06.11.1980
Sameinað þing: 15. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (368)
1. mál, fjárlög 1981
Viðskrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Hæstv. fjmrh. hefur gert ítarlega grein fyrir fjárlagafrv. og sé ég ekki ástæðu til að ræða frekar um það nema í einstökum tilvikum. Fyrst mun ég fjalla um þróun ríkisfjármála á s.l. tveim árum og horfum fram undan.
Þegar ég kom að fjármálum ríkisins 1. sept. 1978 var ákveðið að breyta hluta af verðbólguvandanum í ríkisfjármálavanda, m.a. til þess að koma með skjótum hætti í veg fyrir ófremdarástand í atvinnulífi landsmanna. Tekið var skyndilán hjá Seðlabankanum að upphæð 2.9 milljarðar kr. Af þessum sökum og fleirum reyndist árið 1979 um margt óhagstætt fyrir þróun ríkisfjármála. Ég setti í upphafi það mark, að skyndilán Seðlabanka yrði greitt upp á árinu 1979, þannig að jöfnuður næðist í ríkisfjármálunum á því ári.
Þegar kom fram á sumarið 1979 var sýnt að það mundi heldur betur hallast á merinni hjá ríkinu. Ég setti því mikla pressu á og heimtaði annaðhvort niðurskurð ríkisútgjalda eða auknar tekjur. Eftir harðar sviptingar tókst að tryggja nýja tekjustofna fyrir ríkissjóð sem lögðu grundvöll að bættum hag hans. Viðbótartekjur þessara tekjustofna haustið 1979 gefa t.d. ríkissjóði 22.2 milljarða kr. í tekjur á næsta ári miðað við forsendur fjárlagafrv. Rekstrarútkoma ríkissjóðs árið 1979 var raunverulega jákvæð um 1 600 millj. kr. þrátt fyrir miklar hrakspár. Þá er tekið inn í dæmið 4.5 milljarða kr. víxillán sem tekið var út á hina nýju tekjustofna haustlaganna. Lánið var greitt á fyrstu mánuðum þessa árs, og áfram nýtur ríkissjóður þessara tekna eins og áður segir.
31. des. 1978 skuldaði ríkissjóður Seðlabankanum 26.4 milljarða kr. Ári síðar, 31. des. 1979, var skuldin 0.3 milljörðum kr. hærri í krónum og eftir uppfærslu verðbóta var heildarskuldin 28.7 milljarðar kr. Við árslok 1978 námu skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann 15.9% af ríkistekjum það ár. Í árslok 1979 námu skuldirnar ekki nema 12.2% af ríkistekjunum. Það er því staðreynd sem ekki verður hnekkt, að á árinu 1979 lækkuðu skuldir ríkissjóðs við Seðlabankann um 3.7% miðað við ríkistekjur.
Í ársskýrslu, sem flutt var á aðalfundi Seðlabankans 14. maí 1980, segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Þótt verulega dragi úr halla ríkissjóðs þegar á árinu 1976, hefur leiðin til jafnvægis og hvað þá greiðsluafgangs í ríkisbúskapnum reynst ærið torsótt og hélt skuldasöfnun ríkissjóðs við Seðlabankann áfram ár hvert allt til ársins 1978. Á s.l. ári urðu þau mikilsverðu umskipti, að lítilsháttar greiðsluafgangur varð í viðskiptum ríkissjóðs við Seðlabankann í fyrsta skipti síðan 1972. Hafði skuldasöfnun ríkissjóðs átt drjúgan þátt í því að veikja stjórn peningamála fram að þessu, og skiptir því miklu máli að ekki verði hvikað frá ásetningi sem fram kemur í afgreiðslu fjárlaga og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1980 um lækkun skuldarinnar við Seðlabankann í samræmi við gerða samninga. En í lok ársins 1979 nam nettóskuld ríkissjóðs við bankann 28 milljörðum. kr.“
Þetta var álit Seðlabankans um þau mikilsverðu umskipti ríkisfjármátanna sem urðu á árinu 1979. Þessi breyting til batnaðar lýsti sér annars vegar í því, að greiðsluafgangur varð í viðskiptum ríkissjóðs við Seðlabankann, og hins vegar í þeirri staðreynd, að á árinu 1979 lækkuðu skuldir við Seðlabankann, miðað við ríkistekjur um 3.7%, eins og áður er fram tekið.
