08.04.1981
Efri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3527 í B-deild Alþingistíðinda. (3561)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Frsm. 2. minni hl. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 614 brtt. við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1981 ásamt hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni. Till. er svohljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Ný grein komi á eftir 3. gr. er verði 4. gr. og orðist svo:
Ríkisstj. er heimilt á árinu I 981 að taka lán að upphæð allt að 20 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, sem verja skal til greiðslu byrjunarkostnaðar við byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavikurflugvelli samkv. nánari ákvörðun utanrrh.“
Þessi till. er flutt af minni hálfu í samráði við minn þingflokk og þm. Sjálfstfl.
Eins og kunnugt er hafa þrír stjórnmálaflokkar lýst skoðun sinni á þessu máli og eru því samþykkir, að í þessa framkvæmd verði ráðist. Á fjárlögum Bandaríkjaþings er fjárveiting í þetta fyrirtæki. Hún er grundvölluð á því, að það sé í þágu varnarliðsins einnig að þessi bygging rísi.
Það er augljóst þrifamál að stuðlað verði að aðskilnaði á starfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og annarri starfsemi þar. Enn fremur hefur verið sýnt fram á að þessi nýbygging muni efla mjög ferðaþjónustu, bæði fyrir Íslendinga og fyrir þá sem sækja heim landið, og að þessi framkvæmd sé arðbær og skili því fjármagni til baka sem í hana er lagt. Þess vegna tel ég fráleitar þær umr. sem hafa farið fram um að fjármagni, sem yrði í þetta varið, ætti frekar að verja til einhverra annarra þarfa, t. d. á sviði flugmála. Það er auðvitað lengi hægt að ræða málin í slíku samhengi, eins og t. d. að það væri hægt að nota fjármagn, sem fer í spítalabyggingar fyrir alla landsmenn hér á Reykjavíkursvæðinu, einhvers staðar úti á landsbyggðinni. Það er auðvitað rétt að flugráð hefur fengið óblíðan niðurskurð á tillögum sínum undanfarin ár og kann því að vilja taka einhverjar framkvæmdir fram yfir þessa, en það er önnur saga.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Það hefur verið mikið um það rætt í almennri umræðu undanfarið og ég hygg að öllum almenningi og þingheimi séu málsatvik ljós í þessu efni. Ég legg áherslu á það að lokum út af þessari brtt., að hún er með vilja almenn heimild fyrir ríkisstj. til að greiða þennan byrjunarkostnað í samráði við utanrrh. og hefur því ríkisstj. það í hendi sinni hvort af framkvæmdum verður. Hér er ekki um fyrirmæli að ræða af hálfu Alþingis. Ríkisstj. hefur í hendi sinni hvernig hún framkvæmir þessa heimild.
Að lokum vil ég nota tækifærið, af því að hæstv. fjmrh. er hér staddur og var ekki við 2. umr. um lánsfjárlög í þessari hv. deild, og spyrja um eitt atriði sem mér er nokkur forvitni á að vita um í sambandi við lánsfjárlögin og afgreiðslu þeirra. Það mun vera gert ráð fyrir því í lánsfjáráætlun og lánsfjárlögum, sem staðfesta hana, að ríkissjóður taki 3 milljarða gkr. lán til að greiða sjóðum Tryggingastofnunar ríkisins skuld, en að ríkissjóður taki jafnframt á móti 3 milljarða gkr. lán frá sömu sjóðum til að fjármagna sjálfan sig. Ég hef ekki fengið botn í hvað þarna er á ferðinni. Þetta er furðufyrirbrigði sem ég hef ekki séð áður í lánsfjárlögum. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hverju þetta sætir.