31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3185 í B-deild Alþingistíðinda. (3308)

265. mál, olíuviðskipti við Breta

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hv. þm. Kjartan Jóhannsson spurðist fyrir um Alþjóðaorkumálastofnunina, hvað því máli liði. Það er rétt hjá honum, að gerð hefur verið ítarleg skýrsla um það mál. Það hafa farið fram viðræður við fulltrúa Alþjóðaorkumálastofnunarinnar tvívegis í París og í annað sinn, að ég hygg, meðan hv. þm. var viðskrh. Þessar viðræður hafa leitt í ljós hvaða skuldbindingar það eru og hvaða réttindi það eru sem fylgja aðild að Alþjóðaorkumálastofnuninni. Ég hef látið það í ljós áður á Alþingi — gerði það fyrir skömmu í umr. í Ed. — að ég teldi koma til greina að Ísland gerðist aðili að Alþjóðaorkumálastofnuninni. Ég tel að það sé ýmislegt sem rökstyður að það sé skynsamlegt, m. a. öryggissjónarmið. Þetta mál er nú til meðferðar hjá ríkisstj., hefur verið rætt í ríkisstj., og er þar til meðferðar, og hún tekur sjálfsagt ákvörðun um það — ég skal ekki segja hvenær — hvort ákveðið verður að sækja um aðild að þessari stofnun.

Þá vék þm. að birgðarýminu í landinu, hvort það væri nægilegt. Ég held að það skorti ekki mikið á að birgðarými fyrir olíuvörur sé nægilegt til þess að við eigum birgðir sem eru hæfilegar og getum treyst á ef eitthvað gerist í þessum málum. Ég held að tiltölulega mjög lítið þurfi til viðbótar til þess að birgðarýmið sé nægilegt, og ég held að Helguvíkurmálið hafi ekki nein áhrif á það mál sem slíkt.

Ég er fylgjandi því, að við aukum birgðir okkar frá því sem verið hefur. Birgðirnar voru t. d. 1979, að því er mig minnir, 54 dagar að meðaltali. Ef við gerumst aðilar að Alþjóðaorkumálastofnuninni er lágmarkið 90 dagar eða þrír mánuðir. Við mundum áreiðanlega geta gerst aðilar að þeirri stofnun á þann hátt að auka birgðarými okkar, þar sem þarf, og olíubirgðir t. d. á nokkrum árum, 4–5 árum eða eitthvað því um líkt. Birgðir um s. l. áramót voru nokkuð miklar, það voru um 100 daga birgðir t. d. af gasolíu, en það eru miklar sveiflur í þessu og við förum býsna langt niður á stundum í sambandi við birgðir.

En það er ákaflega þýðingarmikið að við stefnum að því að auka birgðir okkar hvað sem öðru liður. Það kostar peninga, ekki aðallega í auknum geymum, það er minnsti hlutinn af kostnaðinum, en kostnaðurinn er aðallega fólginn í því að greiða fjármagnskostnað af því að liggja með birgðir. Það er auðvitað ekki hægt að gera þetta án þess að hækka verð á olíuvörum. En ég álít að það sé sjálfsagt mál fyrir Íslendinga að stefna að því auka birgðir sínar í það mark sem gert er ráð fyrir meðal þeirra þjóða sem eru aðilar að Alþjóðaorkumálastofnuninni. Það er 21 þjóð, allar þjóðirnar, sem eru aðilar að Efnahags- og framfarastofnuninni, nema þrjár. Er sjálfsagt að vinna að því máli.