30.03.1981
Neðri deild: 68. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3181 í B-deild Alþingistíðinda. (3303)
193. mál, viðnám gegn verðbólgu
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Þegar komið er að lokum þessarar atkvgr. langar mig til að vísa til orða sem féllu 1. maí 1978, en þau voru, með leyfi forseta, svofelld:
„Í hugum alþýðufólks eru samningar skuldbindandi. Almennt alþýðufólk lítur á samning þannig að honum megi ekki rifta eða hlaupast frá. Það kemst ekki upp með að greiða ekki skatta sína og skyldur né að neita að greiða af íbúðum sínum eða öðru sem það festir kaup á. En stjórnvöld hafa á þessu aðrar skoðanir, enda kemur spillingin ætíð ofan frá.“
Þetta er tilvísun í hv. þm. Guðmund J. Guðmundsson frá því 1. maí 1978. Ég minni á þessa tilvísun um leið og ég segi nei.