10.04.1981
Efri deild: 80. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3612 í B-deild Alþingistíðinda. (3694)
296. mál, umhverfismál
Flm. (Salome Þorkelsdóttir):
Herra forseti. Frv. um umhverfismál, sem hér er nú lagt fram á þskj. 626, er lagt fram í annað sinn á hv. Alþingi. Flm. frv. nú auk mín eru þeir hv. þm. Egill Jónsson, Guðmundur Karlsson, Lárus Jónsson, Sigurlaug Bjarnadóttir og Þorv. Garðar Kristjánsson. Á vorþingi 1978 var frv. lagt fram sem stjfrv., í stjórnartíð Geirs Hallgrímssonar, og nánar tiltekið 22. apríl mælti núv. hæstv. forsrh. fyrir frv., en hann var þá iðnrh. og félmrh. Frv. þetta fékk góðar undirtektir þeirra hv. þm. sem létu í sér heyra um málið á sínum tíma. Því var síðan vísað til félmn. Ed., en þaðan átti það ekki afturkvæmt, sem ég geri ráð fyrir að stafi fyrst og fremst af því, hversu langt var liðið á þingið og því hafi ekki unnist tími til að afgreiða það, enda kom fram í framsöguræðu hæstv. ráðh. að þar sem svo áliðið væri þings væri það fyrst og fremst lagt fram til kynningar. Segja má að við stöndum því í sömu sporum nú, þremur árum síðar. Þó vil ég leyfa mér að vona að við stöndum heldur betur þar sem margir hv. þm., sem þá sátu hér á hv. Alþingi, eru hér enn og þekkja því málið betur nú: Það ætti að flýta nokkuð fyrir afgreiðslu þess. Til gamans má svo skjóta því hér inn, að þá hafði frv. þskj.-númer 620 og nú er það nr. 626.
Flm. frv. nú vilja freista þess að koma þessu máli í gegnum þingið þar sem hér er um mjög veigamikinn málaflokk að ræða, umhverfismálin, og ég held að allir geti verið mér sammála um þýðingu þessa máls.
Eins og fram kemur í 1. gr. frv. er tilgangur laganna að efla alhliða umhverfisvernd, varnir gegn hvers konar mengun og öðrum skaðlegum umhverfisáhrifum og vinna að varðveislu náttúrugæða landsins. Þeim er ætlað að stuðla að sem bestri sambúð lands og þjóðar með því að vernda þau lífsgæði sem felast í óspilltri náttúru landsins, hreinu lofti og tæru vatni. Eftirfarandi grg. fylgdi frv. og er endurprentuð óbreytt:
„Þann 4. mars 1975 skipaði ríkisstj. nefnd til að endurskoða og samræma ákvæði laga um umhverfis- og mengunarmál í því skyni að sett yrði heildarlöggjöf um þau efni og kveðið á um hvernig stjórnarfyrirkomulagi skuli háttað á þessu sviði. Í nefndina voru skipaðir Gunnar G. Schram prófessor, formaður, Knútur Hallsson skrifstofustjóri, varaformaður, Árni Reynisson framkvæmdastjóri, Edgar Guðmundsson verkfræðingur, Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóri, Páll Líndal borgarlögmaður, Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri, Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri og Þórður Ásgeirsson skrifstofustjóri.
Nefndin lauk samningu frv. og gerð tillagna um stjórnsýsluþátt umhverfismála í apríl 1976 og sendi það ríkisstj. með ósk um að frv. yrði borið undir þá aðila til umsagnar sem ríkisstj. teldi æskilegt. Var frv. sent allmörgum stofnunum og félagasamtökum og bárust umsagnir frá 15 þeirra. Umsagnir bárust frá eftirtöldum aðilum: Ferðamálaráði Íslands, Heilbrigðiseftirliti ríkisins, Náttúruverndarráði, Hafrannsóknastofnuninni, Iðnþróunarstofnun Íslands, Landvernd, Rafmagnsveitum ríkisins, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun iðnaðarins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Sementsverksmiðju ríkisins, Skógrækt ríkisins, Skipulagsstjórn ríkisins og Vegagerð ríkisins. Í ljósi umsagnanna tók nefndin frv. síðan til endurskoðunar og er það hér lagt fram í lokagerð.
