06.11.1980
Sameinað þing: 15. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
1. mál, fjárlög 1981
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin við þeim spurningum sem ég beindi til hans, en vek sérstaka athygli á því, að hæstv. fjmrh. gefur í skyn að svo kunni að fara að breytt verði um vísitölugrundvöll nú um áramótin. Það liggur auðvitað alveg ljóst fyrir, að ef það verður gert, þá verður undirbúningurinn kominn það langt á veg þegar Alþýðusambandsþing verður haldið að fráleitt er annað en að unnt sé að fá viðbrögð Alþýðusambandsins. Þetta mál skiptir svo miklu fyrir afkomu allra launþega í landinu og fyrir þau mal, sem fjallað verður um á Alþýðusambandsþingi, að mér finnst það vera fyrir neðan allar hellur ef hæstv. ríkisstj., sem er bundin með lögum til samráðs við þessa aðila, ætlar sér að sniðganga Alþýðusambandsþing þannig að koma sér hjá því að láta fjalla um svo mikilvægt mál kannske fjórum vikum áður en það er látið koma til framkvæmda.
Ég vil einnig vekja athygli á því, án þess að ræða það frekar, því ég ætla að stytta mjög mál mitt, hvernig farið er í þessu fjárlagafrv. með tvo málaflokka sem báðir varða atriði sem ríkisstj. hafa lofast til að framkvæma í tengslum við kjarasamninga og til þess að greiða fyrir slíkum samningum. Annars vegar er hin svokallaða forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum, sem afgreidd var á sínum tíma til þess að greiða fyrir samningum um búvöruverð. Í aths. fjárlagafrv. stendur að á næsta ári sé gert ráð fyrir að þar starfi 20 manns allt árið og 10 komi til viðbótar um mitt ár. Nú hef ég því miður ekki síðasta fjárlagafrv., svo að ég veit ekki hver viðbótin hefur orðið frá s.l. ári í mannahaldi þessarar stofnunar, en hún er alla vega þeir 10 sem koma eiga til starfs um mitt ár, og er þá enn ekki búið að efna að fullu þetta loforð um forfalla- og afleysingaþjónustu í sveitum.
Hins vegar er atriðið sem hv. þm. Karl Steinar Guðnason benti á áðan, efndir á máli sem afgreitt var hér í vor og gert mjög að umtalsefni, m.a. af flokksblaði hæstv. fjmrh., þar sem eru lögin um hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þar virðast efndirnar aðeins vera þær, að í framhaldi af þeirri lagasetningu sé varið 25 millj. kr. til viðbótar til Vinnueftirlitsins og fjölgað um þrjú stöðugildi.
Ég er hræddur um að íslenskri bændastétt þætti það þunnur þrettándi hjá hæstv. ríkisstj., sem hún telur sér sæma að bjóða öllum launþegum í þessu landi varðandi aðbúnað, sem hæstv. ríkisstj. seint og snemma hrósar sér af að hafa fengið afgreitt á s.l. vori.
