13.04.1981
Neðri deild: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3645 í B-deild Alþingistíðinda. (3731)

Tilhögun þingfunda

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil gera hv. þdm. grein fyrir þeim vinnubrögðum sem ég legg til að viðhöfð verði í dag í hv. deild, en eins og öllum er kunnugt um er að því stefnt að þingfundum fyrir páska ljúki á morgun. Fljótlega á þessum fundi verður tekið til við að ræða lánsfjárlög og að því stefnt, ef kostur er, að 2. umr. ljúki þannig að atkvgr. nái fram fyrir þingflokksfundahlé. Síðan, eins og menn sjá á dagskrá, er boðaður fundur í Sþ. kl. 6, en kl. 9 verður fundur í Nd., annað tveggja framhaldsfundur eða nýr fundur þar sem þess verður freistað að taka lánsfjárlög til 3. umr. Atkvgr. eftir 3. umr. mundi samt ekki fara fram í kvöld eða nótt, heldur í upphafi fundar kl. 2 á morgun. — Þetta bið ég hv. þdm. um að aðstoða mig við að fram nái að ganga.