Við upphaf starfs síns kannaði nefndin lagaákvæði þau sem til eru í íslenskum rétti um umhverfis- og mengunarmál. Í ljós kom það sem raunar var vitað fyrir, að heildarákvæði skortir í íslenskri löggjöf á þessu mikilvæga sviði. Einu lögin, sem alfarið lúta að þessum málum í dag, eru lögin um náttúruvernd, nr. 47/1971. Önnur lög taka að nokkru til þeirra vandkvæða og hættu, sem umhverfinu stafar af mengun og hættulegum efnum, svo sem ákvæði laga um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 12/1969, og lög um eiturefni og önnur hættuleg efni, nr. 85/1968. Var hér því við brýnt verkefni að fást — að semja frv. til laga um almenna umhverfisvernd sem tæki til vettvangsins alls og fyllti upp í þær eyður sem nú eru í löggjöf hér á landi í þessum efnum. Á grundvelli slíkra heildarlaga er síðan unnt að setja reglugerðir um einstök framkvæmdaatriði, eftir því sem sérstök þörf er talin hverju sinni í samræmi við þróun búsetu, iðnaðar og annarrar starfsemi. Er það slíkt frv. að heildarlögum um umhverfið og varnir gegn mengun sem hér liggur fyrir.
Í þessu sambandi skal það tekið fram, að í frv. er fyrst og fremst fjallað um hið svonefnda ytra umhverfi og því ætlað að reisa skorður við skaðlegum áhrifum á það. Er þar átt við náttúru landsins og þá starfsemi sem áhrif hefur utan dyra. Var það talin eðlileg takmörkun á gildissviði laganna og tekur því frv. ekki nema að litlu leyti til hins innra umhverfis, t. d. matvælaeftirlits og öryggis á vinnustöðum, svo tvö atriði séu talin.
Meginverkefni frv. er tvíþætt. Í fyrsta lagi er þar að finna ýmis ákvæði um umhverfis- og mengunarvarnir, m. a. ákvæði sem áskilja starfsleyfi til atvinnu- og iðjureksturs sem telja má hættulegan umhverfinu. Í öðru lagi er yfirstjórn umhverfismála sameinuð í höndum eins stjórnsýsluaðila. Er gert ráð fyrir því að þar verði um sérstaka nýja stjórnardeild að ræða, sem með þau mál fari, umhverfismáladeild. Ljóst er að brýna nauðsyn ber til þess að samræma reglur íslenskra laga um umhverfis- og mengunarmál og setja nýjar. Hér er um málefni að ræða sem æ þýðingarmeira verður eftir því sem iðnþróun í landinu vex og þéttbýli eykst. Er markmið frv. að stemma á að ósi í þessum efnum, efla alhliða umhverfisvernd og koma á virkum vörnum gegn hvers konar mengun og öðrum skaðlegum umhverfisáhrifum. Varðveisla og viðgangur náttúrugæða landsins er það grundvallaratriði sem leitast er við að tryggja með ákvæðum frv. og jafnframt sem besta sambúð lands og þjóðar.
Veruleg spjöll hafa átt sér stað á náttúru og umhverfi nálægra iðnríkja sökum þess að umhverfissjónarmiðum var þar ekki nægur gaumur gefinn á liðnum árum. Af reynslu þeirra þjóða er ljóst mikilvægi þess að festa nú þegar í lög hér á landi réttarreglur sem vernda þau lífsgæði sem felast í óspilltri náttúru landsins og hindra mengun og önnur umhverfisspjöll eftir því sem föng eru á. Á miklu ríður að slíkar ráðstafanir séu gerðar í tíma, áður en umhverfisröskun og annað tjón er orðið verulegt því að margfaldur kostnaður er við framkvæmd úrbóta þegar röskunin hefur átt sér stað, svo sem reynsla annarra þjóða sýnir. Hér er þess að gæta, að íslensk náttúra og lífríki hennar er mjög viðkvæm fyrir umhverfisáhrifum sökum landfræðilegrar legu landsins og loftslags. Er því sérstök nauðsyn á að vera jafnan á varðbergi í þessum efnum og hafa búsetu og atvinnustarfsemi ætíð á þann veg að fyllsta tillit sé tekið til umhverfisverndunar.
Við gerð frv. var um tvær leiðir að velja: Annars vegar að semja heildstæðan lagabálk, er tæki yfir allt réttarsvið umhverfismála, og fella inn í hann þau sérlög sem nú eru í gildi um þessi efni. Hinn kosturinn var sá að semja frv. sem hefði að geyma nýjar meginreglur og réttarheimildir í umhverfismálum ásamt ákvæðum um nýtt stjórnsýslufyrirkomulag á þessum vettvangi. Yrðu þá flest ákvæði sérlaga látin haldast óbreytt, a. m. k. fyrst um sinn, þar til reynsla væri fengin af hinum nýju lögum í framkvæmd. Nefndin var einhuga um að velja síðari kostinn, svo sem frv. ber vott um. Hefðu og verið á því vandkvæði, ef fyrri kosturinn hefði verið valinn, að draga mörkin milli þeirra ákvæða, sem nauðsyn bar að lögfesta þar, og annarra í skyldum lögum, auk þess sem slíkur háttur hefði valdið verulegri umbyltingu í framkvæmd þessara mála á lægri stjórnsýslustigum. Er þetta einmitt sú leið sem farin hefur verið við setningu löggjafar um umhverfismál á hinum Norðurlöndunum. Í Svíþjóð og Danmörku hefur nýlega verið sett heildarlöggjöf um umhverfismál (Svíþjóð 1969, Danmörk 1973) og er frv. að nokkru sniðið eftir þeirri löggjöf, einkum hinni dönsku.