Ég vona að þessi þróun haldi áfram á þessu ári og því næsta. Það er ástæða til að vekja athygli á nokkrum sérstæðum útgjaldaliðum fjárlaganna árið 1979–1980 og frv. fyrir árið 1981.
Í fyrsta lagi vil ég nefna fjármagnsútgjöld vegna Kröfluvirkjunar sem komu fyrst inn í útgjaldaliði fjárlaga árið 1979 og námu það ár 2 milljörðum og 80 millj. kr. Á yfirstandandi ári nema fjármagnsútgjöld vegna Kröflu 3 milljörðum 900 millj. kr., og í fjárlagafrv. fyrir árið 1981 nemur þessi upphæð 6 milljörðum 275 millj. kr. Á þremur árum nema útgjöld fjárlaga vegna Kröfluvirkjunar því samtals 12.2 milljörðum kr. Þá vil ég nefna vaxtagreiðslur ríkissjóðs, en þær nema samtals hvorki meira né minna en 40 milljörðum kr. á þessum þremur árum.
Þá vil ég í þriðja lagi nefna lækkun tolla vegna samnings við Efnahagsbandalag Evrópu og afnám söluskatts af ýmsum matvörum. Þetta skýrir það, að ýmsir aðrir skattar hafa hækkað. Ég vona að ríkisstj. og hæstv. fjmrh. takist að halda áfram því verki sem grundvöllur var lagður að í tíð ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar og leiddi til umskipta í fjármálum ríkisins þegar á árinu 1979, eins og Seðlabankinn tíundaði réttilega í ársskýrslu sinni á s.l. vori.
Næst vil ég víkja stuttlega að nokkrum atriðum skattamála.
Þegar fjárlagafrv. var til meðferðar í ríkisstj. var gert ráð fyrir að aðlögunargjald á innfluttar iðnaðarvörur mundi haldast árið 1981. Ég gerði bókun í ríkisstj. um afstöðu mína til þess máls. Þar segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Vegna þess að fjárlagafrv. gerir ráð fyrir að 3% aðlögunargjald haldist á næsta ári óska ég eftirfarandi bókunar:
Þegar sótt var um heimild til EFTA og Efnahagsbandalags Evrópu um álagningu aðlögunargjaldsins var því lýst yfir af Íslands hálfu, að gjaldið yrði skilyrðislaust fellt niður í árslók 1980. Lagasetningin um aðlögunargjaldið er í samræmi við þetta. Samþykkt EFTA var bundin því skilyrði, að gjaldið yrði fellt niður í árslok. Efnahagsbandalag Evrópu mótmælti gjaldinu og telur það andstætt samningi Íslands við bandalagið, en hefur ekki hafst frekar að í málinu, þar sem gjaldið verður fellt niður.“
Á fundi með framkvæmdastjóra EFTA í Kaupmannahöfn 5. sept. s.l. skýrði ég honum frá fyrirmælum iðnrh. um framlengingu gjaldsins. En hæstv. iðnrh. hefur lagt til að það verði framlengt með þeim hætti, að í staðinn fyrir að það er 3% á þessu ári lækki það í 2% á næsta ári, 1% á árinu 1982 og falli alveg niður við lok þess árs. Framkvæmdastjórinn skírskotaði til drengskaparyfirlýsingar Íslendinga um niðurfellingu gjaldsins nú í árslok. Hann taldi að litið yrði á framlengingu gjaldsins sem brot á gefnum loforðum íslensku ríkisstj. Af þessum ástæðum mun ég ekki treysta mér til að taka mátið upp frekar en ég hef þegar gert.
