06.04.1981
Sameinað þing: 70. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3408 í B-deild Alþingistíðinda. (3480)
387. mál, fjárfestingar- og lánsfjáráætlun 1981
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Þegar við ræðum hér fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1981 eru á sama tíma að birtast tölur, þjóðhagsstærðir, fyrir s. l. ár og þar með síðasta ár áratugarins 1971–1980. Þessar þjóðhagsstærðir koma til með að sýna hvernig áratugurinn 1971–1980 hefur verið í íslenskum efnahags- og peningamálum til samanburðar við áratuginn 1961–1970.
Þróun efnahagsmála síðasta áratug hefur verið með þeim hætti að fáa, ef þá nokkurn, grunaði að slík þróun gæti átt sér stað. Við höfum sannarlega lifað áratug verðbólgu í stað áratugs viðreisnar í íslensku þjóðfélagi frá 1961–1970. Frá 6–9% verðbólgu eða um þrefalt meiri verðbólgu en í helstu viðskiptalöndum okkar 1961–1970 óx verðbólgan 1971–1980 úr innan við 10% í um það bil 60% þ. e. þrisvar til fimm sinnum meiri verðbólga hér en í nágranna- og viðskiptalöndum okkar. Síðustu tvö árin var verðbólga um 60% og árið 1980 var verðbólga frá upphafi árs til loka og meðalverðbólga frá 1979–1980 tæp 60%. Það sýnist þar af leiðandi koma til með hvað þetta snertir að verða versta ár þennan áratug. Á áratugnum 1961–1970 þótti allnokkuð að verðlag þrefaldaðist, og mátti oft heyra þáverandi stjórnarandstæðinga gagnrýna það. Á áratugnum 1971–1980 þrefaldaðist ekki verðlagið, heldur fimmtánfaldaðist.
Úr hagtölum þessara tveggja áratuga má glöggt lesa um stjórnarfarið á Íslandi og það þarf ekki að lesa á spjöldum sögunnar. Tölurnar sýna það. Stjórnarskipti urðu hér á landi 1971. Svo snögg og mikil breyting verður á öllu að þeir, sem skoða þessar tölur, þessar þjóðhagsstærðir, gera sér grein fyrir því, að hér hefur átt sér stað veruleg stefnubreyting. Það kemur í ljós að ríkisumsvifin aukast úr 22% af vergri þjóðarframleiðslu í 25% og að verðbólgan verður um það bil 20% á móti því að vera innan við 10%. Þeir stjórnarflokkar, sem farið höfðu með völd frá 195–1971, misstu meiri hluta sinn í kosningum 1971 og við tók Framsfl. undir forustu formanns hans, sem varð forsrh., ásamt Alþb.-mönnum og þm. Samtaka frjálslyndra og vinstri manna.
Ef þessi áratugur er skoðaður í samanburði við það sem ég gat um áðan sjá menn að áfram stefnir og 1974–1975 eru þessar stærðir komnar, þ. e. verðlagsbreytingar, í milli 40 og 50% og ríkisumsvif komin upp undir um 30%. Þegar líða tekur svo á þennan áratug má enn sjá breytingar. 1976 breytast þessar tölur til batnaðar. Ríkisumsvifin eru komin niður í 26.5% og verðbólgan er komin niður í 32%. 1977 eru ríkisumsvifin 27% af vergri þjóðarframleiðslu og verðlagsbreytingar á bilinu 30–36%, eftir því hvort viðmiðunin er frá upphafi árs til loka eða á milli ára. Hér hefur það gerst, að Sjálfstfl. hefur tekið við forustu og veitir ríkisstjórn forustu í þessum málum fram til ársins 1978 að enn breytir um. Þá fara ríkisumsvifin að aukast. Þá fer verðbólgan að aukast aftur. Ríkisumsvifin komast upp í 28.5%–29.5% og verðbólgan á árunum 1978–1979 og 1980 nálgast 60%.
