31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3185 í B-deild Alþingistíðinda. (3307)
265. mál, olíuviðskipti við Breta
Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Ég þakka viðskrh. fyrir svör hans þó að ekki hafi það komið fram í krónum, hver niðurstaðan væri af olíuviðskiptum við Breta, og einnig hafi það ekki komið fram hvort ætlunin væri að halda þeim áfram.
Ég vil lýsa þeirri skoðun minni afdráttarlaust, að ég tel að við Íslendingar höfum ekki efni á öðru en að kaupa olíu þar sem við getum fengið hana með bestum kjörum og verðið eitt eigi að ráða því, hvar við verslum. Ég vil í þessu sambandi minna á að Vestur-Þjóðverjar hika ekki við að gera samninga um gaskaup m. a. frá Sovétríkjunum í mjög ríkum mæli þrátt fyrir að þeir séu gagnrýndir af öðrum þjóðum, m. a. Bandaríkjunum, fyrir að þetta sé of áhættusamt tiltæki. Ég hef ekkert á móti því, að keypt sé olía af vestrænum þjóðum, hvort sem það er af Norðmönnum eða Bretum, en ég óska eindregið eftir því, að viðskrh. leggi á það höfuðkapp, að þeir samningar séu ekki óhagstæðari en gerðir eru annars staðar, og tel að það sé nánast óverjandi að standa öðruvísi að þeim málum.