01.04.1981
Efri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3239 í B-deild Alþingistíðinda. (3368)

11. mál, fiskvinnsluskóli

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Sjútvn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um breyting á lögum nr. 55 15. apríl 1971, sbr. lög nr. 57 21. apríl 1974, um fiskvinnsluskóla, 11. mál. Í aths. við frv. segir m. a.:

„Meginmarkmið með flutningi þessa frv., ef að lögum verður, er að taka af tvímæli um réttarstöðu fiskiðnaðarmanna, er þeir hafa lokið prófi frá Fiskvinnsluskólanum, og setja skýrari ákvæði um lokapróf, verklegt próf, svo og starfsþjálfun að prófi loknu. Jafnframt er stefnt að því að afmarka betur en nú er gert námskeiðshald fyrir matsmenn, svo og endurmenntun þeirra.“

Sjútvn. var sammála um að gera þá breytingu á frv., sem kemur fram á þskj. 567, en það er að skólanefnd Fiskvinnsluskólans skuli skipuð sex mönnum í stað fimm. Það er m. ö. o. lagt til að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins tilnefni einn mann í skólanefnd. Að öðru leyti verði skólanefndin skipuð einum manni eftir tilnefningu Fiskifélags Íslands, einum eftir tilnefningu Fiskiðnar, fagfélags fiskiðnaðarins, og einum úr hópi reglulegra nemenda skólans. Tveir nefndarmenn skulu skipaðir án tilnefningar. Annar skal vera frá Framleiðslueftirliti sjávarafurða, en hinn úr röðum framleiðenda.

Undir þetta nál. skrifa allir nm. sjútvn., þeir Stefán Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Geir Gunnarsson, Gunnar Thoroddsen, Guðmundur Karlsson, Egill Jónsson og Kjartan Jóhannsson.