30.03.1981
Neðri deild: 68. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3164 í B-deild Alþingistíðinda. (3296)
193. mál, viðnám gegn verðbólgu
Frsm. 1. minni hl. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Það var ánægjulegt að heyra að hæstv, heilbr.- og trmrh. sagði okkur hér að til athugunar væri í heilbr.- og trmrn. að hækka hina svokölluðu „vasapeninga“. En það vil ég segja honum, að þeir, sem liggja sjúkir og fá þá vasapeninga sem nú eru greiddir, eða þeir, sem hafa slasast og fá slysadagpeninga, þeir greiða ekki með athugunum í trmrn. og þeir kaupa sér ekki það sem þeir þurfa að fá sér nauðsynlega á meðan sú athugun fer fram. Hún er ekki gjaldgeng, sú athugun, jafnvel þó hæstv. ráðh. lýsi því yfir hér í ræðustól þegar hann er kominn í algert óefni.
Það er vitað mál, að Alþb. ætlaði ekkert að gera í þessum efnum annað en að skerða þessar bætur almannatrygginga með öðrum verðbótum launa. Þetta var ætlun þeirra og þessu ætluðu þeir að sporðrenna, verkalýðsleiðtogarnir í Alþb. Það var ekki fyrr en stjórnarandstaðan hristi upp í liðinu að þeir fóru að ókyrrast og töldu að þetta gæti ekki gengið lengur. Þá var rokið til og gefin út þessi reglugerð um hækkun bóta. Margur tekjutryggingarþeginn fékk ekki þá hugmynd af auglýsingunni umræddu, að hann fengi 14.6% á tekjutrygginguna eina, en grunnellilífeyrir viðkomandi manns hækkaði aðeins um 6%. Það voru fleiri en þm. í Ed. sem misskildu þessa fréttatilkynningu. Það var fjöldi bótaþega almannatrygginga sem misskildi hana og það ekki að ástæðulausu, því að hún er orðuð með það eitt í huga að menn misskilji hana og reikni með öðru og betra. Það er ekki klókt að valda fólki vonbrigðum með slíkum fréttatilkynningum.
Og það er um fleira að ræða, eins og ég sagði áðan, heldur en slysa- og dagpeninga. Af hverju á að skerða barnalífeyrinn, ekkjubæturnar, hvaða réttlæti er í því? Hæstv. ráðh. minntist ekkert á að þar væri breytinga að vænta sem væru í athugun í heilbr.- og trmrn. Hvar er nú umhyggjan fyrir þeim sem minnst mega sín í þjóðfélaginu? Er hún bara þegar flokkur þeirra er í stjórnarandstöðu? Þá er hamast á stjórnvöldum að þau geri aldrei neitt fyrir þá sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Svo er Alþb. verra en versta afturhald sem þekkist þegar kemur að ríkiskassanum. En þegar það er í stjórnarandstöðu er auðvitað íhaldið það versta af öllu og kratarnir litlu betri. Kratarnir eru margfalt skárri en Alþb. í þessum efnum, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Alþb. fer ekki eftir nokkurri stefnu sem það hefur sjálft markað. Það svíkur hvert einasta atriði sem það hefur samþykkt og markað stefnu um árum saman. Þar stendur ekki steinn yfir steini.
Ef nokkurs staðar er til afturhaldsflokkur og afturhaldsklíka, þá er það Alþb. Þetta vita allir, hver einasti maður, þetta er mesta afturhald sem til er í landinu. Ef þessi flokkur fær að halda áfram á sömu braut, þá siglir fátækt og vesaldómur inn í þetta þjóðfélag. Alþb. vill ekki framfarir á neinum sviðum. Það stendur í vegi fyrir byggingu raforkuvera, það stendur í vegi fyrir framþróun þeirra atvinnutækja og atvinnumála sem í landinu eru. Það má hvergi vera vont loft, segja þeir, og það má eiginlega hvergi gera neitt. Bílarnir menga, það verða teknar upp hestkerrur aftur eða bara handbörur. Ef þetta afturhaldslið nær frekari tökum í þjóðfélaginu, þá mega þeir fara að vara sig sem hafa byggt upp til elliáranna og eiga að fá bætur almannatrygginganna.
Við sjáum núna fólkið sem talaði um samningana í gildi, og hafði hæst fyrir kosningarnar 1978 og blekkti þjóðina. Það stendur ekki á því að segja nei við öllum umbótatillögum. Það stendur ekki á því núna að segja já við kaupskerðingarákvæðunum. Þetta er fólkið sem grét framan í hafnarverkamennina, grét framan í launþegana fyrir kosningarnar 1978 og útmálaði hvað þeir væru vondir sem þá voru við stjórnvölin. Nú er þetta lið — eða sumt af því sem hafði hæst þá — komið inn á Alþingi og situr hér sitt hvorum megin við dyrnar þegar gengið er inn í deildina. Og það stendur aldrei á þessu liði að vera með í öllum kjaraskerðingum á hendur launþegum og verkalýð í landinu. Og það er ekki nóg með það að skerða kaup og kjör þeirra sem eru fullfrískir, það þarf líka að ráðast á þá sem liggja í rúminu. Við sjáum það hér á eftir hvað þetta lið gerir þegar atkvgr. fer fram. Við sjáum hvort það ætlar ekki að vera trútt þeirri svikastefnu sem Alþb. er nú uppvíst að.