01.04.1981
Neðri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3346 í B-deild Alþingistíðinda. (3423)

255. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég er mjög sammála þeim sjónarmiðum hv. flm. sem fram koma í því frv. sem hér er til umr. Ég hef margfalda reynslu af því, að það er aðeins lítill hluti gamals fólks sem sækir um eftirgjöf gjalda þó slíkar heimildir séu til og þótt þær séu sæmilega auglýstar. Ég minnist þess t. d. þegar bæjarstjórn Vestmannaeyja ákvað á sínum tíma að fella niður eða lækka fasteignagjöld aldraðs fólks og öryrkja eftir ákveðnum reglum þar sem tekið var tillit til tekna og efnahags. Þessar reglur voru auglýstar rækilega í öllum bæjarblöðum, sem koma inn á hvert einasta heimili í bænum eða svo til. Eftir sem áður sendu mjög fáir þeirra, sem réttindi áttu, inn umsóknir um lækkun eða niðurfellingu gjaldanna. Þá var framkvæmdinni breytt þannig, að við fólum útsvarsnefnd kaupstaðarins að sjá um það að finna hvaða fólk hér ætti í hlut, hvaða fólk ætti réttinn. Þetta var gert og það var ekki mjög mikil vinna. Síðan fékk fólkið niðurfellingu eða lækkun, eftir því sem efni stóðu til, án þess að það þyrfti að sækja um það. Með þeirri tölvutækni, sem nú er til umráða, sem skattstofurnar hafa nú til umráða, er þetta afskaplega auðvelt.

Frv. gengur út á það að skylda sveitarfélögin til þess að sjá um að fólkið fái þessa niðurfellingu, það sé ekki bara heimildarákvæði, heldur skylda. Eða þannig skil ég frv.

Þessi vinnubrögð eiga við í mörgum öðrum tilvikum. Þau eiga við alltaf þegar um það er að ræða, að einhverjir, sérstaklega gamalt fólk og öryrkjar, eigi einhvern rétt, sem þeim er ætlað að sækja um til að fá notið þess réttar. Þetta á t. d. við um framkvæmd laganna um eftirlaun til aldraðra. Það kom fram hjá hæstv. heilbr.- og trmrh. við fyrirspurn frá mér í haust, að það eru afskaplega fáir af þeim, sem eiga þarna rétt, innan við 10% þeirra, sem fá notið hans, og það er útilokað með öllu. Við eigum ekki að krefjast þess, að gamalt fólk og öryrkjar sæki um þetta eða sæki um hitt sem það á rétt á. Það má ekki vera undir því komið, að einhverjir aðstandendur eða einhver kunnugur taki eftir auglýsingu um þetta eða auglýsingu um hitt. Það má ekki vera undir því komið, hvort fólkið fær notið þess réttar. Við verðum sjálf að sjá til þess, að þetta ágæta fólk fái notið réttar síns. Og með núverandi tölvutækni á það að vera okkur vorkunnarlaust.

Herra forseti. Ég styð það frv. sem hér er til umr.