06.04.1981
Neðri deild: 71. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3466 í B-deild Alþingistíðinda. (3515)

209. mál, tollskrá

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Ég skal ekki níðast á tíma deildarinnar, en þetta er ekki í fyrsta skipti að mál af sama toga spunnið kemst í eindaga á hinu háa Alþingi. Það sama gerðist í fyrra. Ég vil ítreka það sem ég sagði við umr. um sams konar frv. á síðasta ári, að mjög nauðsynlegt er orðið að endurskoða allar úthlutunarreglur á bifreiðum til öryrkja. Það er í sjálfu sér eðlileg till. sem hv. þm. Albert Guðmundsson flytur, en því miður fær hún ekki staðist miðað við þær reglur sem nú eru notaðar.

Ég sagði einnig í fyrra, og beindi orðum mínum til hæstv. félmrh. Svavars Gestssonar, að það yrði að taka inn í þessar reglur ákvæði um efnahag umsækjenda. Ég man ekki betur en hæstv. félmrh. tæki undir þessi orð mín og léti þá skoðun sína í ljós að þetta þyrfti að endurskoða.

Ég vil benda á að ef ekki verða notaðar hámarkstölur í frv. af þessu tagi og miðað við þær úthlutunarreglur sem nú gilda mundi það eingöngu, því miður, losa um nauðsynlegt aðhald. Þess vegna styð ég og er hlynntur till. eins og hún kemur frá meiri hl. n. og mun styðja hana þannig, þó svo að till. hv. þm. Alberts Guðmundssonar sé hin æskilega lausn á málinu. En hún bara gildir ekki núna, því miður. Og ég vil láta þá skoðun mína í ljós, að það þurfi fyrr en síðar að taka öll þessi mál til kirfilegrar endurskoðunar. Það eru allt of mörg dæmi þess, að fólk, sem ekki hefur sjáanlega brýna þörf fyrir þessa niðurfellingu, fái úthlutað, og það eru dæmi til þess, að fólk, sem er þannig sett efnahagslega að það hefur enga þörf á niðurfellingunni, fær hana engu að síður. Þessum atriðum þurfum við að breyta og þegar það er búið og búið er að vanda betur til úthlutunarreglna væri hægt að samþykkja með bros á vör till. eins og hv. þm. Albert Guðmundsson hefur flutt.