Ég hef kannað óformlega og látið kanna hver væri afstaða EFTA og Efnahagsbandalags Evrópu til þess að framtengja gjaldið að hluta og fella það niður í áföngum. Afstaða þessara aðila er svo neikvæð, að telja má fullvíst að t.d. Efnahagsbandalag Evrópu muni ekki sætta sig við framlengingu aðlögunargjaldsins og geti jafnvel gripið til mótaðgerða sem skaði mjög mikilvæga viðskiptahagsmuni Íslands.
Horfur eru á að samkvæmt samningi Íslands við Efnahagsbandalag Evrópu þurfi Íslendingar ekki að greiða tolla af útflutningsvörum, sem fluttar eru til Efnahagsbandalagstandanna á þessu ári, sem nema a.m.k. 9–10 milljörðum kr. Hvaða vit er í því að stofna slíkum hagsmunum í hættu? Þrátt fyrir þetta var fjárlagafrv. lagt fram þannig að gert er ráð fyrir aðlögunargjaldinu sem tekjustofni, en málið verður tekið nánar til athugunar, eins og segir í aths. við fjárlagafrv.
Við umr, um skattamál hér á hv. Alþ. á s.l. vetri lét ég þau orð falla, að ég fylgdi því að framlengja skatta á skrifstofu- og verslunarhúsnæði á þessu ári, en væri þó þeirrar skoðunar, að þetta mál þyrfti að taka til endurskoðunar á yfirstandandi þingi. Slík skattlagning kemur þungt niður á bæði samvinnuverslun og annarri verslun, sérstaklega þó í strjálbýlinu, en þar hefur verslun barist í bökkum á undanförnum árum.
Í þriðja lagi hef ég svo lýst yfir andstöðu minni við það ákvæði 59. gr. skattalaganna, að mögulegt sé að leggja á menn skatt af hærri tekjum en menn sannanlega hafa.
Um fjárlögin og almenna skattlagningu vil ég segja þetta:
Samkv. stjórnarsamningnum skal aðhald í ríkisrekstrinum stóraukið og áhersla lögð á jafnvægi í ríkisfjármálum. Það er ein af forsendum fjárlagafrv., að fjárlög 1981 verði afgreidd með nokkrum rekstrar- og greiðsluafgangi. Framsfl. er þeirrar skoðunar, að þetta verði því aðeins mögulegt að ríkistekjurnar nemi um 28.5% af þjóðartekjum. Á þessu ári var ætlunin að koma verðbólgunni niður í 30–35% frá upphafi til loka ársins. Því fer fjarri að þetta hafi tekist. Um þessi mál sagði ég m.a. við fjárlagaumr. fyrr á þessu ári eftirfarandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég geri mér glögga grein fyrir því, að það er útilokað að telja niður verðbólguna í samræmi við fyrirætlanir ríkisstj. nema stefnan í gengismálum og launamálum verði í takt við þær fyrirætlanir. Ef þessi stefna verður sprengd upp með kröfugerð og aðgerðum til þess að framfylgja þeirri kröfugerð, þá er alveg ljóst að það verður erfitt eða ómögulegt að ná þessum markmiðum. Allt veltur á því, að hin sterku öfl þjóðfélagsins, þ.e. ríkisvaldið og samtök launafólks og atvinnurekenda, nái lágmarkssamvinnu í þessum málum öllum og menn taki tillit til þess, að á öllum sviðum er nauðsynlegt að telja verðbólguna niður. Þetta er höfuðatriði.“
Ég sagði enn fremur að til að snúa ört hækkandi verðbólgu í lækkandi verðbólgu verði verðlags-, launa- og gengispólitík að stefna að ákveðnu marki á árinu 1980. Ég get með góðri samvisku endurtekið þetta við þessa umr. Það hefur ekki orðið sú raunin á, að þróun í verðlagsmálum, launamálum og gengismálum hafi samrýmst áformum ríkisstj. í efnahagsmálum.
