06.11.1980
Sameinað þing: 15. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í B-deild Alþingistíðinda. (371)
1. mál, fjárlög 1981
Fjmrh. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Þessari 1. umr. um fjárlagafrv. er að ljúka og ég sé ekki ástæðu til, eftir ítarlega grg. mína í dag, að bæta mörgum orðum við. En nokkrar fyrirspurnir hafa komið til mín og ég mun reyna að svara þeim eftir því sem fært er.
Fyrst vil ég þó víkja að orðum seinasta ræðumanns, sem gagnrýndi það, að Vinnueftirliti ríkisins væru ekki ætlaðir meiri fjármunir en fram kemur í frv., og taldi að hér væri um mikil svik að ræða. Það var hv. 3. landsk. þm., Karl Steinar Guðnason, sem gerði þetta mál sérstaklega að umtalsefni.
Ég held að allir geri sér grein fyrir því, að þegar starfsemi af þessu tagi fer á flot, þá er ekki hægt að gera allt í einu. Það verður að byggja starfsemina upp og skipuleggja hana og of mikil fjölgun starfsmanna í einu gæti að sjálfsögðu haft það í för með sér, að menn ynnu óskipulega og ekki eins markvisst og vera þarf hjá slíkri stofnun. Það er ekki hægt að segja að ekkert sé gert í þessum efnum, því að í frv. er gert ráð fyrir að þrír starfsmenn komi sérstaklega til skjalanna og séu ráðnir til að gegna þessum störfum.
Ég veit ekki hvaða hugmyndir hv. þm. Karl Steinar Guðnason hefur um aðhald í ríkisrekstri og viðleitni núv. stjórnar til þess að koma í veg fyrir að starfsmönnum ríkisins fjölgi óhóflega. Það getur vel verið að honum sé alveg sama um það. (Gripið fram í.) Jú, þetta hlýtur auðvitað að vera spurning um starfsmenn m.a., og þar sem þarna er um að ræða að bætt er við þremur starfsmönnum til viðbótar við þá starfsmenn sem nú eru hjá Öryggiseftirliti ríkisins, þá er ekki annað hægt að segja en að þarna sé þó af stað farið með starfsemina. En það er sjálfsagt að skoða það nánar í fjvn., hvort þarna þarf að bæta einhverju við. Ég teldi rétt að fela fjvn. að meta það, hvort þetta teldist næg byrjun. En menn mega ekki gera ráð fyrir því, að þegar slík starfsemi er sett á stað eins og hér er um að ræða, þá sé hún óðar komin í fullan gang. Slík starfsemi hlýtur að eiga sér einhvern eðlilegan aðdraganda.
Ég vil svo víkja að spurningum sem hér komu fram. Fyrsta spurningin mun hafa komið frá Matthíasi Á. Mathiesen, hv. 1. þm. Reykn. Hann spurði hvort áformað væri að skerða verðbótavísitölu sem því næmi að laun hækkuðu aðeins um 15% á komandi ári. Nú er hv. þm. ekki hér viðlátinn er þá eðlilegt að fara hér hratt yfir sögu, því að það er lágmark að menn hlýði á svörin ef menn hafa lagt fram spurningar. En ég vil segja af þessu tilefni, að það er misskilningur að í frv. felist að laun hækki ekki á því ári um meira en 15%. Það er ekki rétt skilið. Það, sem miðað er við í frv., er að vegin meðalhækkun launa á árinu nemi ekki nema 15%, og á því er nokkur munur. Það er munur á því, hvað er vegin meðalhækkun yfir heilt ár, og svo aftur því, hvað hækkunin er mikil frá ársbyrjun til ársloka.
En þarna gekk nú hv. þm. í salinn og ég vil því endurtaka þessa athugasemd mína, að það er misskilningur hjá hv. þm. að í frv. felist það, að laun hækki ekki um meira en 15% á næsta ári. Það er gert ráð fyrir því, að vegin meðalhækkun launa á næsta ári nemi 15%. Á þessu tvennu er nokkur munur og raunar talsverður munur. (Gripið fram í.) Já, það er vegin meðalhækkun ef litið er á þetta frá mánuði til mánaðar og reiknað út hvað hækkunin er í heild.
