08.04.1981
Neðri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3554 í B-deild Alþingistíðinda. (3607)

158. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði

Frsm. minni hl. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Nefndarmenn Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. eru andvígir þessu frv. Eins og fram kom hjá frsm. meiri hl. n., stjórnarsinna og litla stjórnarandstöðuflokksins, Alþfl., er þeim umhugað um að halda áfram þessum rangláta skatti, sameiginlegu afkvæmi þeirra, sérstökum skatti á verslunar- og skrifstofuhúsnæði sem vinstri stjórnin setti á haustið 1978 eftir að sú stjórn var mynduð. Sjálfstfl. lýsti þá yfir andstöðu sinni við þessa skattlagningu og í þau skipti, sem þessi skattlagning hefur verið endurnýjuð, hefur Sjálfstfl. lýst yfir andstöðu sinni. Því kemur mér það mjög á óvart að sjá þetta frv. flutt sem stjfrv., að hæstv. þrír ráðh., sem sæti eiga í þessari ríkisstj., voru einhuga um að mótmæla þessum skatti haustið 1978 og 1979 og tóku ekkert minna upp í sig en við hinir um ranglæti þessa skatts. Mér væri töluverð forvitni að heyra, sérstaklega af því að tveir þeirra eru nú hér inni í þd., hvað hafi breytt afstöðu þeirra til þessarar skattlagningar, hvort þeir hafi sannfærst um að hér væri um sanngjarnan og réttlátan skatt að ræða, sem þeir töldu vera mjög ranglátan haustið 1978, eða hvaða ástæður liggi til grundvallar þeim skoðanaskiptum sem virðast eiga sér stað ef rétt er að þetta frv. sé frv. ríkisstj. í heild.

Þetta er ekta vinstri skattur, enda getur Alþfl. ekki slitið sig frá þessum skatti. Það sést á því, að hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hengir sig utan á stjórnarliðið, Framsfl. og Alþb., til þess að fá að vera með í því að framlengja enn einu sinni þennan skatt og gera verslun og viðskiptum í landinu áframhaldandi bölvun. Þetta er í framhaldi þeirrar stefnu sem vinstri stjórnin tók upp með því að hækka eignarskatta yfir 50% ofan á þessa sérsköttun á ýmsum sviðum. Eignarsköttunum er haldið áfram alveg óbreyttum af þessari stjórn, enda alveg dæmigerðir vinstristjórnarskattar. Það er furða að Alþfl., sem telur sig stjórnarandstöðuflokk, sem telur að ríkisstj. leggi allt of háa skatta á samfélagið, skuli standa að slíkri skattlagningu. Ekki verða þessir skattar greiddir af þeim sem byggja eða eiga verslunar- og skrifstofuhúsnæði nema leggja það með einhverju móti á reksturinn. Í reynd verða það því viðskiptamennirnir sem verða undir þessu að standa þegar til lengdar lætur. Þetta er því ein skattlagningin á almenning til viðbótar við allar skattlagningar sem fyrir eru. Það þýðir svo lítið að koma hér upp í ræðustól öðru hvoru og berja sér á brjóst og segja að skattarnir séu orðnir allt of háir í þessu þjóðfélagi og það verði að gera sérstakar ráðstafanir til að lækka þá, en hengja sig svo alltaf þegar tækifæri gefst utan á skattpíningarflokka eins og Alþb. og Framsfl.

Með tilliti til þess, sem ég hef sagt, erum við fulltrúar Sjálfstfl. í n. andvígir þessari sérstöku skattlagningu á verslunar- og skrifstofuhúsnæði, eins og við vorum þegar þetta frv. var fyrst lagt fram.

Það skýtur nokkuð skökku við hvað snertir Framsfl. þegar hann er að tala um hvað erfitt sé um verslun og viðskipti víða úti um land. Er ein leiðin til að auka og efla uppbyggingu verslunar úti á landi að bæta alltaf við nýjum sköttum á þessa atvinnugrein? Hvað er þessi flokkur að fara? Veit hann ekkert hvað hann er að fara — eða eru þetta sömu blekkingarnar og alltaf eru viðhafðar? Það vantar ekki, þegar verið er að tala um viðskipti, áhuga á að verði að jafna hér kjörin á milli byggða. Ég sé ekki annað en það eigi að leggja alveg jafnt þessa skatta á úti á landi og á Reykjavíkursvæðinu. Í þessu tilfelli þykir framsóknarmönnum þetta ágætt og sér í lagi hafa þeir forgöngu um að mæla með þessum skapnaði með því að senda einn sinna manna hingað í ræðustól.

Ég tel þetta frv. alfarið vera ranglátt, alveg eins nú og haustið 1978, og legg því til að frv. verði fellt.