10.04.1981
Efri deild: 80. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3619 í B-deild Alþingistíðinda. (3699)
296. mál, umhverfismál
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Ég skal ekki taka langan tíma frá hv. dm., það er nokkuð liðið á fundartímann, en ég vil lýsa því yfir, að hér er að mínum dómi mjög athyglisvert mál og ég tel eðlilegt að það fái rækilega athugun.
Ég skildi ummæli ráðh. á þann veg, að hann vildi skoða hin ytri umhverfismál í samhengi. Ég skildi orð hans svo. Ég skildi orð hans alls ekki á þann veg, að hann væri að kasta steini að einum eða neinum sem hefði haft á undanförnum árum með þessi mál að gera, af hvaða tagi sem það er. En ég vil bara ítreka það, að slíkt mál sem þetta frv. er þarf ítarlega umfjöllun og sú lagasetning, sem þar er ýjað að, þarf mjög vandlega meðferð.