Í sambandi við þetta mál að öðru leyti er auðvitað ljóst, að engin ákvörðun hefur verið tekin um að skerða verðbótavísitölu, heldur er það von okkar í ríkisstj., að þær efnahagsaðgerðir, sem stefnt er að á komandi vikum og mánuðum, leiði til þess, að hækkun verðlags og launa verði um eða innan við 42% á árinu. Hins vegar hefur það komið margsinnis fram á undanförnum dögum, að ákvarðanir um efnahagsaðgerðir í tengslum við væntanlega gjaldmiðilsbreytingu hafa ekki verið teknar, og þar af leiðandi segir það sig sjálft, að þeirri spurningu verður ekki endanlega svarað hér nú, með hvaða hætti tryggt verður að hækkun verðlags og launa milli áranna 1980 og 1981 fari ekki fram úr 42%. En þetta er markmiðið og að því verður stefnt og við það verða aðgerðirnar miðaðar.
Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson spurði hér svipaðrar spurningar, en þó var það til viðbótar í hans máti, að hann spurði að því, hvort ákveðið hefði verið að nýr vísitölugrundvöllur tæki gildi um n.k. áramót, og hann bætti við, hvort Alþýðusambandsþingi yrði gerð grein fyrir þeim áformum, ef slíkt hefði verið ákveðið. Ég get aðeins upplýst það, að athuganir hafa farið fram núna um margra mánaða skeið á því, að ákveðinn yrði nýr vísitölugrundvöllur, en endanleg skýrsla um það mál liggur ekki fyrir og þar af leiðir að engar ákvarðanir hafa verið teknar um það að taka upp nýjan vísitölugrundvöll um næstu áramót. Ég get þess vegna ekkert um það fullyrt, hvort fært verður eða tímabært að leggja það mál fyrir Alþýðusambandsþing. En hitt er alveg ljóst, að því máli verður ekki ráðið til lykta öðruvísi en að haft sé samráð við miðstjórn Alþýðusambandsins um málið.
Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson spurði hvort líkur væru á því, að hugsanlegt lán í þágu bænda og landbúnaðarframleiðslunnar yrði tekið af Framleiðsluráði og greitt af ríkissjóði og Byggðasjóði, eins og er á þessu ári. Eins og kunnugt er nemur þetta lán 3 000 millj. kr. á árinu 1980 og í svari landbrh. fyrir nokkrum dögum kom það fram, að samkomulag er um það í ríkisstj., að upphæðin verði 1 700 millj. á næsta ári. Ég hef gert ráð fyrir því, að þessi upphæð verði tekin inn í lánsfjáráætlun sem lögð verður fram hér í þinginu innan skamms, en ég geri ráð fyrir að svipuð tilhögun verði á lántökunni og er á þessu ári. Hins vegar er það ekki fullráðið og m.a. kemur til kasta stjórnar Byggðasjóðs, hvort hún er reiðubúin að hafa sömu tilhögun á því og er á þessu ári, að Byggðasjóður greiði helming af láninu þegar til kemur.
Sighvatur Björgvinsson, hv. 3. þm. Vestf., gerði hér nokkuð að umræðuefni svonefnt aðlögunargjald sem lagt er á árið 1979 og árið 1980. Aðlögunargjaldið, sem lagt var á 1979, hefur verið endurgreitt. Spurningin var hins vegar um aðlögunargjaldið, sem innheimt er á árinu 1980 og var upphaflega áætlað að næmi um 1 600 millj. kr., en verður líklega meira, sennilega nær 1 800 millj. kr.
