05.11.1980
Neðri deild: 12. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (342)
43. mál, Orlofssjóður aldraðra
Flm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Frv. þetta, sem er á þskj. 45, er ekki mikið að vöxtum, þó svo að það geti skipt nokkra einstaklinga talsverðu máli. Eins og fram kemur í heiti frv. er hér fjallað um Orlofssjóð aldraðra. Markmiðið með flutningi frv. er að benda á leið til þess að auðvelda öldruðu fólki að njóta þeirrar tilbreytingar sem orlofsdvöl getur veitt. Staðreyndin er sú, að menn eru ekki jafnt settir í okkar þjóðfélagi í dag hvað varðar töku orlofs. Margt af því gamla fólki, sem á sína starfsævi að baki, á engan kost á að njóta orlofsdvalar með sambærilegum hætti og starfandi fólk. Á síðari árum hefur ýmislegt verið gert til þess að ráða bót á þessu, bæði af hálfu sveitarfélaga, áhugamannafélaga og jafnvel ferðaskrifstofa. Staðreyndin er samt sem áður sú, að margt af gamla fólkinu á Íslandi á þess engan kost að létta sér upp, bregða sér af bæ og njóta orlofsdvalar eins og aðrir.
Hugmyndin í frv. þessu er að á þessum málum skuli tekið þannig, að stofnaður verði og geymdur í vörslu félmrn. sérstakur sjóður er nefnist Orlofssjóður aldraðra. Hlutverk hans skal vera að styðja með framlögum, lánum og annarri fjárhagslegri fyrirgreiðslu orlofs- og sumardvalarstarfsemi fyrir aldrað fólk, sem skipulögð verði af sveitarfélögum, félögum, fyrirtækjum eða öðrum þeim sem félmrn. viðurkennir, í öðru lagi að styðja efnalítið aldrað fólk til þátttöku í slíkri orlofsstarfsemi og í þriðja lagi hugsanlega að reka orlofsbúðir fyrir aldrað fólk. Segir í frvgr. að menntmrn. skuli í því sambandi leggja sjóðnum til yfir sumartímann endurgjaldslaus afnot af húsnæði, vélum og tækjum a.m.k. tveggja heimavistarskóla samkv. nánara samkomulagi og ríkissjóður greiða laun starfsfólks og þjónustufólks, en Orlofssjóður aldraðra annan rekstrarkostnað.
Mál þessi komu m.a. til umr. á Alþ. í fyrra vegna þáltill. sem hv. þm. Helgi Seljan flutti þá um hagnýtingu á heimavistarskólum og öðrum slíkum skólastofnunum. Þá benti ég m.a. á að margir af þessum skólum, sem ekki eru starfræktir yfir sumartímann, ekki heldur í þágu veitinga- eða gistihúsareksturs, væru ákaflega vel búnir að húsnæði, vélum og tækjum og stæðu auðir. Ég get t.d. nefnt skóla, sem þetta á við, í mínu kjördæmi, og slíkir skólar munu finnast í öllum kjördæmum landsins.
Mjög vel gæti komið til greina að einum eða tveimur slíkum skólum yrði, í tilraunaskyni fyrst framan af, breytt í sumarbúðir eða orlofsheimili fyrir aldrað fólk, sem ekki þarf á neinni sérstakri hjúkrunaraðstoð að halda, hefur ferlivist og hefur gaman af því að bregða sér af bæ og þarf á því að halda að breyta um umhverfi eins og allt annað fólk í þessu landi. Það þarf ekki endilega að vera, að slík starfsemi kosti mikið fé eða þá að rétt sé að láta rekstur hennar í hendurnar á slíkum orlofssjóði eins og hér er gerð till. um. Aðatatriði málsins er að hugleitt sé hvort með þeim hætti mætti taka á vanda gamla fólksins án mjög mikilla fjárútláta fyrir ríkissjóð.
Þá er það einnig vitað, að í málefnum aldraðra ríkir sérstakt neyðarástand í þessu landi. Það er fjölmargt aldrað fólk sem býr við ótrúlega lök lífsskilyrði og á hvergi höfði sínu að halla. Ég býst við því, að sérhver okkar, þessara 60 þm. sem eiga sæti á Alþ., hafi á síðustu mánuðum þurft að hafa afskipti af eða reyna að greiða fyrir gömlu fólki sem býr við slíkar aðstæður að orð fá ekki lýst. Ýmsir þm. í þessari hv. deild eru þeim málum vel kunnugir. Þarna ríkir sérstakt neyðarástand. Frv. eins og hér er um að ræða getur að sjálfsögðu ekki leyst neyðarástand þessa gamla fólks sem hírist sjúkt og fátækt í húshræjum hér í Reykjavík og í grennd sem ekki eru manneskjum bjóðandi. Til þess að leysa vandamál þess fólks þarf miklu meira átak en gert er ráð fyrir í frv. þessu. En hitt er eigi áð síður staðreynd, að á mörgum einkaheimilum í borginni og víðs vegar um landið er fullorðið fólk, gamalt fólk, sem hefur lokið starfsævi sinni, en er ekki tiltakanlega sjúkt eða með slaka heilsu og býr hjá vinum og vandamönnum.
