05.11.1980
Neðri deild: 12. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í B-deild Alþingistíðinda. (345)

47. mál, niðurfelling á opinberum gjöldum barna 1980

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Hv. þm. Halldór Blöndal flytur hér frv. um að allir álagðir skattar og gjöld á börn innan 16 ára aldurs falli niður á þessu skattári. Ég held að þetta mál hljóti að snúast fyrst og fremst um þá dularfullu spurningu, hvers vegna þetta frv. er svo seint fram komið, hvers vegna þessi ræða var ekki flutt fyrr en nú í haust, eftir að álagning hefur farið fram, hvers vegna málið var ekki tekið upp á s.l. vetri og flutt þá með tilheyrandi dramatískum tilbrigðum, ellegar fyrir einu ári, ellegar fyrir tveimur árum, sem auðvitað hefði verið réttast og eðlilegast.

Öll vitum við hér inni að frv. um álagningu tekju- og eignarskatts með nýjum hætti var samþykkt sem lög frá Alþingi fyrir tveimur og hálfu ári. Þá átti hv. þm. Halldór Blöndal að vísu ekki sæti hér í þingi og gat því ekki komið í veg fyrir þann óskunda sem þá var ákveðinn, að skattar skyldu lagðir á tekjur barna, eins og raunar ævinlega hefur verið gert, bara með öðru formi. En hann kom hér inn á þing skömmu eftir þetta og hefði getað látið til sín taka eftir að hann var kominn hér, bæði flutt brtt. við gildandi lög frá 1978 og eins hefði hann getað kvakað þegar málið var til meðferðar oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hér á þingi á s.l. vetri. Ég get minnt hv. þm. á það, að hann studdi þetta á síðasta þingi með atkvæði sínu, vegna þess að í fyrra sinnið, sem skattalögin voru hér til meðferðar í þinginu, voru þau afgreidd með samhljóða atkvæðum allra þm. (HBI: Ég greiddi því ekki atkvæði. Þetta er rangt hjá ráðh.) Ja, a.m.k. kom sú afstaða ekki fram með einum eða neinum hætti. Ég held það væri vissara að fletta upp í bókum þingsins og fundargerðum og fá það á hreint, hvort hv. þm. Halldór Blöndal hafði einhverja aðra afstöðu en aðrir þm. Sjálfstfl. A.m.k. varð hvergi vart við það hvað þetta atriði snertir. — Ég held að það merkilegast við þetta mál sé það, að ræðan, sem áðan var flutt, skuli vera flutt svona seint, að hún skuli vera flutt heilum mánuði eftir að álagning fer fram, en ekki þegar ákvarðanir voru teknar.

Kjarni þessa máls er að sjálfsögðu sá, að tekin var upp sérsköttun á árinu 1978. Af því leiddi að hjón voru ekki skattlögð lengur saman, heldur hvort í sínu lagi, og þar með hlaut það einnig að fylgja í kjölfarið, að börn væru skattlögð sér. Um þetta voru allir þm. sammála, þegar þessi ákvörðun var tekin, og ekki vitað til þess, að nokkur þm. gerði aths. við þessa tilhögun. En auðvitað er það til marks um lágkúruhátt stjórnarandstöðuþm., sem eru í mikilli leit að einhverjum málum til að berjast fyrir, einhverjum ádeiluefnum á núv. stjórn, og verða að finna eitthvað til þess að geta sýnt að þeir séu þó frekar í stjórnarandstöðu en fylgjendur stjórnarinnar, að þá auðvitað draga þeir upp þessa álagningu á börn, sem þeir sjálfir stóðu að og báru margi; hverjir meginábyrgð á þegar lögin voru samþykkt fyrir tveimur og hálfu ári.

