31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3190 í B-deild Alþingistíðinda. (3315)
375. mál, lán til íbúðabygginga
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það er kannske að bera í bakkafullan lækinn að tala enn einu sinni um húsnæðismálin sem voru til afgreiðslu sem frv. hjá hv. Alþingi fyrir tiltölulega stuttu. Eitt er þó ljóst, að eftir að þau nýju lög tóku gildi hefur lítið sem ekkert breyst um fjárframlag ríkisins til Byggingarsjóðs ríkisins annars vegar og Byggingarsjóðs verkamanna hins vegar. Það er talið að hvert launaskattsstig skili 75 millj. nýkr. Í framlagi ríkissjóðs er þó aðeins gert ráð fyrir að 75 millj. gangi til Byggingarsjóðs verkamanna frá ríkinu, en 43 millj. nýkr. til Byggingarsjóðs ríkisins. Það er ljóst af þessum tölum að mikið vantar á að ríkisvaldið standi skil á þeim skatti sem sérstaklega var lagður á atvinnufyrirtækin og varð reyndar til í kjarasamningum í þessu skyni.
Nú þegar allt er komið í þrot fer hæstv. ríkisstj. þá leið að taka að láni fjármagn sem verður til með almennum sparnaði í landinu. Um það er út af fyrir sig ekkert nema gott að segja. En þess ber að geta, að ávöxtunarkjörin á slíkum lánum eru líkast til á milli 51 og 53% ef gert er ráð fyrir 50% verðbólga í ár, eins og spár segja til um. Þetta verður að benda á, vegna þess að síðan kemur hæstv. ráðh. hér í ræðustól og segir að þetta sé liður í því að koma skipulegum hætti á lánamál til húsbyggjenda. Ég held að haldi fram sem horfir sé það kannske ekki út í bláinn að hæla hæstv. ráðh. fyrir að koma því kerfi á að Húsnæðisstofnun ríkisins verði óþörf. — Ég verð að segja það, að ef það gerist í framtíðinni, að venjulegir húsbyggjendur eigi aðgang að sparifjármunum landsmanna, þá er það vel. Þá gefst tækifæri til þess fyrir okkur hin, sem greiðum skatta, að láta ríkissjóð greiða þeim úr byggingarsjóði, sem sérstaklega þurfa á lánum að halda, en ekki að koma upp því kerfi sem gert var ráð fyrir í húsnæðislögunum nýju, að allir yrðu þurfalingar.