31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3211 í B-deild Alþingistíðinda. (3344)
378. mál, gjaldskrárhækkanir B-hluta fyrirtækja
Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Þessar umr. hafa nú aðeins vikið frá fsp., a. m. k. í þröngum skilningi. En það er eðlilegt að kauprán Alþb. beri hér á góma. Það er staðreynd sem ekki verður haggað, að þrátt fyrir kauprán Alþb., svo að ég noti þeirra eigin orð, er ljóst að verðbólgan verður 50% á þessu ári nema fleiri efnahagsaðgerðir komi til. Það hugmyndaflug, sem hæstv. ríkisstj. hefur um slíkar aðgerðir, virðist vera af svo skornum skammti að aðeins er ráðist á launin. Búast má því við að það verði gert aftur í vor, ef á annað borð verður efnt til nýrra ráðstafana.
Þetta nefni ég hér til að benda rækilega á hvaða áhrif þetta hefur á opinberar stofnanir og þar með á þau B-hluta fyrirtæki sem fyrirspurnir mínar vörðuðu. Ef verðbólgan verður 50% er alveg ljóst að grípa verður til niðurskurðar. Hæstv. fjmrh. lét setja brbl. um síðustu áramót, þar sem sagt var að brýna nauðsyn bæri til þess að fá heimild til þess að skera niður og fresta framkvæmdum. Þess vegna er eðlilegt að hæstv. fjmrh. svari því, hvort hann ætli að beita þessum ákvæðum svo og ákvæðum í fjárlögum um niðurskurð og heimild, sem þar er, til þess að opinberu fyrirtækin geti þannig það sem eftir er ársins efnt til einhvers konar niðurskurðar, — eða er það ætlun hæstv. ríkisstj. að efna til efnahagsráðstafana og þá hverra? Þetta er spurning dagsins.