05.11.1980
Efri deild: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
17. mál, olíugjald til fiskiskipa
Guðmundur Karlsson:
Herra forseti. Ég hef til þessa verið á því, að olíugjaldið til fiskiskipa ætti rétt á sér og þá fyrst og fremst sem viðurkenning á auknum olíukostnaði og eins auknum útgerðarkostnaði. En ég vil leyfa mér að átelja hið mikla hringl sem verið hefur með þetta gjald á þessu ári. Mér finnst satt að segja að sjómenn eigi við nóga óvissu að búa. Það er vissulega sannleikur, að þeir eiga ekki á vísan að róa. Það er stöðugt verið að hefta möguleika þeirra til sjálfsbjargar. Þeim er skammtaður afli og skammtað hvenær þeir mega fara á sjó, og þessu er orðið í flestum tilvikum miðstýrt og ekki óeðlilegt við þær aðstæður sem nú hafa skapast. En ég held, að við þurfum á einhvern hátt að sameinast um að finna olíugjaldi nýjan farveg með þeim hætti að hvetja sjómenn til aukins sparnaðar og aðhalds bæði í eyðslu olíu og veiðarfæra.
Það kom fram í ræðu hæstv. ráðh., að hann telur að fiskvinnslan í landinu sé nú rekin hallalaust. Þetta er nokkuð sem ég get ekki tekið undir. Ég tel að fiskvinnslan sé nú rekin með allt að 6% halla. Það hefur aldrei tekist að fá viðurkenndan aukinn og vaxandi vaxtakostnað fiskvinnslunnar, og eins og hitt, að mér finnst menn loka augunum fyrir því, að við höfum á undanförnum árum stefnt að því að gera fiskvinnsluna að verksmiðjuframleiðslu. Rekstur fiskveiðiskipanna, togaranna og frystihúsanna er svo samtengdur að ekki er auðvelt að sveifla vinnslunni frá einni grein til annarrar. Tökum tillit til landshluta eins og Vestfjarða. Þar hafa verið byggð gífurlega vönduð og góð frystihús sem eru rekin sem verksmiðjur. Alveg sama gerist á Norðurlandi býst ég við í flestum tilvikum. Þetta eru mjög myndarleg fyrirtæki, en þau hafa flest byggt sig þannig upp að ekki er auðvelt að sveifla fyrirtækinu frá frystingu yfir í skreið og saltfiskvinnslu. Lagt hefur verið í gífurlega fjárfestingu, mikið af vélum og búnaði sem eingöngu er ætlað til frystingar. Fólkið í byggðarlögunum ætlast til að hafa atvinnu af fyrirtækjunum, og við vitum að saltfisk- og skreiðarvinnsla skapar ekki nálægt því eins mikla vinnu og frysting. Þess vegna eiga menn ekki eins auðvelt og menn vildu vera láta með að breyta til í fiskvinnslunni.
Ég held að ekki verði í framtíðinni ætlast til þess, að heil atvinnugrein verði rekin með hinn svokallaða „núllpunkt“ fyrir augum. Það verður að ætla henni einhvern möguleika til ágóða í framtíðinni, og við verðum að muna það, þegar við erum að ræða þessi mál, að fyrirtækjum sveifla menn ekki í kringum sig eins og sópi nú á tímum.