31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3200 í B-deild Alþingistíðinda. (3330)
341. mál, lífeyrisréttindakerfi fyrir alla landsmenn
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Suðurl., Magnús H. Magnússon, spyr að því, hvað líði störfum 17 manna endurskoðunarnefndar lífeyrisréttinda og hvenær sé að vænta tillagna frá nefndinni. Þessum fsp. var upphaflega beint til heilbr.- og trmrh. og leið nokkur tími áður en ég varð var við að þessi fsp. hefði komið fram. Hins vegar er það staðreynd, að fjmrh. skipaði á sínum tíma 17 manna nefndina og lífeyrismál heyra undir fjmrn. Það þótti því réttara að ég svaraði þessum spurningum.
Til 17 manna nefndarinnar og reyndar einnig 8 manna lífeyrisnefndar Alþýðusambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna má rekja ýmsa mikilvægustu áfanga lífeyrismála undangengin 4–5 ár.
Á grundvelli svokallaðrar „lífeyrismálayfirlýsingar“ frá 1977 vann 8 manna nefndin á árinu 1978 að undirbúningi löggjafar um eftirlaun til aldraðra. Eftir umræður í 17 manna nefndinni skilaði nefndin tillögum að frv. í hendur ráðh. í byrjun árs 1979 og það frv. varð að lögum í árslok 1979. Í lögum þessum felst að lágmarksréttur til eftirlauna samkv. lögum um eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum var gerður að almennum rétti.
Á s. l. ári voru samþ. þrjú frumvörp sem 8 manna nefndin og 17 manna nefndin höfðu fjallað ítarlega um. Frumvörp þessi urðu öll að lögum og er hér um að ræða lögin um starfskjör launafólks, skyldutryggingu lífeyrisréttinda, um söfnunarsjóð lífeyrisréttinda og loks lögin um skráningu lífeyrisréttinda.
Telja verður nauðsynlegt að upplýsingar séu fyrirliggjandi um starfsemi þeirra 100 lífeyrissjóða sem til eru í landinu til að unnt sé að móta samræmt lífeyrisréttindakerfi fyrir alla landsmenn. Á vegum fjmrn. er unnið að því að gera skrá um þátttöku manna í lífeyrissjóðum, en dæmi eru þess, að einn og sami maðurinn eigi rétt hjá allt að 8 lífeyrissjóðum. Margir launþegar hafa í reynd takmarkaða hugmynd um hvar þeir eigi rétt. Sömuleiðis er á dagskrá að skrá rétt hvers og eins sjóðfélaga, og hefur komið í ljós að upplýsingar um það atriði eru alls ekki alls staðar aðgengilegar. Fjmrn. mun, eftir því sem tök eru á, greiða fyrir því að 17 manna nefndin fái upplýsingar um þessi atriði. Fyrir tilmæli 17 manna nefndarinnar er nú unnið að athugun á reglugerðum allra lífeyrissjóða með það fyrir augum að fá glögga mynd af þeim réttindum sem hver og einn sjóður veitir sjóðfélögum sínum. Er þar tekin til athugunar réttur til lífeyris og til lánafyrirgreiðslu.
Nú er unnið að samningu frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóða, en engin ákvæði er að finna í núgildandi lögum um hvað lífeyrissjóður sé í raun og veru. Hafa afskipti fjmrn. til þessa fyrst og fremst byggst á ákvæðum skattalaga um frádráttarbærni iðgjalda. Fyrirhugaðri löggjöf er ætlað að vera almennur rammi um starfsemi lífeyrissjóða í Íslandi.
