09.04.1981
Sameinað þing: 72. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3582 í B-deild Alþingistíðinda. (3639)

386. mál, símamál í Kjósarhreppi

Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Á þskj. 549 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um símamál í Kjósarhreppi. Fyrirspurnin er stutt og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Hvað líður framkvæmdum við sjálfvirkan síma í Kjósarhreppi?“

Þessi fsp. er borin fram í framhaldi af fsp. minni fyrir ári um sama efni ásamt símamálum í Kjalarneshreppi. Símamál þar eru nú í höfn og því langar mig að vita hvort ekki verði örugglega staðið við þau fyrirheit sem gefin voru um sjálfvirkan síma í Kjósinni á þessu ári.

Kjósverjar eru eðlilega nokkuð óþolinmóðir að bíða eftir sjálfvirka símanum. Þeir eru búnir að biða nokkuð lengi, sennilega í áratug, og ekki hefur ástandið batnað eftir óveðrið sem gekk yfir í vetur. Síðan hefur síminn verið meira og minna í ólagi þar sem símalínur slást saman. Er þó varla á bætandi því að víðast hvar eru 10–12 bæir um sömu línu.

Ég leyfi mér að vænta þess að svör hæstv. samgrh. verði hagstæð Kjósverjum í þessu máli.