31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3212 í B-deild Alþingistíðinda. (3347)
216. mál, saltverksmiðja á Reykjanesi
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykn. hefur spurt hér um það, hvenær vænta megi ákvarðana varðandi saltverksmiðju svonefnda á Reykjanesi. Í aðfararorðum sínum áðan minnti hann á upphaf þessa máls. Ég ætla ekki að rekja það hér, heldur greina frá núverandi stöðu málsins í framhaldi af því sem hann gat um, að undirbúningsfélagið, sem starfað hefur til þessa frá því að það var sett á fót samkv. lögunum frá 1976, skilaði það um tillögum með skýrslu í aprílmánuði 1980 að afla yrði heimildar um þátttöku ríkissjóðs í byggingu og rekstri 60 þús. tonna saltverksmiðju á Reykjanesi.
Þá nokkru áður hafði iðnrh. skipað nefnd til að meta niðurstöður af þessum tilraunarekstri. Þessi nefnd hefur verið kennd við saltvinnsluna, kölluð saltvinnslunefnd.
Hún fékk þessa tillögu til umsagnar. Niðurstaða hennar varð sú, að ótímabært væri þá — í fyrravor — að taka ákvörðun um málið á Alþingi að svo stöddu og færði rök fyrir því að skera þyrfti úr um ýmsa þætti nánar en tekist hafði áður en málið yrði lagt fyrir Alþingi. Iðnrn. fór að tillögum nefndarinnar að þessu leyti og var málið ekki lagt fyrir síðasta þing.
Um miðjan okt. s. l. sendi saltvinnslunefndin frá sér áfangaskýrslu til rn. Taldi hún ýmsar upplýsingar skorta til þess að unnt væri að dæma um hagkvæmni saltverksmiðju á Reykjanesi. Engar söltunartilraunir höfðu verið gerðar þá síðan í maímánuði og engar frekari niðurstöður fengist um það grundvallaratriði, hvernig Reykjanessalt reyndist í samanburði við innflutt salt. Þá var ýmislegt óljóst varðandi tæknilega þætti framleiðslunnar.
Undirbúningsfélagið leitaðist við að bæta úr þeim annmörkum, sem þarna voru taldir vera á, og í byrjun febrúar s. l. bárust niðurstöður af frekari söltunartilraunum, skýrslur um tilraunir á kalsíumklóríðframleiðslu o. fl. Stofn- og rekstrarkostnaðaráætlun fyrir 8000 tonna saltverksmiðju lá þá fyrir, en undirbúningsfélagið hafði gert tillögur um að fyrsti áfangi saltverksmiðju yrði 8000 tonna verksmiðja sem byggði á annarri grundvallartækni en hingað til hefur verið til umræðu í sambandi við stærri verksmiðju.
Saltvinnslunefndin er þessa daga að ganga frá áliti sem væntanlega verður hægt að kunngera innan skamms, en ég hef fengið meginniðurstöður nefndarinnar, sem hún setur fram í væntanlegu áliti sínu, og ætlar að kynna hér örfá atriði úr þeim niðurstöðum.
Nefndin hefur yfirfarið og endurmetið áætlun um byggingu 60 þús. tonna saltverksmiðju. Nýjar upplýsingar um áætlaðan stofnkostnað véla og tækja í verksmiðju, niðurstöður söltunartilrauna og breytingar á tæknilegum forsendum hafa verið teknar inn í þetta endurmat nefndarinnar. Í meginniðurstöðum hennar segir m. a.:
Tæknilega er ekkert því til fyrirstöðu að hefja framleiðslu á fisksalti hér á landi í stórum stíl. Fastmótaðar hugmyndir eru komnar fram um tilhögun kalí- og kalsíumklóríðvinnslunnar, en enn hefur sú vinnslurás ekki verið fullreynd í tilraunavinnslu. Söltunartilraunir, sem gerðar hafa verið, sýna að ekki er marktækur munur á því, hvernig saltfiskur flokkast, hvort heldur notað er svonefnt Reykjanessalt eða innflutt salt.
Veruleg óvissa ríkir enn um kostnað við borholuframkvæmdir og munar um 1200 millj. kr. — gkr. væntanlega — í stofnkostnaði verksmiðjunnar hvort bora þarf tvær eða fimm nýjar holur fyrir endanlega verksmiðju eða verksmiðju af þeirri stærð sem um hafði verið rætt. Borun einnar viðbótarholu mundi gera það að verkum að hægt yrði að segja til um stofnkostnað verksmiðjunnar með mun meiri nákvæmni en ella.
Það þarf ekki að lýsa því fyrir hv. alþm., hvaða þýðingu það hefur og hvaða óvissa getur verið í sambandi við öflun gufu, en ég er þar með ekki með neinar hrakspár varðandi jarðgufusvæðið á Reykjanesi sem hefur gefið góða raun það sem reynt er til þessa.
Athuganir á vegum saltvinnslunefndar benda til þess, að arðsemi 60 þús. tonna saltverksmiðju muni að líkindum vera minni en fyrri áætlanir undirbúningsfélagsins gefa til kynna. Því hefur nefndin tekið til athugunar byggingu minni verksmiðju sem gæti framleitt um 40 þús. tonn af fisksalti, um 9 þús. tonn af kalsíumklóríði og 4 þús. tonn af kalí, ásamt klórafurðum o. fl. Niðurstöður þeirra athugana benda til að sú verksmiðja falli betur að markaðsaðstæðum, þ. e. 40 þús. tonna verksmiðja, og að hún gæti staðið sem sjálfstæð rekstrareining.