Í fyrsta lagi hafa samningar á vinnumarkaðnum verið opnir í allt sumar og við borð hefur legið að upp úr syði. Verkföllum hefur verið hótað æ ofan í æ. Það má því orða það svo, að ríkisstj. hafi keypt vinnufriðinn því verði að fresta að hluta þeirri niðurtalningu verðbólgunnar sem hún áformaði. Ríkisstj. hefur þó viðhaft mikið aðhald í að leyfa verðhækkanir að því marki sem það hefur verið á hennar valdi. Auðvitað torvelda almennar grunnkaupshækkanir í þjóðfélaginu viðnám gegn verðbólgunni, það gefur auga leið. Og þær grunnkaupshækkanir, sem samið hefur verið um nú nýlega, munu, að því er fróðir menn telja, valda um 15—20% hækkun verðbólgu á næstu 6–12 mánuðum.
Í öðru lagi vil ég vísa til þess, að á tímabilinu okt. 1979 til febr. 1980 hækkaði tilkostnaður frystihúsanna innanlands um 15–20%. Á sama tíma var gengissig aðeins 5–10%. Á þessu ári hefur svo fiskverð í Bandaríkjunum lækkað og til viðbótar hefur Bandaríkjadollar verið að veikjast þar til nú seinustu vikurnar. Til þess að skapa frystihúsunum og sjávarútveginum öllum lágmarksrekstrargrundvöll hefur ríkisstj. neyðst til að láta gengið síga nokkuð ört á þessu ári, m.a. til þess að bæta upp það misræmi sem varð á verðlagi útflutningsafurða sjávarútvegsins, sérstaklega frystiafurðum, og hækkandi tilkostnaði innanlands. Þetta hefur einnig valdið erfiðleikum í baráttunni við verðbólguna. Þrátt fyrir þetta standa málin þannig, að verðbólgan hefur aðeins minnkað borið saman við seinasta ár og það þrátt fyrir að viðskiptakjör þjóðarinnar hafa versnað um 15% á s.l. tveim árum. Án verðlagsáhrifa grunnkaupshækkana stendur verðbólgan um þessar mundir í 52–53%. Nú er ljóst að grunnkaupshækkanir um 9–10% koma inn í verðlagið. Ef ekki tekst neitt samkomulag um ráðstafanir til að bremsa verðbólguna, þá koma verðbætur launa, verðhækkanir landbúnaðarvara, útseld vinna o.fl. af fullum þunga inn í hagkerfið 1. des. n.k. Um áramótin kemur svo nýtt fiskverð. Til þess að undirstöðuatvinnuvegirnir standist fyrirsjáanlegar hækkanir tilkostnaðar 1. des. og 1. jan. verður gengisaðlögun að fara fram. Ef það verður ekki stöðvast útflutningsframleiðsla þjóðarinnar. Hvar standa menn þá? Jú, nákvæmlega eins og fyrir 1. des., nema verðbólgan hefur aukist verulega. Kaupmáttur launa verður í besta falli óbreyttur, en allt atvinnuöryggi þjóðarinnar ótraustara. Á þessu ári munaði hársbreidd að frystihúsin og útgerðin stöðvuðust að meira eða minna leyti vegna verðbólgunnar. Sama er að segja um útflutningsiðnaðinn. Og þá er spurningin: Tekst okkur Íslendingum að halda undirstöðuatvinnuvegunum gangandi ef verðbólgan fer upp í 70%, að ég tali nú ekki um meira?
Það er vissulega kominn tími til að stinga við fótum og þó miklu fyrr hefði verið. Er nú ekki ráð að þjóðin þoli það, að allsherjar viðnámsaðgerðir í efnahagsmálum verði gerðar samhliða gjaldmiðilsbreytingunni um áramótin, að sameinað verði verðbótatímabil allra kostnaðarþátta 1. jan. n.k. og hafin verði raunhæf niðurtalning verðbólgu frá þeim tíma?
Nú eins og oft áður er mjög þýðingarmikið að menn geri sér raunhæfa grein fyrir því, hvað gerist ef ekki verður gripið til bremsuaðgerða í verðbólgumátum. Þjóðhagsstofnunin vinnur nú að því verkefni að gera úttekt á þessu.
