09.04.1981
Neðri deild: 75. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3592 í B-deild Alþingistíðinda. (3651)

298. mál, úrskurðaraðili í deilu um starfsaldurslista flugmanna

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Þingflokkur sjálfstæðismanna tekur fram að samráð hefur ekki verið haft við fulltrúa flokksins um mál þetta fyrr en kl. 13 í dag. Mál þetta hefur algerlega verið í höndum ríkisstj. og hlýtur hún að bera alla ábyrgð á meðferð þessa margþætta máls. Með tilvísun til þess, að hér er um viðkvæmt og mikilvægt mál að ræða, munu þm. Sjálfstfl. ekki leggja stein í götu afgreiðslu málsins á þeim skamma tíma sem Alþingi er ætlað að fjalla um málið. Þm. Sjálfstfl. taka ekki efnislega afstöðu til frv. og munu því sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Herra forseti. Einu afskiptin, sem þingflokkur sjálfstæðismanna mun hafa af meðferð málsins, eru að leggja til að málið sé nefnt sínu rétta nafni, þ .e. frv. til l. um gerðardóm, en ekki frv. til l. um úrskurðaraðila o. s. frv.

Alþb. seilist í þessu efni langt um hurð til lokunnar í yfirdrepsskapnum til þess að reyna að leyna því, að takist sættir ekki er hér auðvitað um gerðardóm að ræða að undangengnu banni við verkfalli og ekkert annað. Auðvitað er svo Framsfl. reiðubúinn að þjónusta þá Alþb. menn eins og fyrri daginn og kemur engum á óvart.