16.10.1980
Sameinað þing: 4. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í B-deild Alþingistíðinda. (37)
Kosning þingfararkaupsnefndar
Forseti Jón Helgason):
Áður en þessi kosning fer fram vil ég skýra frá því, að á fundi forseta Alþingis og formanna þingflokka s.l. þriðjudag var samþykkt að feta þingfararkaupsnefnd þeirri, sem nú verður kosin, að ganga frá frv. um breyt. á lögum um þingfararkaup í samræmi við ákvörðun sem tekin var um það á s.l. sumri.
Við kosningu nefndarinnar kom fram einn listi. Samkv. því voru kjörnir án atkvgr.:
Jón Helgason,
Sverrir Hermannsson,
Helgi Seljan,
Ólafur Ragnar Grímsson,
Ólafur G. Einarsson,
Páll Pétursson,
Sighvatur Björgvinsson.