Hæstv. fjmrh. hefur gert grein fyrir helstu forsendum fjárlaganna. Án þess að endurtaka mjög það sem hann sagði vil ég undirstrika nauðsyn þess, að ríkisbúskapurinn verði nokkurn veginn í jafnvægi árið 1981, svo sem verið hefur árið 1979 og 1980. Þá vil ég og undirstrika þá forsendur frv., að verðlagshækkanir frá miðju ári 1980 til miðs árs 1981 verði um 42%, sem er, eins og segir orðrétt í aths. við frv., nokkru minni verðbólga en verið hefur nú um skeið. Enn fremur vil ég vísa til þeirra orða í aths. við fjárlagafrv., að á næstunni verði ákvarðanir teknar í aðgerðum í efnahagsmálum, sem tengjast væntanlegri gjaldmiðilsbreytingu. Fjmrh. hefur því fyrir hönd ríkisstj. sett markmið í verðbólgumálum, sem stefna að 42% verðbólgu frá miðju ári 1980 til miðs árs 1981, og boðað aðgerðir í tengslum við gjaldmiðilsbreytinguna. Þetta allt saman vil ég sterklega undirstrika.
Ég held að það sé ákaflega mikil og rík nauðsyn á því, að öll þjóðin átti sig á þeim hættum sem hin mikla verðbólga skapar. Mesti háskinn er fólginn í því, að verðbólgan torveldar eðlilega og æskilega framvindu efnahags- og atvinnumáta. Langvarandi óðaverðbólga leiðir til stöðnunar, minni framleiðslu og rýrnandi lífskjara. Hún er blátt áfram óvinur góðra, jafnra og bættra lífskjara. Hún veldur hrikalegu misrétti milli manna og magnar upp það versta í atvinnumálum og fjármálum. Af þessum ástæðum og raunar mörgum fleirum verður ríkisstj., Alþ. og raunar öll þjóðin að snúast gegn verðból~unni með öllum tiltækum ráðum.
Ég held að flestum sé orðið það ljóst, að við Íslendingar ráðum aldrei niðurlögum verðbólgunnar án þess að draga úr þeirri sjálfvirkni sem ríkir í efnahagskerfinu. Niðurtalningarstefna Framsfl. byggir á þessari hugsun. Þar er gert ráð fyrir að setja á ákveðnu tímabili hámark á verðlag vöru og þjónustu, verð á landbúnaðarafurðum, fiskverð, verðbætur launa, vexti og gengi krónunnar. Til þess að tryggja sem hæstan kaupmátt lægri tekna verði skattar lækkaðir. Síðan verði stefnt að því að feta sig niður á við með því að lækka hámarkið næsta tímabil og svo koll af kolli. Við leggjum jafnframt áherslu á samráð við aðila vinnumarkaðarins um aðgerðir í efnahagsmálum. Þá verður settur nýr grundvöllur vísitölu framfærslukostnaðar í ársbyrjun 1981, sem byggist á neyslukönnun Hagstofunnar og allri viðmiðun við eldra vísitölukerfi þar með sleppt, um leið og myntbreytingin kemur til framkvæmda. Þá er mjög nauðsynlegt að gera breytingar á vísitölukerfinu sem miða að viðnámi gegn verðbólgunni. Ríkisbúskapurinn verður að vera í jafnvægi á árinu 1981 og enn fremur stefnt að jafnvægi í gjaldeyrisviðskiptum. Fjárfesting verði nálægt fjórðungi af þjóðarframleiðslu og útlán banka og lífeyrissjóða í samræmi við markmið í peningamálum.
Þessa efnahagsstefnu, sem ég hef verið að setja hér fram, mætti framkvæma til reynslu í eitt ár. Þegar gengið hefur verið frá efnahagsprógrammi, sem dregur jafnt og þétt úr verðbólgu, verður að leggja áherslu á framleiðni og uppbyggingu í orku- og atvinnumálum til þess að skapa grundvöll fyrir auknum hagvexti og bættum lífskjörum þjóðarinnar.