Hv. þm. vildi vita hvernig á því stæði, að aðlögunargjaldið væri ekki fært til útgjalda í þessu fjárlagafrv. Spurning hans og athugasemdir virðast fyrst og fremst stafa af því, að hann hafi ekki kynnt sér frv. nægilega vel, því það er gerð grein fyrir þessu máli í frv. og var raunar minnst á þetta mál í fjárlagaræðu minni áðan.
Aðlögunargjaldið á árinu 1980 hefur verið greitt að hluta til á þessu ári. 850 millj. eru greiddar á þessu ári. En í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að greiða 1 050 millj. til viðbótar og er það þá endanlegt uppgjör fyrir innheimtar tekjur af aðlögunargjaldi á árinu 1980. Hins vegar á gjaldið að falla niður um n.k. áramót. Til greina kemur að það verði framlengt, en þó því aðeins að samþykki fáist fyrir því hjá Fríverslunarbandalaginu. Það hefur verið þreifað á því nú þegar, að gjaldið verði framlengt, en eins og viðskrh. mun hafa upplýst í ræðu sinni hér í dag eru veruleg tormerki á því, að á það verði fallist. En það kemur skýrt fram í fjárlagafrv., að falli aðlögunargjaldið niður muni tekjuöflun í ríkissjóð verða ákveðin í staðinn fyrir þetta gjald. Það er því fullkomlega eðlilegt að færa það til tekna, vegna þess að það kemur annað gjald í staðinn fyrir aðlögunargjaldið ef það fellur niður. Það eru hreinar línur. Þessi upphæð mun því verða meðal tekna ríkissjóðs á næsta ári og þarna er því ekki um neina blekkingu eða fals að ræða, heldur er það nokkuð öruggt, miðað við þær samþykktir sem ríkisstj. hefur gert í þessu máli, að þessara tekna verður aflað. Við höfum þegar ákveðin gjöld í huga ef ekki verður af aðlögunargjaldinu, en ekki er ástæða til að orðlengja um það meðan ekki er ljóst hvort til greina kemur að gjaldið verði framlengt.
Ég verð að segja það alveg eins og er, að mér finnst það sé að varpa grjóti úr glerhúsi fyrir hv. þm. Sighvat Björgvinsson að vera að fjölyrða um þetta aðlögunargjald. Hvað ætlaði hv. þm. Sighvatur Björgvinsson að greiða mikið af þessu gjaldi til iðnaðarins þegar hann lagði fram sitt fjárlagafrv. fyrir 8 eða 9 mánuðum?
Eins og ég tók fram er áætlað að tekjur ríkissjóðs af þessu gjaldi verði um 1 800 millj. Af þeim eru 850 millj. greiddar á þessu ári og 1 050 verða greiddar á næsta ári, vegna þess að búast má við því, að gjaldið geti jafnvel orðið hærra. Í öllu falli þótti rétt að tiltaka þessa upphæð miðað við það, að verðmæti þessa fjár hefur heldur rýrnað.
En í fjárlagafrv. Sighvats Björgvinssonar var ekki gert ráð fyrir að greiddar yrðu nema 300 millj. af þessu gjaldi. Hann ætlaði sem sagt að taka nokkurn veginn allt gjaldið í ríkissjóð án þess að skila því. Og hann verður að þakka núv. stjórn fyrir það, að hún ákvað þó að skila helmingnum af aðlögunargjaldinu þegar á þessu ári, sem er sem sagt hálfum milljarði meira en hv. þm. Sighvatur Björgvinsson gat hugsað sér að láta af hendi í þessu skyni.
Það er auðvitað ljóst, að ef aðlögunargjaldið yrði framlengt, þá yrðum við að greiða eitthvað af því út á næsta ári. Það er rétt, að við yrðum að greiða eitthvað af því, en við mundum ekki greiða nema hluta af því, miðað við það að við erum að gera upp árið 1980 núna og mundum þá greiða afganginn á árinu 1982. En það er sem sagt allt í óvissu um þetta gjald og það getur vel farið svo, að gjaldið verði ekki framlengt, og þá er ljóst að nýtt gjald kemur í staðinn, sem verður þess eðlis, að Fríverslunarbandalagið mun ekki geta gert athugasemdir við það.
