01.04.1981
Neðri deild: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3357 í B-deild Alþingistíðinda. (3438)

271. mál, vörugjald

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Hv. 12. þm. Reykv. þarf ekki að undrast þó að við einlægir stuðningsmenn þessa máls, ég og hv. 3. þm. Reykv., séum áhyggjufullir vegna vafa um framgang góðs máls. Að sjálfsögðu erum við það. Ég heyrði að það hefði meira en lítið gengið á fyrir jólin þar sem hv. þm. hefur verið hótað því, að engin fjárlög yrðu afgreidd nema þetta fræga vörugjaldsmál yrði samþykkt. Það er alveg greinilegt. Og vörugjaldið var ekki slík upphæð að greiðsluafgangurinn á fjárlögum sé ekki drjúgum meiri núna. Þá man ég þær tölur ekki rétt. En vegna afgreiðslu þessa máls vil ég aðeins rifja það upp, að menn gátu slett skyrinu, ráðamenn þjóðfélagsins, en ég man ekki betur en atkvæði eins af flm. þessa frv. kostaði 1 500 millj. gkr. Ég verð þá leiðréttur ef það er misminni mitt. En þessu til viðbótar, sem við vissum í sambandi við þær frægu 1500 millj., er komið í ljós að hv. stjórnarsinnum, hv. 12. þm. Reykv. og hv. 6. þm. Suðurl., hefur verið hótað með því að engin fjárlög yrðu afgreidd. Og þeir trúðu þessu, blessaðir mennirnir. Að láta sé nú detta annað eins í hug og það! Og meira, þeim var meira að segja tilkynnt að það yrði enginn nýársfagnaður, hvorki jól né gamlársdagur. (Gripið fram í.) Mikil er trú þín, kona, ég verð að segja alveg eins og er, að láta hóta sér og fá sig til fylgis eða öllu heldur að haga sér þannig, með einlægan ásetning og afstöðu sem hv. þm. hafði til þessa máls, að láta hræða sig með svona grýlum eins og þarna hafa greinilega verið málaðar á vegginn er með ólíkindum.

En ég hef auðvitað margsinnis flutt till. og frv. á hinu háa Alþingi sem ég hafði enga vissu fyrir hvort næðu fram að ganga, en aldrei fjárhagstillögur — tillögur sem vörðuðu fjármál — í stjórnaraðstöðu, án þess að hafa vissu fyrir því að þær næðu fram að ganga. Slík mál vinna stjórnarsinnar að sjálfsögðu með þeim hætti, að þær koma ekki fram hér á hinu háa Alþingi fyrr en framgangur þeirra er tryggður, enda gersamlega þýðingarlaust og ekki til neins annars en að efla vantraust á þeim sem um stjórnvöl sjálfra ríkisfjármálanna halda. Til viðbótar því get ég upplýst að í mörg ár og hér um bil aldrei hef ég látið til þess leiðast að flytja eina einustu brtt. um fjárlög, enda þótt ég væri í stjórnarandstöðu. Ég hef ekki haft þann sið nokkru sinni að flytja till. til þess að telja fólki trú um það, t. d. í mínu kjördæmi, að ég væri að flytja þar fram gott mál, vitandi fyrir fram að það yrði drepið fyrir mér. Það hef ég aldrei gert, og menn geta flett upp þingskjölum þess vegna. Ég man ekki hvort ég hef látið leiðast til þess með öðrum þm. að lána nafnið mitt á einstaka till., en það hefur þá verið eitthvað sem ekki skiptir höfuðmáli. Þannig afstöðu hef ég haft. Og að stjórnarsinnar séu að flytja mál án þess að hafa tryggt sér framgang þess, það er til einhvers allt annars en að vinna málinu gagn.

Eins og ég segi er það komið í ljós, að það hefur enginn framgangur verið tryggður í annarri hv. deild þessa háa Alþingis, og þá er hægt að fullyrða að í hv. Ed. er ekki meiri hluti fyrir framgangi þessa máls, þar sem ekkert hefur verið í því unnið. Þessu er svo fleygt hér fram án þess, og þá ætla ég að leyfa mér að fullyrða að það sé ekki og muni ekki verða fyrir hendi. Þannig hefur þetta mál verið sótt og varið, að það virðist nú blasa við. Og þá er ekkert orðið eftir af þessu annað en það, að þeir vilja enn reyna að hvítþvo sig, sem tókst misjafnlega hér í svartasta skammdeginu og hefðu ýmsir kosið kannske að koma hvergi nærri þessu máli. Þá er ekkert annað eftir en það, að þeir eru enn að reyna með þessu, sem ég kalla sýndarmennsku, að gera sig góða í augum þeirra sem kannske fylgjast ekki nægilega vel og náið með. Það getur ekkert annað verið. Það er verið að ítreka og auglýsa sig, að þeir séu þessarar skoðunar og vilji gjarnan hjálpa til í þessu mikilsverða máli, en fyrir fram vita þeir að það er dauðadæmt. Menn væru ekki að strita við þetta hérna, vitandi vel að það næði ekki fram, bara til þess að láta drepa málið fyrir sér, ef það væri ekki einhver hliðartilgangur. Það kemur ekki til nokkurra einustu mála. Þetta blasir svona við. Mér þykir þetta leitt, sérstaklega vegna þess að hér er um mál að ræða — sem ég fylgi einlæglega, að svona skuli þá innihaldið vera. Ég lýsi yfir miklum vonbrigðum mínum að þessu leyti. Og það er valið af þremur mönnum hér í hv. Nd. að flytja þetta fram, vitandi vel að það verður aldrei að lögum. Það gengur enginn, að því gruflandi. Ég er ekki að gera neinum mönnum í hv. Ed. upp afstöðu í málinu. En sviðið blasti við öllum mönnum þegar afgreiðslan fór fram fyrir aðeins tveimur og hálfum mánuði, og duldi þar enginn afstöðu sína og það var ekki minnsta hik eða vafi í huga eins einasta manns úr hv. Ed. af stjórnarliðinu í fylgi við afgreiðslu þessa máls þegar fjárlög voru afgreidd. Og að ætla svo undirbúningslaust og án þess að hafa tryggt sér fylgi við þetta að ætlast til þess, að þeir éti fyrri afstöðu ofan í sig, það er með ólíkindum að láta sér það til hugar koma. Þetta er því miður hryggilegt. Ég hlýt auðvitað að vona hið allra besta, en ég býst við hinu versta, ekkert annað er sjáanlegt, og þá verðið þið, hv. flm., að sitja uppi með sýndarmennskuna eina saman.