01.04.1981
Neðri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3355 í B-deild Alþingistíðinda. (3436)
271. mál, vörugjald
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég hefði kannske átt að falla frá orðinu, því að hv. þm. Sverrir Hermannsson hefur eiginlega sagt það sem ég ætlaði mér að segja. En ég vil þó úr því að ég er kominn hingað, minna á að það hefur skeð áður að menn hafa risið upp frá dauðum, úr því að hann orðaði það þannig í sinni ræðu. Ég vil ítreka þá spurningu sem hann bar fram til hv. 1. flm. þessa frv. til l. um breyt. á lögum nr. 77 frá 23. des. 1980, um vörugjald.
Satt að segja hef ég ekki trú á því, að það sé rétt, sem kom fram í málflutningi hv. 1. flm., að fjmrh. hafi nokkurn hug á að breyta þessu gjaldi. Mér skildist á honum að fjmrh. hafi í hyggju að breyta gjaldinu eða þá kannske að gera einhverjar aðrar ráðstafanir sem gætu samsvarað breytingunni. En ég vil ítreka spurningu hv. 4. þm. Austurl.: Hafa flm. tryggt sér framgang þessa máls í Ed., og ef ekki, af hverju er þetta frv. þá lagt fram, til hvers?
Öll mál þurfa að fara í gegnum tvær deildir. Hér er um að ræða brtt. við stjfrv. sem flm. hafa allir og það tiltölulega nýlega samþykkt, og þess vegna styð ég þá spurningu sem hér kom fram. Og ég óska eftir því, að mér verði svarað hér í nótt. Ef ekki, þá finnst mér ástæða til þess að fresta þessum umr. og bíða eftir því að hinir meðflm. mæti til fundar, ef ske kynni að þeir hafi þá unnið eitthvert það starf sem tryggi þessari breytingu brautargengi.