Að sjálfsögðu verður að skoða þá ákvörðun Alþingis á sínum tíma að skattleggja börn sérstaklega, en ekki með tekjum foreldranna, í ljósi þess, að ætlunin var að taka upp staðgreiðslukerfi skatta. Það var talin óhjákvæmileg einföldun kerfisins að börnin væru skattlögð sér. Hins vegar fór svo að hætt var við að taka upp staðgreiðslukerfi skatta og sú ákvörðun tekin að bíða með það, áður en frv. um tekjuskattinn var afgreitt hér í þinginu á sínum tíma. Ef þm. hefðu viljað taka tillit til þess, að hætt var við að taka upp staðgreiðslukerfið í bili, og hefðu viljað breyta ákvörðunum um skattlagningu barna, þá hefðu þeir auðvitað gert það. En það kom engin hugmynd fram um það og engin tillaga. Menn virtust telja að eftir sem áður væri eðlilegt að börnin væru skattlögð sér, úr því að hjón yrðu sérsköttuð hvort fyrir sig. Þar við bætist að flestir þm. hafa gert ráð fyrir að staðgreiðslukerfi skatta yrði tekið upp fyrr eða síðar. Málið hefur verið í undirbúningi um langt skeið. Flestir hafa að vísu viljað bíða eftir því að fyrsta álagning samkv. nýju skattkerfi færi fram, þannig að menn yrðu reynslunni ríkari þegar ákvarðanir yrðu teknar um staðgreiðslukerfið, en nær allir hafa verið sammála um að þetta kerfi kæmi fyrr eða síðar og af þeirri ástæðu hafa menn ekki talið rök fyrir því að breyta því sem Alþ. ákvað á sínum tíma varðandi það að leggja sérstakan skatt á tekjur barnanna fremur en að leggja þær við tekjur foreldranna.

Ég geri mér hins vegar fulla grein fyrir því, að það er ákaflega auðvelt að hræra í tilfinningum almennings og villa um fyrir fólki í þessu máli, — ákaflega auðvelt. Og ég er svo sem ekkert undrandi þótt stjórnarandstæðingar, sem glíma við sára málefnafátækt sína, grípi til þessa óyndisúrræðis. Ég er ekkert undrandi á því, síst af öllu þegar haft er í huga hverjir eiga í hlut. En ég held, ef málið er skýrt fyrir öllum almenningi og ef menn gera sér grein fyrir bæði forsögu málsins og eðli þess, að þá verði lítið eftir af mótbárum gegn þessu fyrirkomulagi. Ég held að menn geri sér grein fyrir því, að í fyrsta lagi er ekki um það að ræða að heimilið í heild verði fyrir þyngri skattaálögum en ella hefði verið, vegna þess að áður fyrr voru tekjur barnanna viðbót við tekjur foreldra og lentu því gjarnan í 50% tekjuskatti, 10–11% útsvari og síðan 2% sjúkratryggingagjaldi, eða samtals 62–63% skatti. En eins og menn vita er skattprósentan, sem miðað er við í sambandi við álagningu á tekjur barna, miklu, miklu lægri, eða 7% í tekjuskatti og fáein prósent í viðbót af örðum sköttum, þannig að í heild mun skattálagningin vera 10–11%.

Ég hef orðið var við það, að í áróðurssókn Morgunblaðsins er mikið lagt upp úr því að telja unglingunum trú um það, að þeir séu miklum órétti beittir, vegna þess að þeir fái ekki persónufrádrátt, og þeir séu þar af leiðandi meðhöndlaðir með allt öðrum og miklu lakari hætti en allir aðrir þjóðfélagsþegnar. Ég verð var við það, að Morgunblaðið á furðulega auðvelt með að blekkja þetta unga fólk, sem þekkir ekki vel þetta skattkerfi, og draga upp úr því yfirlýsingar um að þetta sé auðvitað hið mesta misrétti. Og ég skil það vel, að margur láti blekkja sig í þessum efnum. En auðvitað er skýringin ósköp einfaldlega sú, að hér er um það að ræða að ekki er sérstakur persónufrádráttur, en á hinn bóginn skattprósentan mjög lág. Það kemur auðvitað hvað á móti öðru, getur að vísu komið misjafnlega út eftir atvikum, eins og gefur að skilja, en í heild kemur það nokkuð jafnt út.

