09.04.1981
Efri deild: 78. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3600 í B-deild Alþingistíðinda. (3670)

298. mál, úrskurðaraðili í deilu um starfsaldurslista flugmanna

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Ég er í grundvallaratriðum andvígur afskiptum ríkisvaldsins af kjaradeilum sé þess ekki óskað af báðum aðilum. Ég tel mál það, er hér liggur fyrir, ekki deilu um kjaramál, ekki deilu sem stundum er nefnd stéttabarátta, og eigi því ekkert skylt við þá baráttu sem verkalýðshreyfingin hefur þurft að heyja fyrir betri lífskjörum.

Verði af boðuðu verkfalli er atvinnuöryggi fjölda verkafólks stefnt í hættu. Vil ég í þessu sambandi upplýsa að nær allir starfsmenn flugleiða á Keflavíkurflugvelli hafa undirritað mótmæli gegn þessu verkfalli og fordæmt það. Það er ekki verjandi að örfáir einstaklingar valdi öðrum starfsstéttum með margfalt lægri laun þvílíkum búsifjum sem felast í ógnun við atvinnuöryggi. Ég segi því já.