Ef lítið er til kosninganna 1971 og það haft í huga sem þáverandi stjórnarandstæðingar sögðu, framsóknarmenn og Alþb.-menn, þegar þeir boðuðu nýjar aðferðir í glímunni við verðbólguna, sýnist árangurinn undir þeirra forustu hafa verið heldur lítill. Hann var enginn. Hann var miklu verri en enginn. Ef minnst er á kosningabaráttuna 1978, þegar þáverandi stjórnarandstaða hafði ráð undir rifi hverju og komst til valda m. a. út á orðin „samningana í gildi“, er útkoman 1979 og 1980 ekki vottur þess að um jákvæða breytingu hafi verið að ræða, nema síður sé, met slegin í verðbólgumálum ár eftir ár.
Eins og ég sagði áðan sýnist árið 1980 ætla að slá öll met og er þá, að mér sýnist, sama hvert lítið er. Sýnist nú blasa við okkur við upphaf nýs áratugs að þá verði verðbólgusiglingunni haldið áfram án þess að sjá megi nokkra tilburði hjá valdhöfum til þess að breyta stefnunni, án þess að nokkrir tilburðir séu þar uppi sem telja má raunhæfa. Í stað þess hefur verið sett á svið sjónarspil og var leikinn á gamlárskvöld sem inngangur að áramótaskaupi fyrsti þáttur þessa sjónarspils. Í þeim þætti höfðu verið strikuð út úr handritinu orðin „samningana í gildi“ og líka „þeim sem minnst hafa skal hlíft“ og þannig fór þátturinn fram.
Sú fjárfesting- og lánsfjáráætlun, sem hér er til umr., svo og niðurstaða ársins 1980, ber þess best vitni, sem ég sagði áðan, að verðbólgusiglingunni skal haldið áfram. Ekki aðeins efnisinnihald þessarar áætlunar eða útkoma efnahagsmálanna 1980, heldur og öll vinnubrögð við gerð og framlagningu þessarar áætlunar sýna að ríkisstj. hefur gersamlega mistekist að ná valdi á þessum málum.
Samkv. efnahagslögunum skal fjárfestingar- og lánsfjáráætlun lögð fram með fjárlögum. Fyrst þegar slík áætlun var samin, 1975 fyrir árið 1976, en áður höfðu verið samdar framkvæmdaáætlanir allt frá árinu 1963, vannst ekki tími til að gera Alþingi grein fyrir lánsfjáráætluninni, stefnu ríkisstj. í fjárfestingar- og lánamálum, fyrr en við 3. umr. fjárlaga rétt fyrir jólaleyfi þm. Þetta var vissulega og eðlilega gagnrýnt af stjórnarandstöðunni, og ég hugðist beita mér þá fyrir því, að á þessu yrði gerð bragarbót. Það tókst nokkuð árið 1977, þegar lánsfjáráætlun fyrir árið 1978 var lögð fram. Það var gert þá við 2. umr fjárlagafrv. Þótti mönnum þó ekki nóg að gert og töldu að þannig mætti ekki ganga til í framtíðinni. Til að leggja áherslu á þessa skoðun sína lögfestu þeir, sem sátu í ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar, það að fjárfestingar- og lánsfjáráætlun skyldi lögð fram með fjárlagafrv. þannig að á því væri enginn vafi og að Alþingi, eftir að ríkisstj. væri að sjálfsögðu búin að gera sér grein fyrir því, hvernig hún hygðist standa að málum, og eftir að ríkisstj. væri búin að móta sína stefnu um leið og hún samþykkti fjárlagafrv., þá skyldi á sama tíma gerð grein fyrir þessum málum. Þetta er sjálfsagt rétt og þannig á það að vera. Þannig er þetta sjálfsagt þar sem menn, sem fara með stjórnvöld, hafa vald á því sem þeir eru að gera.
Til hvers er verið að leggja fram fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ef það er ekki til þess að löggjafarsamkoman, að fjárveitingavaldið, Alþingi, geti fengið tækifæri til að skoða í heild, hvernig þeir, sem með völd fara, hyggjast haga stefnunni í peningamálum, í efnahagsmálum, í atvinnumálum, og að hægt sé að taka ákvarðanir í samræmi við þá stefnu af þeim og Alþingi fái tækifæri til þess að gera aths. þar við?
