13.04.1981
Neðri deild: 80. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3693 í B-deild Alþingistíðinda. (3784)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Frsm. meiri hl. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Út af orðum hæstv. félmrh. áðan finnst mér nokkuð langur tími hafa farið í þessa skýrslusöfnun, því að því var mjög vel tekið af fulltrúum allra flokka að bætur yrðu til þeirra sem hefðu orðið hart úti í skaða af völdum óveðursins í febrúarmánuði. Ég vil benda hæstv, ráðh. á að í þessari till. er sagt: „fjárhæð allt að 25 millj. kr.“ Ég hygg að tæplega muni verða farið hærra en í 2500 milljónir gkr. í bætur úr Bjargráðasjóði. Það er eðlilegt, finnst mér, þar sem þetta tjón verður fyrir tveimur mánuðum, að afgreidd sé slík heimild til handa fjmrh. fyrir hönd ríkissjóðs til að láta fólk sjá það og finna strax að stjórnvöld ætla sér að koma til móts við það í þessum efnum. Ég fyrir mitt leyti legg þó ekkert ofurkapp á það ef ásetningur hæstv. ríkisstj. er að flytja strax eftir páska frv. um að heimila Bjargráðasjóði eða ríkissjóði að taka lán og veita það Bjargráðasjóði til ráðstöfunar í þessu skyni. Hins vegar segir 1. flm. till. fyrst og fremst til um það. Hitt hef ég talið ólíkt eðlilegra og jákvæðara: að kveða hér á um hámarksbætur í þessum efnum, síðan mætti svo ganga frá reglum um bætur, því að sennilega dettur engum í hug, hvorki hæstv. ráðh. né öðrum, að allt tjón verði bætt að fullu og öllu eins og það verður tíundað, heldur verði fyrst og fremst reynt að koma verulega til móts við fólk og þá sérstaklega það sem harðast hefur orðið úti.
Ég furða mig á því, að þegar mál er til lokaafgreiðslu í þingi, þegar það er hér til umr. og ríkisstj. leggur áherslu á að það nái fram að ganga og þm. spyrja ákveðinna spurninga, bæði við 2. og nú við 3. umr., skuli ekkert svar vera gefið. Hv. 2. þm. Suðurl. bar fram spurningu til hæstv. forsrh. í dag. Forsrh. talar fyrir lánsfjár- og framkvæmdaáætluninni í Sþ. Fjmrh. fylgir frv. til lánsfjárlaga úr hlaði. Það má því segja að hér sé um sama málið að ræða og því sé eðlilegt að þessir hæstv. ráðh. séu viðstaddir umr. um málið. Af tíu manna ríkisstj. situr einn ráðh. núna við þessar umr. Hinir koma hér inn í salinn þegar atkvgr. fer fram, enn aðrir láta alls ekki sjá sig sem þó eiga að vera við þessar umr. Ég spyr hæstv. forseta að því, hvort hann telji vera sanngjarnt og eðlilegt að halda umr. áfram um mál, sem heyrir undir ákveðna ráðh., þegar þeir láta ekki sjá sig við umr. og hundsa á þann hátt Alþingi. Þó að þetta mál sé ekki mitt mál sérstaklega, sem ég er að nefna, er það almenn kurteisi ríkisstj. og ráðh. að svara kurteislegum og sjálfsögðum fsp. eins og hv. 2. þm. Suðurl. hefur borið fram bæði við 2. og nú við 3. umr. málsins. Hæstv. félmrh. svaraði þegar hann gekk úr stólnum: Óseyrarnesbrúin er ekki mitt mál. — Ég get viðurkennt að það er ekki málefni hæstv. félmrh. að svara fsp. sem beint er til forsrh. vegna samtals og ummæla sem hann hefur látið frá sér fara. Ég geri fyrir mitt leyti kröfu til að þessari umr. verði ekki lokið nema hæstv. forsrh. verði kallaður til að svara. Honum ber skylda til þess.
