athugunarefni. Hitt verður ekki síður að leggja áherslu á, að reynslan sýnir að með sérstöku átaki má auka brottfall umfram spána eins og reynslan frá árinu 1979 sýnir, sbr. það sem áður er sagt. Til viðmiðunar má enn fremur hafa að síðan úreldingarstyrkir hlutu fastan tekjustofn mun úthlutun styrkja hafa numið 433 millj. gkr. vegna skipa sem voru samtals 863 brúttórúmlestir. Þetta svarar til um 500 þús. gkr. fyrir hverja rúmlest sem úr útgerð var tekin með þessum hætti, og ber þá að miða við meðalverðlag á árunum 1980–1981.

Það frv., sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir því, að úreldingarstyrkir verði rúmlega tvöfaldaðir, og því má vænta verulegs árangurs af þeirri breytingu sem frv. gerir ráð fyrir. Í fyrri úthlutun úreldingarstyrkja, þ. e. á árinu 1979, var úthlutað til brottfalls á 27 bátum alls 1422 rúmlestir og nam úthlutunin 371 millj. gkr., sem svarar til um 260 þús. kr. á brúttórúmlest og þá auðvitað á verðlagi þess árs. Það er auðvitað ekki síðri árangur en í síðari úthlutun.

Eins og kunnugt er var gert þríþætt átak til þess að sporna gegn óhagkvæmri stækkun skipastólsins í tíð ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar. Í fyrsta lagi voru teknir upp sérstakir úreldingarstyrkir, sem fyrst voru fjármagnaðir með ákveðnu framlagi úr gengismunarsjóði, en hlutu síðan fastan tekjustofn sem hlutdeild í útflutningsgjaldi. Í öðru lagi var innflutningur fiskiskipa stöðvaður með sérstakri reglugerð. Í þriðja lagi voru erlendir aðilar, sem áttu hér skip, neyddir til að flytja þau úr landi svo að þau færu ekki í endursölu hér eins og dæmi voru um.

Síðan núv. ríkisstj. tók við er öld snúin. Sett var af stað skriða innflutnings. Reglugerð um að flytja út skip í stað skips, sem flutt væri inn, var notuð sem skálkaskjól, en sú reglugerð hefur síðan verið þverbrotin, m. a. fyrir forgöngu hæstv. sjútvrh. sjálfs. Enn fremur hafa sérstakir tilburðir verið uppi við að flytja inn að nýju skip sem voru þegar flutt út, og minni ég á Hamravíkina í því sambandi, og tilburðir uppi um það að skip, sem eiga að heita fara úr landi, fari alls ekki, sbr. hugmyndir sem uppi eru varðandi Guðbjörgu ÍS. Mér telst svo til að viðbótin í stórum skipum á árinu 1981, út frá þeim loforðum sem þegar hafa verið gefin, muni nema um 2600 brúttórúmlestum. Eru þá ótaldir smærri bátar sem smíðaðir verða innanlands. Má telja líklegt samkv. reynslu að sú smíð yrði á bilinu 100–200 tonn. Hér hef ég þó ekki talið Þórshafnartogara, enda tel ég það mál ekki frágengið, en hann mundi að öðrum kosti bætast við og að honum meðtöldum fer viðbótin þannig upp í ca. 3200 tonn. Ég hef ekki heldur talið þá togara og báta sem lausafregnir herma að séu uppi þreifingar um, svo sem af hálfu Akurnesinga, Patreksfirðinga og Djúpvíkinga. (StJ: Ekki Djúpvíkinga, Djúpavogsmanna.) Djúpavogsmanna, það verður víst að hafa það þannig. (Gripið fram í.) Ég vona að þm. geti fundið einhverja skekkju í því, sem hér hefur verið farið með, úr því að hann brúkar munn með þessum hætti.

Ég hef ekki heldur talið þann samning sem Vestmanneyingar munu hafa gert við Slippstöðina um smíði fyrir sig, og ég hef ekki heldur talið endurinnflutning á Guðbjörgu til Reyðarfjarðar, eins og um mun talað eða jafnvel frá gengið. Að öllu þessu ótöldu reiknast mér viðbótin sem sagt um 3200 tonn. Án átaks í úreldingu tel ég ekki ólíklegt að búast megi við brottfalli sem nemur ca. 1200–1300 tonnum á þessu ári, sbr. bæði spá um brottfall í fiskiskipaáætlun og reynsluna af s. l. ári. Samkv. því væri fyrirsjáanleg nettóviðbót á árinu 1981 upp á um það bil 2000 tonn.

Ég tel að þetta ætti að sanna betur en nokkuð annað nauðsyn þess að samþykkja lagafrumvörp þau sem við Alþfl.-menn höfum flutt hér í hv. deild um stefnumörkun í skipastólsmálum, þ. e. frv. um afnám ríkisábyrgðarheimildar ríkisstj. vegna skuttogarakaupa, frv. um greiðslu tryggingarsjóð fiskafla, frv. um hagkvæmni í stærð og endurnýjun skipastólsins og síðast en ekki síst það frv. sem hér er mælt fyrir, um aukningu úreldingarstyrkja eða eflingu aldurslagatryggingar fiskiskipa.

Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til sjútvn.