13.04.1981
Neðri deild: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3684 í B-deild Alþingistíðinda. (3765)

220. mál, tímabundið olíugjald til fiskiskipa

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Hv. frsm. 1. minni hl., Karvel Pálmason, var hér með ýmsar fullyrðingar sem mér sýnist ég verði að leiðrétta. Það sama kom einnig fram í áliti þessa minni hl., á miðri síðu nokkurn veginn. Þar segir: „loforð ráðherra sem gefin voru“ um afnám olíugjalds o. þ. h. í sambandi við kjaradeilu sjómanna á Ísafirði.

Ég er hér með afrit af þeim loforðum sem ég gaf, skrifuð til sáttasemjara og lesin upp fyrir sjómenn á Ísafirði. Hver voru þessi loforð? Í fyrsta lagi var loforð um frítt fæði. Þar segir með leyfi forseta:

„1. Ég tel rétt að deiluaðilar sendi stjórn Aflatryggingasjóðs bréf þar sem óskað sé eftir ýmsum lagfæringum, m. a. um samræmingu tveggja efstu flokkanna og að nýr flokkur verði stofnaður vegna útileguskipa sérstaklega. Athugun á slíkum breytingum er þegar hafin. Að því er ég best veit er þó þörf lagabreytinga. Fyrir slíkum lagabreytingum mun ég beita mér eins og frekast verður talið fært.“

Hvernig hefur þetta verið efnt? Þetta er komið til framkvæmda og meira að segja látið ná aftur fyrir sig, sem þó er ekki lofað í þeim orðum sem hér eru sett á blað og voru lesin. Hins vegar mun hæstv. menntmrh., þegar hann gegndi störfum fyrir mig, hafa talið að þetta ætti að gilda frá 1. júní og ég lét það vera svo. Það var satt að segja ekki með samþykki stjórnar Aflatryggingasjóðs. Það var raunar gert þvert gegn tillögum hennar.

„2. Frívaktavinna. Ég er tilbúinn að skipa menn í nefnd með deiluaðilum til að kanna og leggja mat á vinnuálag og vinnutíma sjómanna á Vestfjörðum. Við þá athugun yrði tekið mið af vökulögum, samningsbundnum frítímum sjómanna og vinnuálagi sjómanna í öðrum landshlutum.“

Þetta var ekki talið nauðsynlegt þegar málið var rætt og mér sagt að þetta yrði kannað á vegum sjómannasamtakanna sjálfra. Því hefur ekki verið kallað eftir manni frá mér í þessa athugun.

„3. Lögskráning. Ég hef og mun leggja áherslu á að frv. það, sem er þegar komið til nefndar í Ed. Alþingis, verði afgreitt á þessu þingi.“

Það var gert. Frv. var afgreitt.

„4. Réttur sjómanna til launa í veikinda- og slysatilfellum. Ég hef og mun áfram leggja á það ríka áherslu að frv. það, sem komið er til nefndar í Nd. Alþingis um breytingu á 18. gr. sjómannalaga, verði afgreitt á þessu þingi.“

Þetta var afgreitt og er komið til framkvæmda. Ég leyfi mér því að fullyrða að öll þau loforð, sem ég gaf sjómönnum á Vestfjörðum í sambandi við kjaradeiluna þar og að mér snúa, hafi verið efnd, enda segja sjómenn í sinni yfirlýsingu ekkert um loforð. Þeir tala um skýlausa yfirlýsingu mína um að leita eigi annarra leiða með olíugjaldið. Hins vegar hefur hv. þm. leyft sér að snúa þessu þannig í því áliti, sem hann lætur frá sér fara, og í orðum sínum hér, að um skýlaust loforð ráðh. sé að ræða, eins og hann orðaði það áðan.

Ég þarf út af fyrir sig ekkí að fara mörgum orðum um þetta olíugjald. Ég hef sagt hvað eftir annað að ég vilji leita annarra leiða til að mæta vaxandi olíukostnaði fiskiskipa og hefur sleitulaust verið að því unnið. Ég hef hinsvegar sagt hér hvað eftir annað, að ég vil og tel rétt að það verði gert með samkomulagi við aðila þessa máls, en ekki gegn þeim. Ég hef einnig lýst þeirri nefnd, sem að þessum málum hefur starfað og fundum, sem hún hefur átt og ekki náð samstöðu. Ég hef sjálfur átt fundi með þessum aðilum. Ég hef rætt við fulltrúa sjómanna og útgerðarmanna, bæði í sambandi við fiskverðsákvarðanir og fleira, um aðrar leiðir til þess að mæta olíukostnaði. Ég hef ekkert farið leynt með það, að ég tel koma til greina að greiða a. m. k. hluta af olíukostnaði af óskiptu. Við það hafa sjómenn ekki heldur viljað sætta sig. Ég hef einnig sagt að mér sýnist vel koma til greina að athuga þá leið, sem meiri hl. nefndarinnar benti á við olíugjaldsákvörðun á undan þessari, að afla sérstakra tekna til að greiða að einhverju leyti niður olíu. Þetta hef ég rætt við hlutaðeigandi aðila. En staðreyndin er sú, að þeir eru ekki heldur sammála um það. Þetta mál er því í athugun.

Mín afstaða til þessa máls er ekkert breytt, en staðreyndin er sú, að stundum er erfitt að afnema það, sem sett er í lög, þótt vitlaust sé. Það gerði hv. núv. formaður Alþfl., og hv. þm., Alþfl.-maðurinn Karvel Pálmason, mælir nú mjög gegn þeirri tilhögun sem hann kom á.

Ég vil hins vegar segja þetta út af því sem hv. 1. þm. Vestf. sagði áðan: Ég hef sannarlega ekki gleymt tilboði hv. þm. og fleiri að aðstoða við öflun tekna til að greiða niður olíugjald eftir öðrum leiðum. Ég tel hins vegar nauðsynlegt að það mál sé rætt, eins og ég hef sagt við hagsmunaaðila. En það er ekki öll nótt úti enn. Vel má vera að ég óski eftir aðstoð hv. þm. og fleiri til að leysa slíkt mál. Ég tel vel koma til greina að skoða það, ekki síst með enn hækkandi olíuverði.