01.04.1981
Neðri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3309 í B-deild Alþingistíðinda. (3402)
261. mál, jafnrétti kvenna og karla
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að gera hér að umræðuefni forréttindi 1. þm. Reykn., sem 8. landsk. þm. telur rétt að verði viðhaldið, að mér skilst út á sögulega hefð. En vissulega hefði það þó getað verið nógu gaman, ef 8. landsk. þm. hefði verið hér við, að ræða slík forréttindi.
Aftur á móti ætla ég að reyna að nálgast þetta umræðuefni út frá því sjónarhorni, hvort nauðsyn sé á neyðarúrræðum í jafnréttismálum vegna neyðarástands, og vil vísa til grg. flm. þar sem segir á bls. 3, með leyfi hæstv. forseta:
„Sumir telja þó að miðað við fyrri reynslu sé slíkt ekki hægt nema konum séu sköpuð ákveðin tímabundin forréttindi með lögum. Verður að telja það neyðarúrræði, þó að reynslan sýni að það sé réttlætanlegt.“
Er neyðarástand í þessum málum hér á landi? Því aðeins er réttlætanlegt að grípa til neyðarúrræða að neyðarástand sé ríkjandi. Eru viðhorf íslensku þjóðarinnar í þessum málum á svo alvarlegu stigi að um neyðarástand sé að ræða?
Það var kosinn forseti á seinasta ári, og það var kona sem var kosin forseti. Ekki finnst mér að það mæli beinlínis með því, að hægt sé að tala um að neyðarástand sé ríkjandi og að neyðarúrræði skuli þess vegna upp tekin.
Þá er rétt að vekja athygli á öðru, sem hér er greint frá á síðu 2, með leyfi hæstv. forseta:
„Konur hafa á síðustu árum í vaxandi mæli farið út á vinnumarkaðinn og samhliða hefur menntun kvenna verulega aukist. Hins vegar er ljóst að konur leggja á sig tvöfalt vinnuálag þegar þær jafnhliða vinna að verðmætasköpun í atvinnulífinu.“
Jafnhliða heimilisstörfum, hygg ég að eigi að standa þarna. Tvöfalt vinnuálag, vissulega leggja þær mikið á sig, en tvöfalt vinnuálag, tvöfalt á við hverja? (ÁG: Þá sem ekki vinna heimilisstörfin.) Þá sem ekki vinna heimilisstörfin, þ. e. karlpeninginn, skilst mér. Nú vaknar sú spurning: Þola íslenskir karlmenn tvöfalt vinnuálag við það sem þeir hafa í dag? Ég segi nei, það er alveg pottþétt, þeir þola ekki tvöfalt vinnuálag við það sem þeir hafa í dag. Hvað hef ég fyrir mér í því? Jú, meðalaldur karlmanna á Íslandi er lægri en kvenna. Það yrði hrun í stofninum ef það kæmi tvöfalt vinnuálag ofan á þetta. Þið hlæið. Ég er ekki viss um að ykkur yrði svona skemmt ef þetta yrði tekið upp í fyllstu alvöru, að tvöfalda á ykkur vinnuálagið.
Sú spurning vaknar hvort 2. gr., sem fyrst og fremst er innihald þessa frv., leysi það mál sem er ástæðan fyrir því að frv. er sett fram. Ástæðuna fyrir því, að frv. er sett fram, tel ég vera þá, að hv. 10 landsk. þm. finnist að gengið hafi verið á rétt kvenna í embættisveitingum af ráðherrum þessa lands nú fyrir stuttu. Ég hlustaði á málflutning hennar þegar hún ræddi þessi mál í fyrirspurnarþætti eða utan dagskrár hér á þinginu, og ég verð að segja það alveg hreint og ákveðið, að mér fannst hún þá rökstyðja sitt mál mjög vel og hafa vissulega ríka ástæðu til þess að bera fram kvörtun í því máli. En spurningin er: Tryggir þetta atriði, 2. gr., að slíkt komi ekki fyrir aftur? Ég segi nei. Hvers vegna? Vegna þess að hér stendur „að öðru jöfnu“— og hver ætti að meta það? Atvinnurekendur eða ráðh. ættu að meta hvað er jafnt í þessum efnum, ekki satt? Það liggur alveg ljóst fyrir. Greinin tryggir ekki það sem verið er að leita eftir. Aftur á móti blasir það við, að verði atriði sem þetta sett í lög mun það dynja á íslenskum konum, ef þær fá embætti í samkeppni við karlmenn, að þær hafi fengið það út á það að þær væru konur. Og ég hygg að enginn, hvorki flm. né aðrir, telji að það hafi verið tilgangurinn eða að slíkt sé æskilegt.
Ég er sammála því, að það er margt sem á eftir að breytast til betri vegar á þessu sviði. En ég hygg að hæstv. forseti Íslands hafi metið það rétt, þegar hún gat þess að menntunin væri þungamiðjan í þeirri breytingu sem mundi eiga sér stað og þyrfti að eiga sér stað. Þar er þróunin frekar hröð að mínu mati, æskilega hröð, og ég held að í beinu framhaldi af því þurfi að auka mjög starfsfræðslu m. a. í skólum.
Hitt atriðið, sem rétt er að horfa á líka, er spurningin sem kom hér fram, hvort það þyrfti að eiga sér stað hugarfarsbreyting, það þyrfti að breyta viðhorfum. Ég held, að Íslendingar séu jafnréttissinnar í þessum efnum, og ég held að sú jafnréttisvitund nái aftur til landnámsaldar. Hver og einn, sem hefur lesið Íslendingasögurnar, gerir sér grein fyrir því, að það hefur verið ákaflega misjafnt og mest farið eftir einstaklingum, hvort það væru konurnar eða mennirnir sem höfðu húsbóndavaldið á heimilum gegnum aldirnar. Engu að síður hygg ég að það væri æskilegt að nota fjölmiðla til að kynna störf kvenna, þ. e. þegar konur eru að ryðja sér braut í nýjum starfsgreinum komi fjölmiðlarnir til skjalanna, geri meira af því að kynna störf kvennanna og benda á það, að þessi þróun er að eiga sér stað, öðrum konum til hvatningar og einnig til þess að eyða neikvæðum viðhorfum gagnvart því að konur hasli sér völl í sem flestum starfsgreinum. En ég vil undirstrika eitt, og því vona ég líka að hv. flm. geri sér grein fyrir, að við breytum ekki viðhorfum með lögum. Tíminn vinnur með okkur í þessu máli, hann vinnur hratt, og ég vænti þess að menn láti ekki reiði vegna embættisveitinga villa sér sýn í þeim efnum.