Í löggjöfinni verða almenn ákvæði um ýmsa félagslega þætti varðandi lífeyrissjóði, svo sem um ábyrgð á skuldbindingum þeirra, stjórn þeirra, endurskoðun og ársreikninga. Þá er gert ráð fyrir að í löggjöfinni verði allítarleg ákvæði um skráningu lífeyrissjóða og eftirlit með starfsemi þeirra og fjárhagslegri stöðu. Er þessum þáttum öllum ætlað að ná til allra lífeyrissjóða í landinu þannig að þeir sjóðir einir sem fullnægja vissum lágmarkskröfum, teljist til lífeyrissjóða. Að auki er hugmyndin sú, að í löggjöfinni verði sérákvæði um þá lífeyrissjóði sem fullnægja vilja þeim skilyrðum að greiðslur til þeirra teljist til skyldutryggingar lífeyrisréttinda. Um þessa sjóði yrðu auk almennu ákvæðanna sett sérákvæði um lágmarksiðgjöld og lágmarkslífeyrisrétt. Með þessu móti veittu lögin rúm fyrir tvenns konar lífeyrissjóði í landinu: annars vegar sjóði, sem í sameiningu mynduðu samfellt kerfi lágmarkslífeyrisréttinda er af skylduaðild leiddi, og hins vegar sjóði, sem starfað gætu til viðbótar skyldutryggingarsjóðunum og veitt sérstakan viðbótarlífeyrisrétt. Loks er gert ráð fyrir að í löggjöfinni verði sérákvæði um aðlögun þeirra lífeyrissjóða, sem nú starfa í landinu, að reglum hennar.
Þau atriði, sem hér að framan hafa verið nefnd, eru öll forsenda þess, að unnt verði að koma á samfelldu lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn. Lífeyrissjóðirnir, sem núna eru í landinu, eru stofnaðir með mjög mismunandi hætti og á mismunandi tíma. Samræming á starfsemi sjóðanna er sífellt að aukast, að hluta til fyrir atbeina löggjafarvaldsins og að hluta til er hún að þakka víðtæku samstarfi sem tekist hefur milli lífeyrissjóðanna innbyrðis.
17 manna nefndin mun halda áfram störfum enn um sinn að þeim verkefnum sem nefndinni voru falin í upphafi. Hins vegar er ekki ólíklegt að innan skamms verði vinna að stefnumótun í þessum málum endurskoðuð. Það samræmingarstarf sem átt hefur sér stað og er forsenda þess, að unnt verði að koma á samfelldu lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn, nægir ekki eitt sér, heldur þarf bersýnilega að gera stórátak til að jafna lífeyrisrétt landsmanna, sem er ákaflega mismunandi. Þar er um að ræða átak sem kosta mun mjög verulega fjármuni. Þessa fjármuni verður einhvers staðar að taka, annaðhvort af fé skattborgara eða með sérstökum iðgjaldagreiðslum, sem mundu þá væntanlega hækka verulega. En þessi pólitíska ákvörðun hefur enn ekki verið tekin og fram að þessu hefur fyrst og fremst tímanum verið varið til ýmiss konar undirbúningsstarfa sem nauðsynleg eru til að unnt sé að ná tökum á þessu stóra máli.
Eins og kunnugt er hafa verið gefin fyrirheit um það, m. a. við gerð kjarasamninga á s. l. hausti, að nýtt samræmt kerfi í lífeyrismálum verði tekið upp á árinu 1982. Er því óhjákvæmilegt að vel verði unnið að þessum málum á næstu mánuðum og stefnumótun hraðað. Endurskoðun lífeyrismála er eitt allra stærsta og mikilvægasta verkefnið sem Alþingi og ríkisstj. stendur frammi fyrir. Án þess að orðlengja það mál frekar hér í fyrirspurnatíma vona ég að betra færi gefist til að ræða um þessi mál við annað tækifæri en í fsp.-tíma.
Staðreyndin er sú, að fjöldamörg þeirra atriða, sem taka þarf afstöðu til, eru lítt rædd og hafa ekki hlotið þá meðferð í umræðum stjórnmálamanna sem vera þyrfti. Skoðanaskipti hafa ekki verið næg, menn hafa sett fram ákveðin markmið, en hvernig ætti að leysa vandann, hvar ætti að afla fjárins og hver ætti að borga brúsann og með hvaða hætti það yrði gert hefur minna verið rætt. Ég held sem sagt að fsp., sem hér hefur verið borin fram, sé sannarlega ekki borin fram að ástæðulausu. Við verðum að vænta þess, að þessum undirbúningsstörfum verði hraðað, þar sem ráð hefur verið fyrir því gert að samræmt kerfi í lífeyrismálum verði tekið upp á næsta ári.