06.11.1980
Sameinað þing: 15. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
1. mál, fjárlög 1981
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Ég get því miður ekki þakkað hæstv. ráðh. fyrir svörin til mín. Ég átti samt von á því, að hann mundi eitthvað tjá sig um viss atriði þótt ég spyrði ekki beint, eins og t.d. þar sem ég fjallaði um húsnæðismálin. En ég skal ekki vera að óska eftir svari við því. Ég hygg að hæstv. ráðh. verði að tjá sig í orði eða verki áður en lýkur í því máli, svo alvarlegir meinbugir sem eru á fjárlagafrv. hvað það mál varðar, eins og ég rakti.
Sama má reyndar segja um orkumálin. En ég ætla að leyfa mér aðeins að bera fram eina einfalda fsp. til hæstv. ráðh., af því að ég get látið mér detta í hug að hann geti svarað henni á stundinni. Fsp. er þessi: Vill hæstv. ráðh. að haldið verði áfram hinni eiginlegu sveitarafvæðingu? Ef svo er, vill hann að ríkissjóður leggi fram á árinu 1981 það fé, sem þarf til að tengja samveitu þá 27 sveitabæi sem nú eru eftir samkv. áætlun orkuráðs um rafvæðingu sveitabýla með innan við 6 km meðalvegalengd milli bæja?