Hæstv. ráðh. staðfestir það, sem ég benti á áðan, að sú ráðstöfun aðlögunargjalds, sem gert er ráð fyrir útgjaldamegin í frv., er endurgreiðsla á þeim tekjulið sem innheimtur var á s.l. ári og eyrnamarkaður var til ákveðinna þarfa. Hins vegar viðurkenndi hæstv. ráðh. að þetta aðlögunargjald, sem hann sjálfur virðist ekki telja líklegt að verði framlengt, er núna sett inn í frv. teknamegin til þess að laga afkomu ríkissjóðs, en ekki gert ráð fyrir að svo mikið sem ein króna sé greidd af því gjaldamegin. (Gripið fram í.) Nei, 1050 millj. kr., sem hæstv. ráðh. ræðir um eru endurgreiðsla á aðlögunargjaldi sem innheimt var í fyrra — (Fjmrh.: Það hefur alltaf verið gert.) — og ráðstafað var þá til annarra þarfa, þannig að hér er um að ræða endurgreiðslu á mörkuðum tekjustofni, sem ríkissjóður tók til sín í fyrra og hefur ekki staðið skil á. Þó það ekki stæði ein einasta króna teknamegin í aðlögunargjald yrði því engu að síður að framkvæma ráðstöfun með þessum hætti gjaldamegin. Það er auðvitað útilokað að ætla sér að framlengja aðlögunargjaldið teknamegin, eins og hæstv. ráðh. gerði ráð fyrir, upp á 2.7 milljarða án þess að svo mikið sem einni krónu af því eigi að ráðstafa útgjaldamegin. Hér er um að ræða tekjustofn sem ráðstafa á til sérstakra þarfa, og þessi úrræði: að hafa það teknamegin, en ekki krónu útgjaldamegin, eru auðvitað ekkert annað en pólitískar leikfimiæfingar til þess að laga eilítið stöðu ríkissjóðs.
Miðað við það sem hæstv. ráðh. sagði hér áðan, að þetta gjald væri allt til endurskoðunar og ekki væri víst að það yrði framlengt, heldur yrði látið heita eitthvað annað, þá mætti alveg eins búa til fjárlagafrv. þannig, að sérstakur liður teknamegin héti: Tekjur sem aflað verður. Þá mætti alveg eins skíra tekjuöflunarlið Tekjur sem aflað verður, eins og skíra tekjuöflunarlið aðlögunargjald, sem jafnvel hæstv. ráðh. hefur ekki mikla trú á að verði framlengt í óbreyttri mynd, og svara því svo hér, að þetta sé nánast aðeins — ja, hvað á maður að segja: til að láta gjaldið heita eitthvað, en hins vegar ætti ríkisstj. sér að hafa það allt öðru vísi þegar málið verður afgreitt. Þá held ég að það væri miklu nær að taka þar upp þann furðulega ríkisfjármálabúskap, ef dæmið gengur ekki upp, að setja þá síðast teknamegin Tekjur sem aflað verður, án þess að skýra það frekar. Ég held að það væri satt að segja heiðarlegra en að fara svona að þessu.
Hæstv. ráðh. ræddi um þær vaxtatilfærslur, sem ég benti á hér áðan, og ég er satt að segja ekki alveg viss um að hæstv. ráðh. sé orðinn með á nótunum. Þó hélt ég að það hlyti að vera þangað til hann fór að tala um að allar þessar upplýsingar, sem frá mér kæmu, breyttu engu um greiðsluafganginn í frv. Það er nákvæmlega rétt hjá hæstv. ráðh. Það er mergurinn málsins og það tók ég sjálfur fram. Þetta breytir engu um greiðsluafganginn.
Þetta breytir því einu, hvernig sá greiðsluafgangur er fenginn.
Samkv. þeirri uppsetningu, sem er á 1. gr. frv., er greiðsluafgangurinn fenginn með þeim hætti, að tekjur umfram gjöld á rekstrarreikningi eru látnar heita að vera 7 milljarðar kr., lánaútgreiðslur umfram innborganir á lánajöfnuði 2 milljarðar kr. og útstreymi umfram innstreymi á viðskiptareikningi 1250 millj. kr. Niðurstaðan af greiðsluyfirlitinu er síðan greiðsluafgangur upp á 3.8 milljarða.