Ég veit að hæstv. forsrh. er þessu sammála því að í ræðu sinni með fjárfestingar- og lánsfjáráætluninni fyrir 1980 vék hann að þessu. Þá hagaði málum svo til, að ríkisstj. hans var mynduð í febrúarmánuði. Hún hafði ekki haft tækifræi til þess að vinna þessi verk. Hún lagði fram fjárlagafrv. og nokkuð löngu síðar fjárfestingar- og lánsfjáráætlun. Hæstv. forsrh. sagði þá í ræðu, með leyfi forseta:
„Að þessu sinni hafa atvikin ráðið því, að tímabil undirbúnings hefur ekki verið svo rúmt sem skyldi og því ekki reynst unnt að fjalla samtímis um fjárlög og lánsfjáráætlun að öllu leyti, eins og æskilegt er.“
Sú afsökun, sem hæstv. forsrh. hafði á s. l. ári, er ekki fyrir hendi núna þannig að hér er verið að ganga gegn þeim lögum, sem um þetta gilda, og um leið gera þá vinnu, þá ákvarðanatöku, sem þarf að eiga sér stað í svo veigamiklum málum, með þeim hætti sem raun ber vitni.
Þegar fjárlagafrv. var lagt fram á s. l. hausti var lögð fram bráðabirgðaáætlun skömmu seinna um fjárfestingar og lánsfjáröflun. Síðan voru fjárlög samþykkt í des. Frv. til lánsfjárlaga var lagt fram í febrúarmánuði, mánuði áður en fjárfestingar- og lánsfjáráætlun er lögð fram hér í Sþ. Hvaða afleiðingar hafa slík vinnubrögð? Jú, þær birtast í því, að eftir því sem mánuðirnir líða, eftir því sem fleiri skjöl koma, eftir því hækka útgjaldatölurnar, eftir því hækka lántökurnar. Menn, sem sitja í ríkisstj., eru sem sagt ekki reiðubúnir að gera upp við sig hvernig þeir hyggjast haga efnahags- og fjármálunum, heldur sýnist dæmið vera þannig hugsað að þeir muni geta komið fram einhverju af óskalistanum ef þetta dregst. Því er vinnubrögðunum hagað eins og raun ber vitni. Umr. um þessa lánsfjáráætlun sýnist ekki heldur ætlað að verða lokið áður en afgreiðsla á lánsfjárlagafrv. fer fram í hv. Ed. Eðli málsins samkv. er það frv. fylgifiskur þeirrar áætlunar sem hér liggur fyrir og á að leggja það fram að mínum dómi samtímis áætluninni. Það má vel vera að svarið við þessu geti verið að til þess að gefa Alþingi fyrr tækifæri til að hyggja að þessum málum hafi verið gripið til þessa ráðs. — Ég vil mjög gjarnan láta það koma hér fram, að það stóð ekki á formönnum fjh.- og viðskn. beggja deilda að ræða þessa áætlun og láta nm. í té þau gögn sem þeir óskuðu eftir. Við fjh.- og viðskn. verður því ekki sakast í þessum efnum.
Ég vildi láta þetta koma hér fram um vinnubrögð og um leið lýsa þeirri von minni við Alþingi, að það láti ekki slíkt henda oftar. Það geta alþm. gert,-þeir sem hverju sinni standa að ríkisstj. og sitja í meiri hl. á þingi.
Hæstv. forsrh, var ekki mjög langorður um þá lánsfjáráætlun sem hér er til umr., og það hefur ekki verið gerð mikil úttekt á því, hvernig lánsfjáráætlun og markmið ríkisstj. fyrir árið 1980 hafa reynst. En í þeirri ræðu, sem ég vék að hér áðan, þegar hæstv. forsrh. gerði grein fyrir lánsfjáráætluninni 1980, hélt hann töluvert ítarlegri ræðu en hann hélt í dag og hann lýsti þar ýmsum stefnumiðum. Hann flutti þar ræðu þar sem fram voru settar ýmsar viljayfirlýsingar, ýmis góð markmið, ýmis góð áform. En einhvern veginn skorti þetta í ræðuna áðan og að uppgjör færi fram um útkomu ársins 1980. Að áformunum ætla ég að koma síðar, en mig langar aðeins til, áður en lengra er haldið, að víkja að því, sem fram kom í lánsfjáráætluninni 1980 og í ræðu forsrh., og bera það saman við niðurstöður þær sem hafa verið að birtast að undanförnu.
