06.04.1981
Neðri deild: 71. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3463 í B-deild Alþingistíðinda. (3511)

209. mál, tollskrá

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég skal hafa mál mitt örstutt.

Ég fagna niðurstöðu hv. fjh.- og viðskn. og jafnframt því, að þetta mál skuli vera komið hingað. Það hefur, eins og hér hefur áður komið fram, verið til vansa hversu lengi þetta hefur verið á leiðinni. Ég vil jafnframt fagna því, að tvær till., sem ég bar fram á síðasta þingi á þskj. 292 og á þessu þingi á þskj. 76, hafa verið teknar hér inn. Fjallaði önnur um styttan eignartíma öryrkjabifreiða og hin um að menn gætu fengið notið tollívilnunar bæði samkv. 41. tölul. 3. gr. og samkv. 2. málsgr.

Það er aðeins eitt atriði sem ég vil víkja að hér, og það er áminning til hæstv. fjmrh. Það varðar verðlagningu öryrkjabifreiða. Tollurinn og bifreiðagjaldið er reiknað að fullu og ofan á þannig fengið verðmæti bílsins hafa verið lagðar allar prósentuálagningar, 3% vaxtakostnaður, 2% standsetningargjald og 6% álagning eða alls 11%. Þetta held ég að sé alrangt og þannig hafi verið raunverulega haft stórfé af öryrkjum. Ég þori varla til þess að hugsa hver sú upphæð kynni að vera. Innflytjandanum virðist þannig í framkvæmd hafa verið heimilt að leggja 11% álagningu á þá lækkun sem ríkissjóður hefur ákveðið til handa öryrkjum í 27. lið tollskrár. Í framkvæmd hefur þessum 27. lið verið gerbreytt, þar sem í stað þess að framkvæma ákvæði orðanna „að fella niður eða lækka“ er í raun farið að leggja tollinn á að fullu ásamt bifreiðagjaldi og endurgreiða þessi gjöld síðan. Ég vil mælast til þess að hæstv. fjmrh. geri tafarlaust ráðstafanir til þess að þessu verði hætt. Þar með mundi verð á bifreiðum öryrkja stórlega lækka.

Ég vil að lokum víkja að því, sem hv. þm. Magnús H. Magnússon hafði hér við niðurstöðu n. að athuga. Ég hef ekki kannske hugsað það mál alveg ofan í kjölinn, en hrædd er ég um að snögglega hugsuðu máli að ef tekjuákvæði væri í úthlutun öryrkjabifreiða gætu einmitt þeir, sem helst þurfa á bifreiðunum að halda, dottið út úr þessari fyrirgreiðslu. Ég held að á bak við úthlutunina hafi ekki síst verið sú hugsun að þessar bifreiðar gætu gert mönnum kleift að komast út á vinnumarkaðinn og vinna fyrir sér, og ég væri dálítið hrædd um að einmitt það fólk, sem getur stundað vinnu og hefur þar af leiðandi verulegar tekjur, og það má kannske hugsa sér að maki hafi tekjur líka, það fólk yrði út undan. Nú hef ég ekki neinar tölulegar upplýsingar um þetta og hef ekki hugsað þetta mál alveg fyrr en ég heyrði hv. þm. tala um þetta rétt áðan, en mér kæmi ekki á óvart þó að þetta gæti orðið alvarlegur „skavanki“ á því sem þm. var að tala um.

En ég vil að lokum leggja á það áherslu, að þetta frv. verði ekki stöðvað lengur hér í hv. deild. Ég tel afar brýnt að það verði afgreitt nú þegar svo að það komi ekki til með að tefja stórlega úthlutun á bifreiðum til öryrkja að þessu sinni, sem vera má að það hljóti að gera úr þessu. Þetta hefur tekið allt of langan tíma.