08.04.1981
Neðri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3552 í B-deild Alþingistíðinda. (3597)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Þessi málflutningur hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar er furðulegur. Ég hélt að hann væri kjörinn til þess, að vísu kannske ekki á Alþingi, heldur í sínu félagi sem hann er formaður fyrir, að reyna að gæta hagsmuna hins vinnandi fólks í þessu landi. Nú hefur hv. þm. Halldór Blöndal bent á og fengið staðfest af Kjararannsóknarnefnd, þó svo að hin raunverulega tala í síðari tilvikinu hafi ekki verið nefnd, að hækkun atvinnutekna 1979 til 1981 sé verulega meiri en hækkun kauptaxta á sama tímabili. Þetta merkir að skattalagabreytingar, sem miðaðar eru við hækkun á kauptöxtum, hljóta að þýða það, vegna þess að atvinnutekjur hafa hækkað meira, að meira sé tekið af launafólkinu í skatta en látið er í veðri vaka. Það er alveg furðulegt að formaður Verkamannasambands Íslands skuli vera að gera sér leik að því að snúa út úr þessum staðreyndum. Ég er hræddur um, herra forseti, að það hefði ekki gerst á árunum áður að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og aðrir launþegaforingjar hefðu látið það henda sig að ganga á fund þáv. fjmrh., hv. þm. Matthíasar Á. Mathiesens, sitja með honum einn fund og samþykkja að fundinum loknum þá niðurstöðu hæstv. fjmrh., að um verulega skattalækkun væri að ræða fyrir launþega, án þess að gera minnstu tilraun til að afla sér sjálfir frétta af því með t. d. viðræðum við sérfræðinga Alþýðusambands Íslands eða kauplagsnefndar, hvort þessir útreikningar hæstv. fjmrh. væru reistir á réttum grundvelli.

Nú hefur hv. þm. Halldór Blöndal sýnt og sannað hér og fengið staðfest að útreikningar hæstv. fjmrh. eru ekki réttir að því leytinu til, að skattalækkunin er þar miðuð við hækkun kauptaxta milli áranna, sem er minni en hækkun atvinnutekna. Þar af leiðandi hlýtur það að fela í sér allverulega breytingu til óhagræðis í skattlagningu fyrir almenna launþega. En það er e. t. v. eitt af mörgu sem kemur manni nú á óvart, að hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson og aðrir hans nótar eru nú allt í einu orðnir þögul vitni. Þeir eru nú allt í einu orðnir þau þögulu vitni sem aldrei og hvergi þurfa að taka til máls, ef hagsmunir launþega eru í húfi, og láta það henda sig að koma upp í ræðustól, eins og hv. þm. gerði áðan, til þess að snúa út úr upplýsingum, sem eru tölulega staðfestar, til að reyna að varpa ryki í augu almennings í þessu landi þegar sannarlega er verið að láta í veðri vaka að skattalagabreytingar, sem gerðar eru og hafa að vísu jákvæð áhrif fyrir fólk, séu meira virði en raun ber vitni.

Ég hef áður sagt það úr þessum ræðustól, að það er orðið hlutverk verkalýðsforingja Alþb. að tala með rödd Jakobs þó svo að hendurnar séu hendur Esaús. Framkoma hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar áðan sannar þetta.