Hæstv. forsrh. segir í ræðu sinni, með leyfi forseta, þegar hann lýkur máli sínu, hefur farið víða um og gert grein fyrir mörgum þeim markmiðum sem hann og ríkisstj. hans virtust hafa þá:
„Í stjórnarsáttmálanum hefur ríkisstj. sett sér það meginmarkmið að treysta íslenskt efnahags- og atvinnulíf. Þessi fjárfestingaráætlun er liður í framkvæmd þeirrar stefnu. Ríkisstj. mun berjast gegn verðbólgu með aðhaldsaðgerðum er snerta verðlag, gengi, peningamál, fjárfestingarmál og ríkisfjármál. Á það verður lögð höfuðáhersla, að beitt sé samstilltum aðgerðum á öllum þessum sviðum og jafnan þannig að atvinnuöryggi sé tryggt.“
Hver hefur svo raunin orðið í sambandi við verðlagsmálin? Eins og ég gat um áðan kemur árið 1980 þannig út að það verður einstakt í sinni röð. Verðbólgan frá fyrra ári, þ. e. meðalverðbólguhækkunin frá 1979 til 1980, verður 58.5%, en verðbólgan frá upphafi árs til loka 58.9%. Og hraði verðbólgunnar seinustu mánuði ársins var kominn um og yfir 70%! Gengismálin: Hver voru áformin þar? Hvað var lagt til grundvallar í þróun gengismála við lánsfjáráætlunina 1980? Jú, þar var gert ráð fyrir meðalhækkun á erlendum gjaldeyri um 32%, en niðurstaðan reyndist 37.8% og síðustu mánuði s. l. árs voru gengisbreytingarnar svo hraðar og svo miklar að annað eins hefur ekki þekkst.
Hæstv. forsrh. sagði í sambandi við verðlagsmálin, með leyfi forseta:
„Nú er áætlað að hækkun framfærsluvísitölu frá febr. til maí verði vart undir 12–13% og gætu laun þá hækkað um 11–11.5 1. júní, en í fjárlagaforsendum var gert ráð fyrir 8% hækkun. Markmið ríkisstj. er að halda verðbreytingum innan við 7% frá maí til ágúst og innan við 5% frá ágúst til nóv. Takist þetta yrði verðhækkun frá upphafi til loka árs innan við 40%, en meðalhækkun verðlags milli ára 1979 og 1980 væntanlega nálægt 50%.“
Skömmu eftir eða um svipað leyti og þessi ræða var haldin vék hv. 3. þm. Norðurl. e. að þessum málum hér utan dagskrár og efaðist um það, sem hér hafði komið fram, og gerði grein fyrir sjónarmiðum sem fram höfðu komið hjá Þjóðhagsstofnun um það hver spáin væri og hvað líklegast væri um útkomu. Ég minnist þess þá, að hæstv. forsrh. vildi ekki viðurkenna þennan útreikning, sagði m. a., að hér væri ekki rétt reiknað út, og bar þess vegna brigður á að þessi spá, sem hv. 3. þm. Norðurl. e. var með, gæti með nokkru móti staðist. Tölurnar tala sínu máli.
Ef við víkjum að erlendum lántökum er sama sagan þar. Hæstv. forsrh. segir í sömu ræðu, með leyfi forseta: „Ríkisstj. hefur ákveðið að leita ekki heimildar til erlendrar lántöku á árinu 1980 í jafnríkum mæli og samþykkt framkvæmdaáform ýmissa fyrirtækja ríkissjóðs í B-hluta fjárlaga miðast við. Í þessu felst nokkur frestun framkvæmda.“
Samkv. lánsfjáráætlun 1980 er gert ráð fyrir 85.5 milljörðum gkr. í heildarlántöku, til afborgana 46.3 og því 39.2 milljarða nettóaukningu langra lána. En hver er svo reynslan í þessum efnum? Hún er sú, að nettóaukning er ekki 39.2 milljarðar gkr., heldur 69.7 eða um 75% umfram þá áætlun sem lögð var fram. Hér er um að ræða 35.1% af vergri þjóðarframleiðslu, en við það vildi einmitt hæstv. forsrh. miða í þessari ræðu, og það er hækkun úr 34.4% miðað við 1979.
