02.04.1981
Sameinað þing: 69. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3373 í B-deild Alþingistíðinda. (3454)
49. mál, varnir vegna hættu af snjóflóðum og skriðuföllum
Helgi Seljan:
Herra forseti. Ég þakka hv. atvmn. afgreiðslu hennar fyrir hönd okkar flm. Þetta mál hefur verið að velkjast nokkuð lengi hér í Alþingi, en um þessa till. verið alger samstaða flokka á milli.
Ég vil sérstaklega þakka nefndinni fyrir að hafa haldið þeim merku áhersluatriðum inni í till. sem færustu aðilar léðu okkur flm. á sínum tíma. Ég held nefnilega einmitt að menn skjóti sér oft undan því í nefndarstarfi að taka afstöðu til slíkra atriða, sem eru þar til áherslu og til leiðbeiningar, þannig að þeir útþynni till. og setji þá kannske einvörðungu nefnd í málið eða orði þetta almennum orðum um nýtt skipulag og svo búið. Hér hefur nefndin hins vegar tekið þá afstöðu að taka undir áhersluatriðin sem hinir færustu menn hafa þarna sett inn. Ég tel að það sé af hinu góða, og ættu fleiri að huga að því því að þarna er um að ræða mjög góðan leiðarvísi frá Alþingi til þeirra stjórnvalda sem eiga að byggja löggjöfina á till. þessari.