31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3198 í B-deild Alþingistíðinda. (3328)

375. mál, lán til íbúðabygginga

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Þessar umr. hafa verið mjög fróðlegar. Ég veit, að það er ægilegt fyrir Svavar Gestsson félmrh. að aðrir en hann vinni að heill alþýðunnar meðan hann dregur lappirnar, og skil vel, að hann sé grátklökkur yfir því. Ég held líka að hann hafi rétt fyrir sér þegar hann talar um það sem stórt spor að koma á samvinnu við bankakerfið að því er varðar málefni húsbyggjenda. En þegar hann talar um að það sé stórt spor núna að gera það með kerfisbundnum og skipulegum hætti, með þeim hætti sem hann hefur hér lýst, er ég ósammála og tel að það sé slæmt spor. Það er alls ekki af því tagi sem gagnar húsbyggjendum yfirleitt.

Mér sýnist að þessi umr. hafi sýnt það mjög glöggt, hversu óheppilegan farveg þessi mál fara í ef á að fara þá leið sem hér er talað um: vega og meta skuldir hjá hverjum og einum. Þetta á einungis að ná til skulda hjá lánastofnunum þó að einn hæstv. ráðh. talaði um að menn skulduðu líka í kaupfélögum og byggingarvöruverslunum. Sumir skulda meira að segja ættingjum sínum og vinum. Spurningin verður sú, ef menn ætla að njóta hér fyrirgreiðslu, hvort menn skuldi réttum aðilum til þess að fá fyrirgreiðsluna. Það er auðvitað m. a. þetta sem er í grundvallaratriðum rangt við þá aðferð sem hér er valin.

Menn tala líka mikið um tæknileg vandamál. Ég held að það hafi verið mjög raunsönn viðvörun, sem kom fram hjá hv. þm. Helga Seljan, að það kerfi, sem hér væri verið að lýsa, byði upp á mismunun. Það er líka slæmt. Það er þess vegna sem menn eiga ekki að fara þá leið sem hér er valin. Það er þess vegna sem menn eiga að fara þá leið sem kom fram í tillögum okkar Alþfl.-manna í desembermánuði um að gefa öllum kost á lánunum. Ef þau eru á eðlilegum kjörum geta menn valið hvort þeir taka þau eða ekki. Afkoma bankanna og það hvað þetta losar um í skammtímalánum gerir kleift að fara þessa leið.