Ef við virðum fyrir okkur ríkissjóðsdæmið kemur það út með töluvert öðrum hætti en hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. vonuðumst til. E. t. v. gerðu þeir sér ekki grein fyrir hvað undir bjó. Það mátti af máli þeirra heyra. En ríkissjóður var rekinn með halla. Hann sýnir lakari útkomi sem nemur 5.4 milljörðum gkr. og það er áframhaldandi skuldaaukning í Seðlabankanum þrátt fyrir að allir vinstristjórnarskattarnir væru framlengdir og nokkrir til viðbótar þannig að ríkissjóðstekjurnar á árinu 1980 væru þess vegna vart undir 50–60 milljörðum gkr. eða tvöföld skuld ríkissjóðs við Seðlabankann þannig að það hefði ekki þurft nema helming þessara skatta til að greiða upp þá skuld.
Viðskiptahallinn verður í stað 1.3% af þjóðarframleiðslu 2.4%.
Það, sem ég hef nú hér rakið og sýnir allt aðra útkomu árið 1980 en talað var um þegar ræðan var flutt, gerist á sama tíma og þjóðarframleiðslan eykst um 2.5% frá 1979 og útflutningsframleiðslan eykst um 10%, sem hvort tveggja er töluvert meiri vöxtur þjóðarframleiðslu en gert hafði verið ráð fyrir í lánsfjáráætluninni. Ástæða þessa er að fiskafli og framleiðsla sjávarafurða voru töluvert miklu meiri en reiknað hafði verið með. Þorskaflinn reyndist t. d. 426 þús. lestir í stað 380–400 sem áætlað hafði verið. Þannig er útkoman 1980 þegar það dæmi er gert upp og við ræðum hvað og hvernig staða mála er og hverjar eru horfurnar fram á við.
Í þeirri fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, sem hér er til umr., eru nokkrar staðreyndir eða nokkrar línur sem segja til um spá fyrir árið 1981. Þar er gert ráð fyrir að útflutningurinn dragist saman um tæplega 1% árið 1981. Það er spáð lakari viðskiptakjörum sem nemur 1–2%. Samneyslan er talin aukast um 2% vegna útgjaldafyrirætlana fjárlaga. Fjármunamyndun er talin munu verða um 26% og þar verði magnaukning, 26% af vergri þjóðarframleiðslu sem er hlutfallslega örlítið minna en árið 1980, en samt sem áður er gert ráð fyrir magnaukningu. Það er gert ráð fyrir að viðskiptahalli haldist áfram og verði svipaður og í fyrra, 2.3% í stað 2.4%, eins og ég gat um áðan. Það er gert ráð fyrir að þjóðarframleiðslan verði óbreytt á þessu ári frá því 1980, og með tilliti til þess sem ég hér gat um áðan er gert ráð fyrir að þjóðartekjur dragist saman.
Þetta er sú mynd sem við fáum í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1981. Þetta eru þjóðhagshorfurnar fyrir það ár. En hvað hyggst ríkisstj. gera, miðað við þá þjóðhagsspá, sem fyrir liggur, og í samræmi við fyrirheit í efnahagsáætlun frá því á gamlárskvöld? — Ég veit ekki hvort hv. alþm. hafa tekið eftir því, að gerð hefur verið breyting á þessari fjárfestingar- og lánsfjáráætlun frá því í fyrra, þeir sem lesa hana gera sér að sjálfsögðu grein fyrir þessu, en það er undirstrikað með því að yfirskrift II. kafla þessarar áætlunar er breytt. Í lánsfjáráætluninni frá 1980 stendur: II. kafli. Markmið og þjóðhagshorfur. En í þessari lánsfjáráætlun hefur orðið „markmið“ verið þurrkað út og aðeins stendur eftir „þjóðhagshorfur.“ Það er að sjálfsögðu í samræmi við innihald þessarar áætlunar.
Í kaflanum, þar sem fjallað hefur verið um markmið og þjóðhagshorfur, er nú aðeins fjallað um þjóðhagshorfur, en markmiðunum er sleppt og þau, eins og ég sagði áðan, ekki höfð með í samræmi við innihald þessarar áætlunar. Þetta er vissulega þess eðlis að vekja verður á því athygli, en þetta er í samræmi við þá ræðu sem hæstv. forsrh. hélt áðan og fjallaði sáralítið, nánast ekki neitt um aðgerðir eða hugmyndir til lausnar þeim vanda sem við er að glíma.
