08.04.1981
Neðri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3554 í B-deild Alþingistíðinda. (3606)

158. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Frsm. meiri hl. (Ingólfur Guðnason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 506 um frv. til l. um sérstakan skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og mæli fyrir hönd meiri hl. fjh.- og viðskn.

Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir meiri hl. hennar með því, að það verði samþykkt, og er það í samræmi við afgreiðslu fjárlaga. Undir nál. skrifa Halldór Ásgrímsson, Ingólfur Guðnason, Guðmundur J. Guðmundsson og Sighvatur Björgvinsson.