Það eru nokkrir útgjaldaliðir í fjárlagafrv. sem eru áberandi hæstir. Þar á meðal eru tryggingamál 136.5 milljarðar kr., fræðslumál 69.5 milljarðar kr. og heilbrigðismál 39.8 milljarðar. Til heilbrigðis-, trygginga- og fræðslumála verður því varið samtals 245 milljörðum kr. samkv. fjárlagafrv. Ég vil nú endurtaka það sem ég sagði við fjárlagaumr. 1978, 1979 og einnig fyrr á þessu ári, að í heilbrigðismálum megi spara umtalsverðar fjárhæðir með því að efla útivist og íþróttaiðkun þjóðarinnar. Talið er að a.m.k. 5 þús. manns starfi sem sjálfboðaliðar innan íþróttahreyfingarinnar. Þessa starfsemi ber að efla og styrkja á alla lund. Það mun borga sig að verja verulegu fé í þessu skyni. Vil ég sérstaklega beina því til fjvn., að hún láti fara fram skipulega og raunhæfa rannsókn í þessum efnum í samráði við framkvæmdavaldið. Spurningin er þessi: Getum við varið heldur minna fjármagni til heilbrigðis-, trygginga- og menntamála, en þeim mun meira fjármagni til þess að efla útivist og íþróttaiðkanir eða almenna líkamsrækt? Margar fremstu þjóðir veraldar hafa reiknað það út, að þær spari stórkostlega fjármuni með virkum stuðningi við æskulýðs- og íþróttahreyfingar. Við Íslendingar höfum engan her og höfum ekki viljað stofna her. Ég hef oft leitt hugann að því, hvort ekki væri hollt og tímabært fyrir uppeldi þjóðarinnar að koma á eins konar þegnskylduvinnu um nokkurra mánaða skeið, þar sem ungmenni byggju við vissan aga og gætu jafnhliða stundað líkamsrækt og unnið þjóðnýt störf. Ég held að það vanti meiri aga við uppeldi þjóðarinnar, hann sé minni hér en hjá flestum öðrum þjóðum sem ég þekki til. Því má að vísu ekki gleyma, að margt ungt fólk vinnur mikið og byrjar snemma að vinna. En það eru ekki allir sem venjast vinnu á unga aldri.
Þá er ég einnig sannfærður um að hægt er að spara mikil útgjöld í tryggingamálum með lagabreytingum og framkvæmd í þá átt að greiða tryggingabætur fyrst og fremst til þeirra sem þurfa þeirra með. Það er brýnt mál, að rækileg endurskoðun fari fram á tryggingakerfinu og breytingar verði gerðar í þessa stefnu.
Á undanförnum árum hefur verið unnið verulegt starf við úttekt ýmissa þátta ríkisbúskaparins. Það er nauðsynlegt að halda áfram þessari úttekt í ríkisbúskapnum og eðlilegast að hagsýslustofnun framkvæmi slíka úttekt í samvinnu og samstarfi við viðkomandi ráðuneyti og forstjóra ríkisstofnana. Ég hef stundum áður orðað það svo, að ekki sé síður nauðsyn á uppskurði sums staðar í ríkiskerfinu en niðurskurði. Hins vegar verða menn að gera glöggan greinarmun á eyðslu og eðlilegum útgjöldum. Það er gjörsamlega þýðingarlaust að standa að aðhaldi eða sparnaði nema það sé nákvæmlega tiltekið í fjárlögum, hvar þessi sparnaður eigi að koma niður, og viðkomandi ráðh., stjórnarnefnd og forstjóri ríkisstofnunar beri fulla ábyrgð á framkvæmdinni. Í þessum efnum öllum þarf að koma til markvisst áframhaldandi starf. Yfirborðskák kemur ekki að neinu haldi. Það verður e.t.v. að ákveða hvaða stöðum eigi að fækka hjá ríkinu, hvar eigi að draga úr yfirvinnu, hverju eigi að breyta um framkvæmd mála. Það er rétt að menn geri sér grein fyrir því, að þetta er ekkert vinsældastarf, en verður að vinnast, — vinnast með þrotlausu starfi og ströngu eftirliti.
