31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3192 í B-deild Alþingistíðinda. (3318)
375. mál, lán til íbúðabygginga
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Hæstv. félmrh. ræddi um hrakspár sem menn hefðu uppi í sambandi við Byggingarsjóð ríkisins. Sannleikurinn er sá, að það er engin furða þó að þær hrakspár séu uppi. Samkvæmt eldri lögum hefði Byggingarsjóður ríkisins fengið nálægt 17 milljörðum gkr. nú í ár af sínum mörkuðum tekjustofnum, en fær núna frá ríkissjóði 4.3 milljarða. M. ö. o.: hann fær ekki nema 1/4 af því sem hann hefði ella fengið.
Það er rétt, að lánin verða svipuð og þau hafa verið. Ef menn eru ánægðir með það geta menn látið kyrrt liggja. En það, sem upp á vantar að Byggingarsjóður ríkisins fái það sem hann hefði átt að fá samkv. hinum gömlu mörkuðu tekjustofnum, er tekið að láni. Það er tekið að láni til styttri tíma og með hærri vöxtum en lánað er út, m. ö. o. með miklu verri kjörum. Þetta hlýtur auðvitað að leiða til þess, að Byggingarsjóður ríkisins getur aldrei hækkað lánahlutfall sitt og hlýtur að hjakka í sama farinu.
Það er talað um að aukið sé framlagið til Byggingarsjóðs verkamanna. Það er alveg rétt. Það eru 7.5 milljarðar gamlir sem þangað fara. En það eru peningar sem teknir eru af Byggingarsjóði ríkisins. Það er ekkert nýtt fjármagn.
Þessi lán, sem hér eru á dagskrá, hljóta að leiða til óþarfrar skriffinnsku. Það á að leita að skuldum hér og þar, leita að skuldum í búðum, leita að víxilskuldum út um allar trissur í stað þess að láta alla hafa einhverja ákveðna upphæð sem menn geti sótt um og fengið. Auðvitað tekur enginn þessi verðtryggðu lán nema hann þurfi á þeim að halda. Eina frambúðarlausnin er hækkun á lánshlutfalli Byggingarsjóðs ríkisins.