26.03.1981
Sameinað þing: 66. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3142 í B-deild Alþingistíðinda. (3277)

252. mál, innlent fóður

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Ég get tekið undir það með hv. 11. landsk. þm. að það liggja fyrir miklar og góðar athuganir á þessum málum. Bændasamtökin og Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafa sannarlega tekið á þessum málum eins og vera ber. Ég er þó ekki viss um að ekki megi enn betur gera og taka á þessu máli í enn ríkara mæli og efla fóðuriðnað okkar enn kröftugar en við höfum gert — við erum báðir sammála um það — og þá um leið athuga hvaða háttur er til þess hagkvæmastur, hvernig við getum það með hagkvæmustum hætti og þá ekki síður hvernig við förum með heyöflunina og að hún sé þá tekin inn í þessa mynd ekki síður og við hugum sem allra best að því, hvaða aðferðir þar séu heppilegastar. Þá getum við kannske miðað við hvert landsvæði út af fyrir sig, vegna þess að hér gildir ekki það sama um öll svæði landsins.

Flm. þessarar þáltill. í fyrra lagði á það áherslu, bæði þá og nú, án þess að gera það í till. sjálfri, að Rannsóknaráð ríkisins fjallaði um þetta vegna þess að þetta tengdist ýmsum öðrum verkefnum sem Rannsóknaráð ríkisins væri með. Hún gerði það þess vegna að tillögu sinni. Ég bið menn um að hafa það í huga, að við metum fyllilega Rannsóknastofnun landbúnaðarins í þessum efnum sem aðila sem gæti unnið þarna mjög merkilegt starf. En ef við ætlum að fara út í það að reyna að samræma þetta öðrum rannsóknum er þetta sá aðili sem er með allt slíkt í hendi sér og er þess vegna kannske hinn eðlilegasti vettvangur. Um þetta eru hins vegar ekki nein skýr ákvæði í till. sjálfri, segir ekkert um það. Ég hygg að ef þessi till. næði fram að ganga gæti varla orðið um að ræða ágreiningsefni milli Rannsóknastofnunar landbúnaðarins annars vegar og Rannsóknaráðs ríkisins hins vegar. Þar sem önnur stofnunin er aðili að hinni í raun og veru gæti það varla orðið að ágreiningsefni þeirra á milli, hvernig þessari könnun og framkvæmd till. yrði háttað. Rannsóknaráð ríkisins mundi þá kannske taka að sér vissa samræmingu og vissa heildarstjórn, en Rannsóknastofnun landbúnaðarins einbeitti sér að þeim þáttum sem hún hefur sérstaklega starfað að.