Það var öllum ljóst á nýársdag eða annan í nýári að innan ríkisstj. gerðu menn sér grein fyrir að í því sjónarspili, sem hófst með brbl. á gamlársdag, var ekki að finna úrræði sem væru til lausnar á þessum vandamálum, heldur aðeins skammtímaúrlausn. Við getum nú talið vikurnar og bráðum dagana þar til þetta tímabil er runnið út, og menn spyrja: Hvað tekur við? En einmitt annan í nýári var haft eftir einum af ráðh. ríkisstj. að þessar aðgerðir væru ekki nema skammtímaaðgerðir og þyrftu aðrar aðgerðir að koma til þegar kæmi að mánuðunum maí og júní. Hverjar aðgerðirnar eru, hverjar hugmyndirnar eru, hver markmiðin eru verður ekki lesið úr þeirri fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, sem hér er til umr. Ég efast ekkert um að þær viljayfirlýsingar, sem hæstv. forsrh. kom með áðan, vildi hann svo gjarnan að gætu ræst. En hann eins og við hin gerir sér grein fyrir því, að það gerist ekki með óbreyttri stefnu í efnahags- og peningamálum eða yfirleitt með þeirri stefnu sem núv. ríkisstj. hefur.
Þessi fjárfestingar- og lánsfjáráætlun spáir ekki ástandinu á árinu 1981 þannig að það sé eðlilegt og sjálfsagt að upp séu settir óskalistar þeirra manna sem með framkvæmdavaldið fara, óskalistar um auknar opinberar framkvæmdir og lántökur til þeirra á kostnað atvinnuveganna, eins og skýrt er tekið fram í þessari skýrslu. Ástandið er ekki með þeim hætti að það leyfi tillögur — þaðan af síður framkvæmd — um svo mikla aukningu erlendra lána sem hér eru áformuð, ekki kannske aðeins erlend, heldur og innlend. Þó er töluverður munur á hvort um er að ræða innlend lán eða erlend. En hér sýnast erlendar lántökur aukast meir en nokkru sinni fyrr. Í áætluninni er gert ráð fyrir að löng erlend lán, sem tekin verða á árinu 1981, nálgist 37% af vergri þjóðarframleiðslu. Þá dugar ekki lengur að gera samanburð við árið 1975, þegar þjóðarframleiðslan minnkaði og þegar viðskiptakjörin versnuðu. Það dugar ekki einu sinni að leita samanburðar svo langt aftur til að finna ár, sem hafi verið lakara í samanburði. Við gerum okkur grein fyrir því, að allt frá því að fjárlagafrv. var lagt fram á þingi og eftir því sem frá ríkisstj. hafa komið fleiri gögn, eftir því hafa verið tillögur um aukin útgjöld, um hærri lántökur. Nú síðast koma frá meiri hl. fjh.- og viðskn. Ed. tillögur um enn auknar erlendar lántökur, því að ekki hefur verið gerð grein fyrir með hvaða öðrum hætti ríkisstj. hyggst fjármagna þau útgjöld sem í lánsfjáráætlun er lagt til að verða við. Þannig stöndum við frammi fyrir því samkv. því skjali sem hér liggur fyrir, að árið 1981 sýnist munu verða mjög erfitt, að á árinu 1981 hefði þurft að taka á málum með allt öðrum hætti en sýnist að gera eigi og er framhald af því sem gerðist þegar fjárlagafrv. var samþykkt.