Varðandi þau málefni, sem falla undir mitt rn., vil ég leggja áherslu á eflingu Verðlagsskrifstofunnar, en framlög til hennar hækka verulega, eða úr 275.5 milljónum kr. á fjárlagafrv. fyrir 1980 í 443.6 millj. kr. í því fjárlagafrv. sem hér er til umr. Sérstaklega álít ég nauðsynlegt að Verðlagsskrifstofan geti aukið verðlagskynningu og einbeitt sér að því að stuðla að lækkun vöruverðs með skynsamlegum verðlagsákvæðum. Þá eru framlög til Neytendasamtakanna einnig tvöfölduð í fjárlagafrv. En ég er talsmaður frjáls félagsmálastarfs neytenda með stuðningi ríkisvaldsins. Í þriðja lagi hafa umsvif viðskrn. aukist vegna hins alvarlega ástands olíumála, og svo mun verða þar sem á miklu ríður að sjá landinu örugglega fyrir nægum olíuvörum á sem ódýrastan hátt. Ég hef lagt mikla áherslu á þessi mál.
Ég sagði í upphafi máls míns að ég mundi ekki ræða mikið einstök atriði fjárlagafrv. Ég minni sérstaklega á vegamálin, þótt full ástæða væri til að ræða mörg fleiri stórmál. Í grg. með fjárlagafrv. segir að unnið verði áfram af krafti að vegamálum. Í frv. er gert ráð fyrir u.þ.b. 50% aukningu á fjármagni til vegamála. Því er um nokkra aukningu að ræða miðað við forsendur fjárlaga. Hins vegar renna til vegaframkvæmda í ár rúmlega tveir milljarðar króna af lánsfé sem nauðsynlegt er að tryggja, og það verðbætt, ef vinna á áfram af krafti að vegamálunum eins og í frv. segir.
Við fjárlagaumr. er ástæða til að minna á það, hversu ríkisbúskapurinn er raunverulega stór þáttur efnahagsmálanna. Venjulega hafa gjöld á fjárlagafrv. verið nálægt fjórðungi þjóðarteknanna. Það er því mjög mikilvægt að ríkisbúskapurinn sé sæmilega traustur og í jafnvægi, ekki síst á miklum verðbólgutímum. Sérfræðingar í efnahagsmálum og stjórnmálamenn eru yfirleitt sammála um að árangursríkar efnahagsaðgerðir gegn verðbólgu felist m.a. í nokkuð ríflegum rekstrar- og greiðsluafgangi ríkissjóðs. Þetta þurfa bæði ríkisstj. og Alþ. að hafa í huga þegar gengið er frá fjárlögum fyrir næsta fjárlagaár.
Ég held að það fjárlagafrv., sem hæstv. fjmrh. hefur lagt fram fyrir hönd ríkisstj., sé sæmilega ábyrgt fjárlagafrv., enda verði þess vandlega gætt, að heildarfjárfesting í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir næsta ár fari ekki mikið fram úr sem svarar fjórðungi þjóðartekna. Ég held að ég láti nú skylmingar hv. fyrrv. fjmrh. Sighvats Björgvinssonar og núv. hæstv. fjmrh. um bókhaldið liggja á milli hluta. Nú er hvorugur þeirra hérna. Það er löngum hægt að ræða um bókhaldið og ég skal ekki dæma um hvað er rétt í því efni. En í öllum aðalatriðum sýnist mér að fjárlagafrv. nú sé byggt upp á mjög svipaðan hátt og gert hefur verið undanfarin ár. En allt veltur á því, að gerðar verði samræmdar aðgerðir í efnahagsmálum þannig að sæmilegt jafnvægi ríki á öllum sviðum. Því aðeins má vænta árangurs í hinni erfiðu en lífsnauðsynlegu baráttu gegn óðaverðbólgu og hættulegum afleiðingum hennar.