09.04.1981
Sameinað þing: 72. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3570 í B-deild Alþingistíðinda. (3624)
266. mál, raforkuflutningur til Vesturlands
Fyrirspyrjandi (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 532 að leggja fyrir hæstv. iðnrh. svohljóðandi spurningar:
1. Hvaða þátt á sú bilun, sem verið hefur á rafmagnssæstrengnum yfir Hvalfjörð frá 23. des. s. l., í þeim rafmagnstruflunum sem verið hafa á Vesturlandi undanfarið?
2. Eru fleiri ástæður en veðurfar sem komið hafa í veg fyrir viðgerð á Hvalfjarðarstrengnum?
3. Hvaða áætlanir eru til um nýjar flutningslínur raforku til og um Vesturland?
4. Hvernig verður brugðist við og aflað raforku fyrir Vesturland ef bilanir verða á linunni frá Geithálsi að Vatnshömrum í Borgarfirði? Er þá t. d. búnaður til staðar til að fá raforku frá Norðurlandi á vestursvæðið?
Þessar spurningar mínar eru fyrst og fremst til komnar af því, að á s. l. vetri hafa verið meiri og minni rafmagnstruflanir á Vesturlandi og hvaða þátt sú bilun, sem átti sér stað í sambandi við sæstrenginn yfir Hvalfjörð, á í þeim. Okkur hafði reyndar verið sagt að sá strengur ætti ekki að skipta miklu máli eftir að línan frá Geithálsi fyrir Hvalfjörð væri komin. Okkur hefur verið sagt nú að truflanirnar stafi fyrst og fremst af því, að þessi strengur sé bilaður og orkubúnaðurinn á Vatnshömrum væri þannig, að þegar orka kæmi ekki eftir þessum streng skilaði sér ekki eðlileg orka á vestursvæðið.
Önnur spurningin er þessi: Eru fleiri ástæður en veðurfar sem komið hafa í veg fyrir viðgerð á Hvalfjarðarstrengnum?
Frá því 23. des. hefur þessi strengur verið bilaður. Það er ótrúleg saga að það geti átt sér stað að ekki sé hægt að gera við rafmagnsflutningslinu á öllum þessum tíma. Það þarf að kanna þetta mál vel ef vera kynni að það ástand endurtæki sig að heill vetur liði án þess að gert væri við flutningslínu sem þessa. Það er erfitt að trúa því að ekki valdi fleiri ástæður en sú ein að veðurfar hafi hamlað.
Þriðja spurningin er um áætlanir um nýjar flutningslínur til Vesturlands. Eins og ástandið er í dag er þarna aðeins ein flutningslina, þ. e línan frá Brennimel um Skarðsheiði. Ef sú lína bilar er mjög lítið vararafmagn fyrir hendi á Vesturlandi þannig að mikill hluti svæðisins yrði rafmagnslaus og skömmtun mjög mikil. Það er mjög knýjandi að ný lina, aukalina, komi um þetta svæði sem tryggi flutning á svæðið við bilun Skarðsheiðarlinunnar.
Í fjórða lagi er svo spurning um það, hvort ekki mætti bregða á það ráð að fá rafmagn frá Norðurlandi ef línan um Skarðsheiði bilar. Í vetur þegar þetta kom fyrir, að linan um Skarðsheiði bilaði, virtust engin tök á því að fá rafmagn frá Norðvesturlandi, sem er nú reyndar, eins og hv. þm. vita, mjög takmarkað, en það hefði getað breytt mjög miklu um skömmtun á Vesturlandi. Það virtust engin tök vera á því að fá rafmagn frá Hrútatungu yfir að Glerárskógum eða inn á vesturlínuna frá Norðurlandi. Það er vitaskuld höfuðatriði að þessi flutningur geti átt sér stað, að hringtengingin verki á báða vegu. Þessi spurning er fyrst og fremst fram borin til að leggja áherslu á það, að þannig verði búið um hnúta að hringtengingin verki alveg eins í vesturátt og í norður og austur.