Þó svo að þetta fólk þurfi ekki mikillar aðhlynningar við, þá vill það oft verða svo, að það, að þetta fólk skuli vera á heimilum ættingja sinna, hefur vissar skyldur í för með sér fyrir ættingjana og er nokkuð bindandi. Margt af þessu gamla fólki er þannig skapi farið, að það er ákaflega viðkvæmt fyrir því, ef því finnst að það sé farið að liggja upp á vandafólki sínu eða vera því fjötur um fót. Það er fljótt að finna fyrir þessu og tekur það ákaflega nærri sér, ef því finnst að það standi í veginum fyrir börnum sínum eða öðrum vinum og vandamönnum vegna þess að það þurfi að hafa það til vistunar.
Aðgerðir af svipuðu tagi og frv. þetta gerir ráð fyrir, þ.e. að ríkissjóður stuðli fyrir sitt leyti að því, að gamalt fólk, sem hefur ferlivist og þarf ekki sérstakrar aðhlynningar við, geti notið þeirrar tilbreytingar sem í orlofsdvöl felst, mundu létta þennan vanda gamla fólksins, sem býr hjá vinum og vandamönnum, og enn fremur þann vanda vina og vandamanna, sem vilja vista gamla fólkið hjá sér, að vera bundið heima eiginlega allt árið, án þess að mega víkja frá. Með því að greiða fyrir því, að gamalt fólk geti farið í sumardvöl eða notið orlofs eins og aðrir landsmenn, er í senn verið að leysa vanda þess gamla fólks, sem á starfsævina að baki og þarfnast tilbreytingar og jafnstöðu á við aðra þegna þessa þjóðfélags hvað orlofsmálin varðar, og þeirra fjölmörgu einstaklinga, sem hafa gamalt fólk í vistun hjá sér, en eru meira og minna bundnir allt árið vegna þess að gamla fólkinu gefst lítið sem ekkert tækifæri til að bregða sér af bæ.
Í 2. gr. er síðan lagt til að tekjur Orlofssjóðs aldraðra eigi að vera árlegt framlag úr ríkissjóði, eins og það kann að vera ákveðið í fjárlögum hverju sinni. Það er sem sé ekki lagt til að framlag ríkisins verði bundið við einhverja hlutfallstölu eða einhverja upphæð, heldur að það verði ákveðið af Alþ. hverju sinni, og auk þess hafi sjóðurinn ýmsar aðrar tekjur sem til kunna að falla, svo sem vaxtatekjur, fjárframlög og annað slíkt.
Í 3. gr. er ákveðið að ráðh. setji með reglugerð nánari fyrirmæli um starfsemi sjóðsins, og er félmrh. raunar í sjálfsvald sett hvernig fyrirkomulag á þessum sjóði verður, þ. á m. hversu mikils umfangs starfsemin krefst. Það fer að sjálfsögðu eftir því í fyrsta lagi, hvað Alþ. rausnast til að veita af fé til þessarar starfsemi, og í öðru lagi, hvaða umfang félmrh. og félmrn. teldu eðlilegt að slík starfsemi hefði.
Við flm. þessa frv., sem auk mín er hv. þm. Magnús H. Magnússon, teljum eðlilegt að slík atriði séu frekar ákvörðuð af framkvæmdavaldinu, þ.e. hæstv. félmrh., en að Alþ. sé að sefa fyrirmæli í þessu sambandi.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um þetta mál. Það er ekki stórt miðað við ýmis önnur þau mál, sem við fjöllum um hér á Alþ., og sú hugmynd, sem að baki býr, er einföld og ljós. Við flm. frv. einskorðum okkur ekki við að framkvæmd þeirrar hugmyndar þurfi endilega að vera sú hin sama og lagt er til í frv. Meginatriði málsins er að hugmyndin komist á framfæri og til framkvæmda, að öllum þegnum þessa þjóðfélags sé tryggður jafn orlofsréttur, án tillits til aldurs, og jafnframt að menn geri sér ljóst að það er ekki nægilegt að búa bara til félagsmálapakka fyrir það fólk, sem er fullvinnandi og hefur bæði óskerta starfsorku og fullar aflatekjur. Við megum ekki gleyma þeim borgurum okkar ágæta lands, sem eiga sína starfsævi að baki. Gamla fólkið er vissulega enginn þrýstihópur. Það hefur ekki með sér nein slík samtök, hvorki til þess að þrýsta á Alþ. né ríkisvald, en það er engu að síður ástæðulaust að því sé alfarið gleymt, og það er vissulega rétt af ríkisvaldinu að styðja við þá starfsemi sveitarfélaga, einstaklinga og áhugaaðila, sem vilja gæða síðustu ár gamla fólksins meira lífi. Við flm. þessa frv. teljum rétt að til greina komi að ríkisvaldið geri það m.a. með þeim hætti sem lagt er til í frv. þessu.
Herra forseti. Ég hef svo ekki fleiri orð fyrir þessu frv. nema sérstök ástæða gefist til, en legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.