Ég held að meginatriði varðandi það, hvað auðvelt hefur verið að vekja úlfaþyt út af þessu máli, sé að skatturinn er mjög seint á ferðinni. Auðvitað hefði þessi skattlagning þurft að eiga sér stað ásamt annarri skattlagningu á miðju sumri. Og auðvitað er mjög óheppilegt að hún skuli fara fram síðla hausts eða síðla sumars, skulum við frekar segja. En þarna var við vandamál að að etja sem ég held að allir hv. alþm. verði að taka ábyrgð á, þ. e. stjórnleysi sem hér kom upp á s. l. hausti, þingrofið — sem þingflokkur Sjálfstfl. ber ekkert síður ábyrgð á en þingflokkur Alþfl. — og stjórnarkreppa sem fylgdi í kjölfarið og hafði þær afleiðingar að skattalög voru ekki afgreidd fyrr en seint á s.l. vetri. Starfsmenn skattakerfisins hafa verið mjög önnum kafnir og með mikla vinnubyrði á sínum herðum að framkvæma þau skattalög sem Alþ. samþykkti í vor. Það var ekki hægt að vinna allt í einu, og þeir kusu að skilja þessa sérstöku skattlagningu eftir. Ég vil taka það fram, að þetta atriði var ekki borið undir fjmrn. sérstaklega, enda er það ekki fjmrn. sem leggur skatta á almenning í þessu landi, heldur eru það ríkisskattstjóri og skattstofurnar. Og ég gerði mér satt að segja ekki grein fyrir því, að þessi skattlagning yrði svona seint á ferðinni, fyrr en mjög var liðið á sumar. Hérna hafa mistök orðið. Ég held það hefði verið brýn nauðsyn að láta þessa skattlagningu fylgja annarri skattlagningu og að það hefði þá jafnvel mátt draga skattlagninguna í heild í eina viku, ef með hefði þurft, fremur en að láta þetta koma eftir dúk og disk eins og raun ber vitni. Ég held hins vegar að hér beri allir hv. þm. ábyrgð. Við verðum einfaldlega að að horfast í augu við það, að hér var stjórnleysi ríkjandi um margra mánaða skeið og skattalögin seint á ferð.

Hv. þm. Halldór Blöndal fór hér nokkrum orðum um hag ríkissjóðs og hafði uppi mjög sérkennilega kenningu sem hann þóttist hafa eftir sérfræðingum í fjmrn. eða embættismönnum þar. Kenningin gekk út á það, að ef verðbólga verður meiri en áætlað er, þá verði tekjurnar meiri en útgjöldin. Ég er viss um það, að hv. þm. getur leitað með logandi ljósi að manni sem væri reiðubúinn að staðfesta þessa kenningu, og hann mun ekki finna hann, enda er þetta auðvitað svo fáránlegt sem mest getur verið.

Staðreyndin er sú, að þegar verðbólga er meiri en áætlað er hallar fremur á ríkissjóðinn. Þó er það mesta furða hvað lítill munur er á tekjum og gjöldum þrátt fyrir aukna verðbólgu. Ég held að það láti nærri að um 80% af tekjum ríkisins séu óbeinir skattar. Og það virðist vera, að þegar tekjur og gjöld ríkisins aukast vegna aukinnar verðbólgu hækki 80% af tekjum ríkissjóðs í sæmilegum takti við verðbólguna. Það, sem eftir situr, eru beinu skattarnir. Beinu skattarnir, sem eru lagðir á, miðast ekki við tekjur á líðandi stundu, miðast ekki við veltuna á líðandi stundu, heldur við þá veltu sem hafði verið einu ári áður. Það er þess vegna að hluti teknanna stendur í stað, jafnvel þótt veltan á líðandi stundu aukist. Af þessu leiðir að tekjurnar vaxa ekki i réttu hlutfalli við þá veltuaukningu sem á sér stað í þjóðfélaginu.

