08.04.1981
Neðri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3564 í B-deild Alþingistíðinda. (3618)
158. mál, skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
Frsm. minni hl. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir að standa hér upp og lýsa yfir skoðun sinni. Mér er alveg ljóst að þm. eru misjafnlega ánægðir með að leggja á nýja skatta eða samþykkja hækkun skatta svo ég get vel skilið sálarlíf hans hvað það snertir. Hins vegar vil ég benda honum á þetta í fullri vinsemd:
Hér er um að ræða sérstakan eignarskatt sem skal nema 1.4% af skattstofni. Vinstri stjórnin hækkaði haustið 1978 þessa skattlagningu um 50`% og núna hækkar þessi skattstofn á milli ára samkvæmt nýframkomnu skattafrv. ríkisstj. aðeins um skattvísitöluna, sem er mjög mikið undir launabreytingum sem urðu á milli ára. Þó við sleppum þeim og lítum eingöngu á mismun fasteignaskatta og fasteignamats er meðaltal fasteignaskatta og fasteignamats mun hærra og sennilega ekki mikið undir 60% þó að ég þori ekki að fullyrða það nákvæmlega, en það er langt yfir 45% eins og skattvísitalan gerir ráð fyrir. Hæstv. ríkisstj. og þar með okkar kæru flokksbræður, sem því miður sitja í þeirri ríkisstj., verða því að gera sér grein fyrir því, að ofan á eignarskattana kom 50% álag að tilstuðlan vinstristjórnarflokkanna haustið 1978 og nú á milli áranna 1980 og 1981 eru þessir skattar í reynd stórhækkaðir hvað þetta snertir samkv. því skattalagafrv. sem ríkisstj. leggur núna fram. Það er því að bera í bakkafullan lækinn að leggja 1.4% sérstakan eignarskatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Það skiptir í sjálfu sér ekki höfuðmáli þó að það sé gert ráð fyrir þessum skatti í fjárlögum. Það eru margar breytingar gerðar á fjárlögum á yfirstandandi fjárlagaári. Ef menn viðurkenna að hér er um ranglátan skatt að ræða og að hafa gert vitleysu einu sinni er enn þá tími til þess að bjarga sér. Það þarf ekki endilega að hlaupa út í djúpa á og sökkva í hylinn. Menn geta stöðvast á bakkanum þó þeir hafi farið óvarlega og of tæpt á bakkann. Það er enn þá hægt að bjarga sér. Menn þurfa ekki endilega að fara á bólakaf. Þetta vildi ég nú segja við hæstv. dómsmrh. og hæstv. landbrh. sem hlustar á þessar umr.
Hér er um mjög róttækar breytingar að ræða. Það er eftirtektarvert, að þegar við sjálfstæðismenn höfum verið í stjórn höfum við ekki farið lengra með eignarskattana en þetta. Í þau fjögur ár, sem við sátum í ríkisstj. með Framsfl., fór Framsfl. aldrei fram á hækkun á eignarsköttum fram yfir það sem þeir voru í lok stjórnartímabils ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Það er ekki fyrr en flokkurinn er kominn í vinstri stjórn sem þessi skattstofn er hækkaður um 50%, strax haustið 1978. Nú gerist það, hvort sem það er slys eða ásetningur, að eignarskattsstofninn hækkar aðeins um 45% á milli ára þegar liggur fyrir — eins og ég sagði áðan — nálægt 60% fasteignamats og fasteignaskatta. Þetta kemur ekki á auðmenn í landinu eina, það vitum við. Þetta kemur á venjulega húseigendur, á launafólkið í landinu. Þetta er aukaskattur til viðbótar á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Ef það voru rétt rök, sem fram voru borin haustið 1978 m. a. af Alþfl., verður Alþfl. að átta sig á því, að ekki dugir að vera í taumi hjá Framsfl. og Alþb. núna. Það var ógnarslys að þeir skyldu koma taumnum á Sighvat í nefndinni. Vilmundur Gylfason hefur flokkað krata í þrjá gæðaflokka og lakasti gæðaflokkurinn eru vanmetakratar. Ég hélt að það mundi aldrei henda Vilmund að tala fyrir vanmetakrata því Vilmundur er alls ekki skattpíningarmaður, síður en svo. En Sighvatur, veslings Sighvatur. Mér er sárt um það, af því að mér er vel við hann, að hann skuli lenda í þriðja gæðaflokki, ungur og hraustur maður. En Jón Baldvin Hannibalsson ber alveg af í þessum efnum. Hann er í fyrsta gæðaflokki og hann tekur skynsamlega á þessu máli. Hann álpast ekki í sama fenið og Sighvatur á eftir Alþb. og Framsókn, og hann er maður að meiri. En það er alveg eins með Vilmund Gylfason, m. a. s. Sighvat líka, að enn þá má bjarga sér frá að lenda á bólakaf í hylnum, alveg eins og flokksbræður okkar í ráðherrastólunum geta það enn þá, og fella þennan óskapnað, fella þessa trylltu skattlagningu Framsóknar og Alþb.
Það vantar ekki að Framsfl. er alltaf á móti öllum sköttum þegar framsóknarmenn koma saman til fundar. Það er engin furða þó að t. d. dagblaðið Tíminn sé alveg undrandi yfir því, að jafntraust forusta og er í Framsfl. skuli vera endurkosin, eins og blaðið sagði sjálft, og það með 98 eða 99% atkvæða. Þetta er svipað hlutfall og gamli Stalín fékk alltaf í sínu kjördæmi, gamli Grúsíu-Stalín. Það eru karlar sem kunna að halda á sálunum sínum. En hitt er svo annað mál, að ef þessi flokkur er skoðaður í hnotskurn, ef borið er saman samþykktir hans og gerðir, þá færu þeir, ef það eru einhverjir þar á bás sem hugsa, að efast um gæðin. Þá kæmust fáir í fyrsta eða annan gæðaflokk í Framsfl. Ég held þeir lendi þá allir í þriðja flokki þar, í úrkastinu. Ég veit ekki hvað þeir heita þar, flokkarnir, en þeir heita vanmetakratar í Alþfl. sem eru í þriðja flokki þar.
Ég ætla ekki að orðlengja frekar um þetta frv., en ég endurtek það við þá, sem ekki eru skattpíningarmenn, að halda ekki áfram að reyna að þvinga þetta mál í gegn. Þeir eru æðimargir hér í þinginu sem ekki eru skattpíningarmenn. Til eru hér í þingsölum menn sem aldrei finnst nóg lagt á af nýjum sköttum og vilja alltaf leggja fleiri nýja skatta á, en við hinir ættum að sameinast í því að fella þetta frv.