Nú hef ég ekki þær upplýsingar í höndunum að geta sagt fyrir um hve há upphæð þessi verðbótaþáttur vaxta kann að vera, sem áður var talinn gjaldamegin á rekstrarreikningnum með sama hætti og vextir. Hæstv. ráðh. segir að þetta séu 2–2.5 milljarðar. Ég mundi ætla 5–6 milljarðar. Ég held að hvorugur okkar hafi í höndum neinar endanlegar upplýsingar um það. Ætli talan sé ekki einhvers staðar þarna á milli? En hæstv. ráðh. staðfestir það sem ég var að segja um áhrifin af þessari bókhaldsbreytingu á niðurstöðutölurnar í greiðsluyfirlitinu sem hæstv. ríkisstj. var að hrósa sér af. Hann sagði, hæstv. ráðh., að það væri rétt, að þessi bókhaldsbreyting, ef svo má segja, sé alls ekki neitt trikk, engin brögð í tafli, en breyting frá því sem áður var, þannig að menn geta ekki borið saman t.d. fjárlagafrv. frá því í ár og fjárlalgafrv. frá því í fyrra, og þess er í engu getið, hvaða breyting hafi verið gerð á færslu verðbótaþáttar vaxta í ríkisstj.
Hæstv. ráðh. viðurkenndi að þetta hefði þau áhrif, að ef frv. væri sett upp eins og verið hefur á undanförnum árum, þá yrðu tekjur umfram gjöld til muna minni en greiðsluyfirlitið gerir ráð fyrir. Okkur greinir ekki á um neitt annað en upphæðina. Hæstv. ráðh. segir að þessi tala muni samkv. sínum upplýsingum lækka um 2.2 milljarða, en ég tel líklegt að það sé eitthvað meira. Okkur greinir ekki á um annað. Hæstv. ráðh. staðfestir að þetta er rétt. Hæstv. ráðh. mismælti sig hins vegar þegar hann fór að tala um áhrifin á lánagreiðslurnar. Hann sagði að þessi færslubreyting yrði til þess að auka afborganir af greiddum lánum, en það er alveg þveröfugt. Þessi færslubreyting — þegar verðbótaþáttur vaxta er ekki færður lengur sem vaxtagreiðslur eins og áður var, heldur sem lánahreyfing, þ.e. sem endurgreiðslur á áður teknum lánum, ef miðað er við það sem áður var, þá auðvitað lækkar hún lánagreiðslurnar, endurgreiðslurnar, en hækkar ekki. Þar með staðfestir hann einnig að þessi breyting hefur þau áhrif á lánajöfnuðinn að hann geti snúist við, hann verði ekki útgreiðslur umfram innborganir eins og sýnt er fram á hér, heldur innborganir umfram útgreiðslur. Hins vegar erum við báðir sammála um það, ég og hæstv. ráðh., að þetta hefur að sjálfsögðu engin áhrif á greiðslujöfnuðinn. Spurningin er bara sú, hvernig sá greiðslujöfnuður er fenginn, og ef mínar upplýsingar eru nær sanni eða mínar grunsemdir um upphæð þessa verðbótaþáttar vaxta eru nær sanni en hæstv. ráðh., þá er niðurstaðan sú, að allur greiðsluafgangurinn er fenginn með lántökum. Við deilum ekki um neitt annað en það, ef hægt er að tala um að menn séu að deila í þessu sambandi, hve mikið af greiðsluafganginum er fenginn með lántöku. Ef verðbótaþáttur vaxta er einhvers staðar nálægt því sem ég held, einhvers staðar á milli 5 og 6 milljarðar kr., þá er allur greiðsluafgangurinn fenginn með lántöku, þá eru tekjur umfram gjöld á rekstrarreikningi nánast engar og raunar minni en engar ef tekið er út aðlögunargjaldið, sem er óráðstafað út Fjárlög 1981. 546 gjaldamegin. Þá eru innborganir á lánajöfnuði umfram útgreiðslur. Þá tekur hæstv. ráðh. meiri lán en nemur afborgunum þeirra lána sem hann greiðir. Þá er allur greiðsluafgangurinn fenginn með lántöku.
Ég held að ekki fari á milli mála, að ég og hæstv. fjmrh. hljótum að vera sammála um þetta atriði, þannig að allt í mínum upplýsingum er rétt. Það eina, sem við erum ekki sammála um, er upphæðin á þessum verðbótaþætti vaxta, og ég held að hvorugur okkar geti sagt fyrir um það.