Sama gildir að nokkru leyti um útgjöldin, vegna þess að þau eru ekki öll tengd veltunni. Við getum tekið t.d. fjárfestingarútgjöldin. Þau haldast að verulegu leyti í þeirri krónutölu, sem þau hafa verið ákveðin í fjárlögum þó að það geti að vísu ekki verið algilt. Aftur á móti hækka laun og útgjöld almannatryggingakerfisins nokkurn veginn í réttum takti við aukna verðbólgu. Og reynslan hefur orðið sú, að ríkissjóður tapar heldur á því ef verðþróunin er á þann veg að verðbólga er meiri en spáð hefur verið.

Ég hef sagt það og segi enn, að hagur ríkissjóðs er mun betri en hann hefur verið á undanförnum árum. Þetta tók hv. þm. Halldór Blöndal upp áðan og sagði að því væri bersýnilegt að nægilegt fé væri í ríkiskassanum til að endurgreiða skattinn á unglingana. Ég vil ítreka það hér, að þó að hagur ríkissjóðs sé töluvert miklu skárri nú en hann hefur verið á undanförnum árum, þá er ekki þar með sagt að hagur ríkissjóðs sé með neinum afbrigðum þannig séð að afgangur sé. Ég hef hvergi látið hafa það eftir mér, að líklegt sé að það verði afgangur hjá ríkissjóði á þessu ári. Ég veit ekki til þess að neinn hafi haldið því fram, að líklegt sé að afgangur verði hjá ríkissjóði á þessu ári. Ég held að það verði nokkuð tvísýnt á hvorn veg það veltur, en þó verði munurinn það lítill að fyllilega megi taka þannig til orða, að ríkissjóður verði nokkurn veginn í jafnvægi, og ég geri mér vonir um að það verði þá frekar í plús en í mínus. En þar verður ekki um stórar upphæðir að ræða sem gætu komið í afgang, einfaldlega vegna þess að verðbólga hefur verið meiri en áætlað var og að útgjöldin hafa ekki síður aukist af þessari ástæðu en tekjurnar. (HBI: Hæstv. forsrh. hefur talað um greiðsluafgang verulegan í árslok.) Ég veit ekki hvaða ummæli það eru sem hv. þm. er að vitna í og eru höfð eftir hæstv. forsrh. En ég vil upplýsa það hér, að það er ekkert útlit fyrir að verulegur afgangur verði af tekjum ríkissjóðs á þessu ári þegar greiddar hafa verið þær skuldir sem við höfum tekið á okkur að borga. Við ætlum okkur að borga á þessu ári 8 milljarða til Seðlabankans. Við ætlum að standa við það í fyrsta skipti um margra ára skeið, að gert sé upp við Seðlabankann í samræmi við það sem fjárlög gera ráð fyrir. Það má auðvitað reikna dæmið á þann veg, að þarna sé um að ræða ákveðinn afgang sem verið sé að skila til Seðlabankans. Það má stilla dæminu upp á þann veg. Sé það gert er um afgang að ræða. En ef við gerum ráð fyrir að greiðslan til Seðlabankans sé bara hluti af þeim útgjöldum sem ríkissjóður þarf að inna af hendi á þessu ári, þá er ekki um afgang að ræða eða a.m.k. mjög óverulegan. Og satt að segja getur auðvitað ýmislegt gerst á tveimur síðustu mánuðum ársins.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál, en ég ítreka það sem ég sagði í upphafi, að það, sem er merkilegt við þann málflutning, sem hér var hafður uppi áðan, og vekur athygli, er ekki till. sem slík, heldur hitt, að þessi ræða skuli ekki hafa verið flutt fyrr. Og satt best að segja undrar mig það líka, að till. varðar bara álagningu skatta á þessu ári. Það er ekki meiningin samkvæmt tillögu flutningsmanna, að nein breyting verði á næsta ári hvað þetta snertir. Það virðist vera alveg óhætt að skattleggja blessuð börnin á árinu 1981 og 1982 samkvæmt gildandi skattalögum. En kannske gera flm. sér vonir um að þá verði kominn fjmrh. sem er þeim meira að skapi og þá sé allt í lagi að skattleggja blessuð börnin.