08.04.1981
Efri deild: 75. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3549 í B-deild Alþingistíðinda. (3589)
209. mál, tollskrá
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Að gefnu tilefni í stuttri ræðu hv. þm. Lárusar Jónssonar vil ég vekja athygli á því, að gervilimir og hjálpartæki af slíku tagi eru, að því er mér er best kunnugt og ég hygg að það sé alveg öruggt, ekki pöntuð eftir verðlistum utan úr heimi og Tryggingastofnun ríkisins greiðir a. m. k. gervilimina til fólksins að fullu.
Hitt er annað mál, að það skiptir ákaflega miklu máli hvort aðflutningsgjöldin eru felld niður og álagningin miðuð við verð vörunnar þegar búið er að fella gjöldin niður eða hvort þessi gjöld eru endurgreidd þannig að fyrst sé lagt fullt á vöruna, miðað við fullkomin aðflutningsgjöld og toll, og síðan þessi upphæð endurgreidd. Þetta er ákaflega mikið atriði í sambandi við afgreiðslu á frv. sem við fjöllum um núna, vegna þess að í hinum eldri lögum stendur að tollar og aðflutningsgjöld skuli felld niður að þessu marki, en reyndin hefur orðið sú, að þessi upphæð hefur verið endurgreidd. Innflytjendur hafa lagt fulla álagningu og þjónustugjöld ofan á tollinn fullgreiddan. Þetta fatlaða fólk hefur síðan fengið niðurfellinguna greidda til baka, en þá er innflytjandinn búinn að leggja fulla álagningu ofan á verðið eins og ekki hefði verið um nema niðurfellingu að ræða. Það virðist vera komin hefð á þetta þrátt fyrir skýlaus ákvæði laga.
Nú mun það vera þannig, að stundum hefur viljað við bregða að lagabrot, sem iðkuð hafa verið mjög lengi með opinberri vitund, séu færð í lög. Nægir að minna á síldarmálin frægu við Eyjafjörð, þar sem það var raunar löggilt á sínum tíma, eftir að það var búið að „praktisera“ það lengi að falsa málin, að íslenski hektólítrinn skyldi vera 136 lítrar. Ég hygg að það sé alveg bráðnauðsynlegt að gera ráðstafanir til þess að þetta verði ekki iðkað á þann hátt sem verið hefur, að aðflutningsgjöldin verði raunverulega felld niður svo sem segir fyrir um í lögum og álagning verði síðan eingöngu miðuð við verð bifreiðarinnar plús hin raunverulegu aðflutningsgjöld. Ég beini því til fjmrh„ fyrst svo fór að það var ekki fellt í lögin sjálf hvernig verð skuli útreiknað, að sjá til þess, að þessi „praxís“ verði nú endurskoðaður.