Er því gert ráð fyrir að þau lög, sem nú eru í gildi um náttúruvernd og umhverfismál, haldi áfram gildi sínu við hlið hinna nýju heildarlaga, a. m. k. þar til nokkur reynsla hefur fengist í lagaframkvæmd á þessum grundvelli. Helst þeirra ákvæða eru lög um náttúruvernd, nr. 47/1971, lög um eiturefni og önnur hættuleg efni, nr. 85/1968, lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 12/1969, lög um öryggisráðstafanir gegnjónandi geislum frá geislavirkum efnum eða geislatækjum, nr. 95/1962, lög um fuglaveiðar og fuglafriðun, nr. 33/1966, ákvæði 10. kafla vatnalaga, nr. 15/1923, og ýmis lög, er staðfesta alþjóðasamninga um mengun sjávar, sem Ísland hefur gerst aðili að.
Er í frv. gert ráð fyrir víðtækum heimildum til þess að setja reglur á grundvelli laga um umhverfisvernd á öllum þessum sviðum, auk annarra sem enn eru ekki lögfest í íslenskum rétti en ákvæði frv. taka til. Að því er annan meginþátt frv. varðar, stjórnsýsluþáttinn, er ljóst að mikil þörf er á að sameina yfirstjórn umhverfismála á einum stað í stjórnkerfi landsins. Nú heyra þessi mál undir a. m. k. sjö ráðuneyti og gefur auga leið að slíkt leiðir til seinvirkari stjórnsýslu en ella væri og skörunar valdmarka sem æskilegt er að gera breytingu á.
Nefnd sú, sem frv. þetta samdi, lagði til að komið yrði á sameiginlegri yfirstjórn umhverfismála í sérstöku nýju ráðuneyti.“ (Gripið fram í.) Það kom fram í minni ræðu, hv. 4. þm. Norðurl. e., að Gunnar Thoroddsen hefði einmitt flutt þetta mál á sínum tíma. (Gripið fram í.) Þá ætla ég að halda áfram.
„Nefnd sú, sem frv. þetta samdi, lagði til að komið yrði á sameiginlegri yfirstjórn umhverfismála í sérstöku nýju ráðuneyti. Jafnframt benti nefndin þó á að ekki þyrfti þar að vera um sjálfstætt ráðuneyti að ræða, heldur mætti vista umhverfismálin í einhverju þeirra ráðuneyta sem fyrir eru, sem þá yrði ráðuneyti umhverfismála jafnframt núverandi verkefnum. Er það sú leið sem valin hefur verið og ákvæðum frv. verið breytt til samræmis við það frá upphaflegri gerð. Meginatriði málsins er tvímælalaust það að yfirstjórn umhverfismála verði á einum stað í stjórnarkerfinu. Í samræmi við það er síðan lagt til að einstakir þættir umhverfismála, sem nú eru dreifðir um mörg ráðuneyti, verði fluttir, sbr. 5. gr. frv. Er þess að vænta, að með slíkri samræmdri heildarstjórn og þeim nýju réttarheimildum á sviði umhverfismála, sem frv. geymir, verði kleift að koma fram þeim markmiðum sem liggja til grundvallar virkri umhverfismálastefnu á komandi árum.“
Ég sé ekki ástæðu til að bæta við þessa grg. Hún er ítarleg og skýrir tilgang þessara laga. Einu breytingarnar, sem gerðar hafa verið við endurflutning frv., eru við 24. gr., þar sem dagsektir, sem þar er gert ráð fyrir, eru framreiknaðar og settar fram í nýkrónum.
Herra forseti. Eins og fyrir þremur árum er nú langt liðið á þingtímann og má vel vera að ekki takist að afgreiða þetta mál á þessu þingi þó að það hafi sýnt sig hér í gær að hægt er að ganga rösklega að verki þegar áhugi er á því. En málið hefur þá alla vega fengið nokkra kynningu eins og fyrr og mun þá verða endurflutt á næsta þingi.
Ég legg svo til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn.