31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3210 í B-deild Alþingistíðinda. (3340)

378. mál, gjaldskrárhækkanir B-hluta fyrirtækja

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. sagði áðan að það væru engin áform uppi um að falsa vísitöluna með þeim hætti sem hv. þm. Geir Hallgrímsson hefði verði að ýja að áðan. Þessi ummæli gefa tilefni, að ég held, til þess að spyrja hæstv. ráðh. um hvort uppi séu áform um að falsa vísitöluna með einhverjum öðrum hætti en hv. þm. Geir Hallgrímsson var að tala um. Það er full ástæða til þess að fá það upplýst hér, hvort hæstv. fjmrh. eða hæstv. ríkisstj. í heild hefur uppi áform um að falsa vísitöluna með einhverjum hætti öðrum en hv. þm. Geir Hallgrímsson var að tala um. Ummæli hæstv. fjmrh. gefa fyllilega tilefni til þess, að spurt sé um þetta, og svars er óskað af hálfu hæstv. ráðh. um hvort einhver áform séu uppi af hálfu ríkisstj. um að falsa vísitöluna. Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. svari því skýrt og skorinort hér, hvort einhver slík áform séu uppi, ef ekki í þeim anda sem hv. þm. Geir Hallgrímsson var að tala um, þá einhverjum öðrum eða alls ekki. Við þessu er óskað svars.