Að lokum er rétt að nefna hér hugleiðingar hv. þm. Sighvats Björgvinssonar um vaxtamálin, en þar fór hann með miklar ýkjur og er ástæða til að leiðrétta þann málflutning. Það er alveg rétt hjá hv. þm., að vaxtagreiðslur ríkissjóðs hækka ekki nema um 23% í þessu fjárlagafrv. Ástæðan er m.a. sú, að sú breyting hefur verið gerð á skuldinni við Seðlabankann, að verðbótaþáttur skuldarinnar er færður sérstaklega og vextir sérstaklega. En auðvitað er önnur ástæða fyrir því, að þessar vaxtagreiðslur hækka ekki. Og hún er einfaldlega sú, að við erum ekki að safna skuld við Seðlabankann. Skuldin við Seðlabankann stendur í stað og þar af leiðir að þegar allt annað hækkar en þessi skuld, þá verður vaxtagreiðslan hlutfallslega minni en áður.
Ég vil minna á að það að færa verðbótaþátt vaxta sérstaklega var gert fyrir mína tíð. Það var ákveðið fyrir mína tíð og er einfaldlega í samræmi við þá stefnu í vaxta- og peningamálum, sem fylgt hefur verið, að færa sér á parti verðbótaþátt og sér á parti vexti. Þetta er gert í fullu samræmi við þá stefnu sem mörkuð var í þessum efnum fyrir 11/2 ári. Það er því auðvitað hin mesta fjarstæða að telja einhver töfrabrögð eða svikabrögð af minni hálfu að færa þetta með þessum hætti. Auðvitað ber mér skylda til að samþykkja það, að færslurnar séu á þennan veg.
En ég vil upplýsa það hér, að ef vextirnir hækkuðu eftir gamla laginu, þá hefði ekki verið þarna um hærri upphæð að ræða en liðlega 2 milljarða, og það kemur heim og saman við það, að þá hefðu vextirnir hækkað í einhverju hlutfalli við þá hækkun sem almennt er í frv., liðlega 40% í staðinn fyrir 23%.
Það hefur sem sagt verið reiknað út hver munurinn á þessu sé, og munurinn mun vera einhvers staðar milli 2 og 2.5 milljarðar kr. Þetta hefði vissulega haft ákveðnar breytingar í för með sér á frv. á þann veg, að rekstrarafgangurinn hefði orðið 2 milljörðum minni, en afborgun lána hefði orðið 2 milljörðum meiri og niðurstöðutala fjárlaga, þ.e. greiðsluafgangurinn í fjárlögunum hefði orðið nákvæmlega sá sami og hann er. Það hefði engu breytt um þá meginniðurstöðutölu sem mestu máli skiptir, að það sé ákveðinn greiðsluafgangur í fjárlagadæminu. Þar hefði engin breyting orðið á tölu. Menn sjá því auðvitað að þarna eru fyrst og fremst um bókhaldsatriði að ræða, þó að vissulega verði að viðurkenna að hvað rekstrarhlið fjárlaganna snertir hefði þar orðið lækkun um 2 milljarða. En þá hefði líka orðið að byggja frv. upp með öðrum hætti og vafalaust að spara þessa 2 milljarða með einhverjum öðrum hætti. Það er alveg ljóst. Það hefði sjálfsagt haft ákveðnar afleiðingar og auðvitað dettur engum öðrum í hug en hv. þm. að það hefði haft í för með sér að frv. hefði farið á hvolf. Auðvitað hefði frv. byggst upp á allt annan veg.
Herra forseti. Ég held að ég hafi svarað þeim fsp., sem hér hafa komið fram, og þeim helstu athugasemdum, sem eitthvert sérstakt nýnæmi er í. Menn þekkja þennan söng allvel, og ég veit ekki hvort það er nokkur minnsta ástæða til að tefja tíma þm. með því að fjalla frekar um það sem fram kom í máli stjórnarandstæðinga.