Auk fyrrgreindra áætlana hefur Undirbúningsfélag saltverksmiðju á Reykjanesi gert athuganir á byggingu 8 þús. tonna saltverksmiðju, eins og áður er getið, sem nýtir orku þeirrar borholu sem fyrir er á svæðinu að fullu, en styðst við aðra grundvallartækni. Slík verksmiðja gæfi möguleika á að vinna að markaðsþróun í stórum stíl á næstunni áður en stærri verksmiðja tæki til starfa svo og að gerðar verði vinnsluprófanir frekar en orðið er með kalí og kalsíumklóríð.
Í heild eru niðurstöður þær, að líklegir afkastavextir saltverksmiðju liggi á bilinu 7–10%. Ég vænti að menn sjái af því, að nefndin metur að þar sé alveg viðunandi arðsemi á ferðinni, miðað við það sem gerist hér í fyrirtækjum.
Ljóst er að bygging og rekstur saltverksmiðju á Reykjanesi yrði ákveðin lyftistöng fyrir annan iðnað í landinu. Í því sambandi hefur m. a. verið fjallað um að hugsanlegt væri að smíða tækjabúnað saltverksmiðju að verulegum hluta innanlands.
Þá hefur verið fjallað nokkuð um framtíðarverkefni í tengslum við rekstur saltverksmiðju. Meðal annars er nefndur sá möguleiki að framleiða natríumklórat hér á landi, en slík framleiðsla nýtir afurðir saltverksmiðju sem hráefni. Iðnrn. hefur áform um að athuga alveg sérstaklega þegar á þessu ári vinnslumöguleika og sölumöguleika á natríumklórati.
Reykjanessaltið svonefnda er að hluta til frábrugðið innfluttu salti, t. d. að því leyti að í því eru engir roðagerlar sem valda skemmdum í saltfiski sem kunnugt er. Nefndin telur að athuga þurfi sérstaklega hvort unnt sé að nýta þá sérstöðu t. d. með útflutningi á saltfiski í neytendapakkningum.
Að lokum leggur nefndin áherslu á að framleiðslukostnaður saltverksmiðjunnar er að stórum hluta fastur kostnaður og því mikilvægt að eigið fjármagn í hugsanlegri verksmiðju verði hátt hlutfall af stofnkostnaði.
Verði ákvörðun tekin um byggingu saltverksmiðju leggur nefndin til að framhaldið verði eftirfarandi:
1) Byggð verði 8 þús. tonna saltverksmiðja til að vinna að markaðsþróun með fisksalt í stórum stíl.
2) Núverandi tilraunaverksmiðja verði nýtt til þess að gera vinnslutilraunir með kalíframleiðslu og framleiðslu á fínsalti.
3) Boruð verði ein vinnsluhola á svæðinu veturinn 1981–1982 og aukið við rannsóknir á jarðhitasvæðinu.
4) Undirbúin verði verkhönnun á 40 þús. tonna verksmiðju og tilboða aflað í sölu á afurðum.
Ég hef reynt að fylgjast með störfum þessarar nefndar og ýta á eftir þeim og þó ekki meira en svo að nefndin fengi ráðrúm til að vanda vinnubrögð sín svo sem nauðsynlegt er við undirbúning fyrirtækis sem þessa. Ég hef látið undirbúa drög að frv. til l. um sjóefnavinnslu á Reykjanesi sem ég geri ráð fyrir að leggja fram í ríkisstj. alveg á næstunni, þar sem ríkisstj. verði heimilað að beita sér fyrir stofnun hlutafélags sem reisi og reki sjóefnavinnslu á Reykjanesi til vinnslu á saltefnum og öðrum efnum sem til falla við þá vinnslu. Ég tel ráðlegt að einnig verði þá veitt heimild slíku fyrirtæki til að beita sér fyrir undirbúningi að framleiðslu á frekari afurðum sjóefnavinnslu, svo sem natríumklórati sem ég gat um áðan, einnig að reisa og reka raforkuver ef hentugt þætti í tengslum við framleiðsluna og jarðgufuöflunina.
Herra forseti. Ég hef senn lokið máli mínu. Fjárhagsskuldbindingar, sem taka þyrfti á á þessu ári og í tengslum við væntanlega lagasetningu, varða 8 þús. tonna áfangann, en síðar yrði þá aflað heimildar varðandi stærri áfanga, 40 þús. tonn eða svo, þegar betur væru ljósar forsendur fyrir honum, sem ég vænti sannarlega að reynist jákvæðar.
Ég vil að endingu segja að ég er í engum vafa um að sjóefnavinnsla á Reykjanesi er iðnaður sem við eigum að ráðast í og getur orðið arðbær. Fyrsta skrefið, auk umrædds 8 þús. tonna byrjunaráfanga, gæti orðið, eins og ég gef greint frá, 40 þús. tonna saltverksmiðja, en áætlað er að hún kosti um 1400 millj, kr. á núgildandi verðlagi og framleiðsluverðmæti er áætlað rúmar 30 millj. kr. á ári eða 3 milljarðar gkr. á ári. Auk framleiðslu á fisksalti yrðu framleidd þar 9 þús. tonn af kalsíumklóriði til útflutnings og um 4 þús. tonn af kalí, sem nýst gætu t. d. hjá Áburðarverksmiðju ríkisins, auk fleiri efna.
Ég vænti þess, að miðað við að frv. verði hér lagt fram svo sem ég hef fyrirhugað veiti Alþingi heimild til þátttöku ríkisins í slíku fyrirtæki og að bygging og rekstur sjóefnavinnslu í áföngum verði mikil lyftistöng í atvinnumálum Suðurnesja og hafi jafnframt víðtæk áhrif á annan iðnað í landinu.