31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3216 í B-deild Alþingistíðinda. (3350)

216. mál, saltverksmiðja á Reykjanesi

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Það er út af fyrir sig ekki ástæða til að bæta hér miklu við. Ég vænti góðrar samvinnu við hv. þm. Reykn. um framgang þessa máls og aðra hv. alþm., því að hér er vissulega um að ræða efni sem skiptir miklu fyrir þetta svæði. Það er búið að vera lengi á döfinni og segir okkur raunar nokkuð um hvað undirbúningstími ýmissa iðnþróunarmála getur verið langur, þó að ég sé ekki þar með að segja að hugsanlega hefði ekki mátt hraða á einhverjum stigum athugun þessara mála. En það liggur sem sagt áratugi aftur í tímann frá því farið var að kanna Reykjanessvæðið og hugsanlega hagnýtingu á jarðsjónum sem þar er að finna og sem hefur að geyma ýmis verðmæt sölt.

Ég vildi upplýsa til viðbótar, vegna þess að talað hefur verið um saltvinnslunefnd og vitnað í mín orð, að mér láðist að geta þess, hverjir hafa starfað í þeirri nefnd. Ég tel eðlilegt að það komi hér fram. Þar er formaður Finnbogi Jónsson verkfræðingur og fulltrúi í iðnrn., Gamalíel Sveinsson viðskiptafræðingur, Sverrir Þórhallsson efnaverkfræðingur og Þorvaldur Búason eðlisfræðingur. Þessir ágætu sérfræðingar hafa unnið mjög ötullega og í samvinnu við stjórn og framkvæmdastjóra Undirbúningsfélags saltverksmiðju á Reykjanesi að undanförnu allt s. l. ár til að reyna að komast þarna að marktækri niðurstöðu. Ég tel að þeir eigi ásamt forustu undirbúningsfélagsins, þar sem stjórnarformaður er Guðmundur Einarsson verkfræðingur, en framkvæmdastjóri Finnbogi Björnsson, — að allir þessir aðilar eigi þakkir skildar fyrir sitt framlag.

Ég vil svo geta þess að lokum, að einn þátturinn í þessari sjóefnavinnslu í framtíðinni gæti orðið framleiðsla á magnesíummálmi. Að þeim þætti máls er unnið sérstaklega að beiðni rn. af Iðntæknistofnun Íslands. Er að vænta grg. frá þeirri stofnun um frumathugun varðandi magnesíumframleiðslu nú á næstunni.

Vegna þess að hv. 2. þm. Reykn. taldi æskilegt að almenningur fengi vitneskju um hvað væri að gerast, þá vil ég geta þess, að grg. og skýrslur þeirrar nefndar, sem hér er vitnað til, munu verða gefnar út þannig að það sé hægt að dreifa þeim og þær verði aðgengilegar hv. alþm. sem öðrum sem áhuga hafa á þessu máli.