Út af fyrir sig er hægt um stuttan tíma að ná vissum árangri og þannig fá tilbúnar tölur til að skarta með og lýsa góðum árangri. Hæstv. forsrh. hefur sagt að verðbólgan núna væri 35% á ársgrundvelli. Þar er um að ræða 1.6% verðlagshækkun í jan. og lögð við 8.5% verðlagshækkunarspá — ekki staðreynd, heldur verðlagshækkunarspá fyrir mánuðina febrúar, mars og apríl. Þegar þessar tölur eru lagðar saman og gerðar upp með þreföldu margfeldi kemur út talan 35. Í fyrsta lagi er framfærsluvísitalan reiknuð út fjórum sinnum þannig að þá þegar er villa í dæminu. Í öðru lagi liggur ekki fyrir að framfærsluvísitalan hækki ekki meir en um 8.5% 1. maí. Líkur munu vera til að hún muni hækka meira, og hefur Þjóðhagsstofnun metið, en telur að það sé gert út frá öðrum forsendum, að hækkunin geti orðið 10–11%. Þegar reiknað er með 8.5% verðlagshækkun á milli þessara mánaða er ekki gert ráð fyrir neinni hækkun á opinberri þjónustu, þá er ekki gert ráð fyrir neinni hækkun á bensínverði sem ákveðin hefur verið, henni hefur verið frestað, og þá er ekki heldur gert ráð fyrir hækkun á landbúnaðarvörum vegna vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Þetta sýnir að þessi útreikningur er ekki til að byggja á í framtíðinni, því miður.
Þokkalegur jöfnuður er í ríkisfjármálunum, hefur heyrst og heyrðist framan af síðasta ári, en það dró dálítið úr því eftir því sem líða tók á árið og þegar nú er rætt um þokkalegan jöfnuð í ríkisfjármálunum um leið og skuldir ríkissjóðs hafa hækkað um 20 milljarða gkr. frá síðustu áramótum og skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann eru 31. mars 50 milljarðar gkr., þá sýnist ekki vera um að ræða framtíðarjöfnuð í ríkisfjármálunum, enda náðist hann aldrei.
Það er talað um stöðugt gengi á sama tíma og aðalgreinar útflutningsatvinnuvega eru reknar með halla. Það er að sjálfsögðu hægt að halda gengi óbreyttu, en til þess að slíkt geti gerst verða atvinnuvegirnir í landinu að geta gengið hallalaust.
Það er ljóst mál að ríkisfyrirtækin standa ekki betur en mörg atvinnufyrirtækin í frjálsum atvinnurekstri. Ég held ekki að jafnmargar beiðnir um hækkun á gjaldskrám eða jafnháar beiðnir um hækkun á gjaldskrám hafi legið fyrir hjá hinu opinbera áður. Ekki svo að skilja að eftir því skuli farið, heldur hitt, að ég hef ekki trú á að forstöðumenn opinberra stofnana séu að leika sér að því að senda ríkisstj. og verðlagsyfirvöldum beiðni um hærri gjaldskrár en þeir telja sig geta rökstutt. Ef til slíks kæmi, að forstöðumenn opinberra stofnana gerðu sér leik að því, sæjum við hvað verið væri að gera. Ég hef ekki þá trú, að það, sem þeir hafa lagt til, sé ekki á rökum reist. Það má svo vera að hægt sé að mæta því með öðrum hætti en hækkun gjaldskrár, og væri vonandi að það gæti gerst. Ég á þá ekki við lántökur þeim til handa, heldur með einum eða öðrum hætti rekstur og áform í framkvæmdum viðkomandi fyrirtækja.
Hvernig svo sem á þetta dæmi er lítið fæ ég ekki séð annað en sú áætlun, sem hér liggur fyrir, sýni okkur að fram undan eru erfiðir tímar og slíkt útlit að ég hefði talið að öðruvísi þyrfti við því að bregðast. En eins og ég vék að í ræðu minni eru vinnubrögðin við gerð þessarar lánsfjáráætlunar með þeim hætti að þau ein bera þess vitni, að ríkisstj. veldur ekki verkefninu. Þess vegna er útkoman 1980 eins og hún er. Þess vegna höfum við fyrir okkur áætlun, þjóðhagsspá árið 1981, fjárfestingarþjóðhagsspá sem gyllir ekki framtíðina, en við höfum líka fyrir okkur tillögur um ákvarðanir sem ganga þvert á þau sjónarmið. Ég vona að það, sem sagt er um þjóðhagsspána 1981, eigi eftir að verða betra en hér er spáð. Ég held hins vegar, að við ættum að taka betur mið af þeim spádómum og haga ákvörðunum okkar, aðgerðum okkar þar af leiðandi með öðrum hætti en hér er lagt til.