31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3181 í B-deild Alþingistíðinda. (3304)
265. mál, olíuviðskipti við Breta
Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp, til viðskrh. um olíuviðskipti við Breta:
1. Hver var hagnaður af olíuviðskiptum við Breta?
2. Er ætlunin að halda þeim viðskiptum áfram?
Ég tel að þau viðskipti hafi verið upp tekin vegna mikils þrýstings, bæði í blaðaheimi og eins hér á Alþingi, — þrýstings frá mönnum sem töldu sig vita allt um olíuviðskipti. Þess vegna hlýtur að vera fróðlegt að fá úr því skorið, hvort þessi viðskipti hafi verið Íslendingum hagstæð og hvort það sé rétt stefna, sem upp hefur verið tekin, að leggja á það höfuðáherslu að við aukum olíuviðskipti við það sem kölluð hafa verið „vinveitt ríki“. Mér þykir sanngjarnt að fá það alveg á hreint hvað sú vinátta kostar.