Það hefur hingað til tíðkast í Alþingi undir umr. að menn hafa dokað við í ræðustól og viljað fá ráðh. inn til að svara. Ég minnist þess, að það hafa gert þm. úr öllum flokkum og ekki síst úr Framsfl. Hér fyrr á árum stóðu þeir hér ábúðarmiklir og biðu eftir ráðh. Og þá voru ekki tíu ráðh., þeir voru held ég, sex eða sjö. (Gripið fram í.) Já, það var áður en hann var bundinn í bak og fyrir. Ég tel að svona vinnubrögð séu óvirðing við Alþingi. Það er óvirðing sem ráðh. sýna þingi. Þeir eru ekki almáttugir þó þeir vermi þessa stóla eitthvað um hríð. Forsrh. er ekkert yfir það hafinn að sitja þingfundi og svara fsp.
Ég hef leyft mér, ásamt Matthíasi Á. Mathiesen og Sighvati Björgvinssyni, að flytja hér brtt. við frv. til lánsfjárlaga, þess efnis, að ný grein komi eftir 3. gr. er verði 4. gr. og orðist svo:
„Ríkisstj. er heimilt á árinu 1981 að taka lán að upphæð allt að 5 milljónum kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt, sem verja skal til greiðslu byrjunarkostnaðar við byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli samkv. nánari ákvörðun utanrrh.“
Við atkvgr. eftir 2. umr. í dag kom til atkvæða till. sama efnis að öðru leyti en því, að þar stóð: Ríkisstj. skal á árinu 19810. s. frv. Sú till. féll með jöfnum atkvæðum við atkvgr. og því þykir okkur flm. rétt að flytja till. um heimild. Till. um heimild er stefnumarkandi. Það er stefna í þessu máli sem Alþingi tekur ef Alþingi samþykkir slíka till. Því er þessi till. flutt.
Við flm. till. viljum enn einu sinni ítreka það fyrir hv. þd., að það er ekki vansalaust fyrir Alþingi að ganga fram hjá þessu máli, sem allir flokkar keppast við að lýsa stuðningi við nema Alþb., en Framsfl. er bundinn á höndum og fótum, hefur látið binda sig. Nú viljum við reyna einu sinni enn hvort a. m. k. einn þm. getur ekki losað á sér aðra höndina þannig að hann geti greitt atkv. með slíkri till. Flokkurinn í heild hefur lýst yfir á aðalfundi að þetta væri honum mikið mál og hjartans mál, enda hafa forustumenn Framsfl. haft forustu í þessu máli um langt árabil. Það er því undarleg frammistaða sem flokkurinn hefur sýnt í þessu á undanförnum dögum. Enn einu sinni ætlum við að gefa Framsfl. tækifæri og vonum að a. m. k. einn geti losað aðra höndina og láti ekki Svavar Gestsson alveg binda sig og þá félaga, heldur sýni þann manndóm að vera trúr þeirri stefnu sem þeir sjálfir hafa markað og enginn þröngvaði upp á þá. — Við skulum ætla að þeir hafi verið eigin herrar á eigin aðalfundi og kommarnir hafi ekki verið þar viðstaddir. — Nú gefst þeim tækifæri til að sýna manndóm sinn í þessu máli.
Ég endurtek það, hæstv. forseti, út af þeirri fyrirspurn, sem 2. þm. Suðurl. hefur gert, að ég tel óeðlilegt að ljúka þessari umr. nema hæstv. forsrh. komi hér og svari fyrirspurnum. Það er krafa sem við gerum til hæstv. forsrh., að hann sé hér viðstaddur. Hann er frsm. lánsfjáráætlunar, sem er skyld þessu frv. og kemur seint fram, og mér finnst að hann verði að standa við loforð, sem hann gefur mönnum á „Beinni línu“ í Ríkisútvarpinu, eða gefi skýringu á því, hvað eigi að verða um þessa brú sem hann lofaði snemma í vetur, fyrst enginn annar ráðh. vill svara fyrir hann eða getur svarað fyrir hann. Ef hann er ákveðinn í því að svíkja þetta loforð á að segja frá því, en ekki að fela sig.
Ég tel að það ættu fleiri þm. Suðurl. að ýta á eftir þessu svari en Steinþór Gestsson. Það er vitnað í þessu samtali í Eggert Haukdal, sem allir vita að er mikill baráttumaður fyrir sitt kjördæmi og framkvæmdum þar. Ég ætla að svo sé um fleiri þm. Sunnlendinga. Því er nauðsyn að menn gefi svar við slíkum loforðum sem maður fær sem hringir í „Beina línu“, en Alþingi á ekki að fá. Hver á að fá svör ef það er ekki Alþingi? Á fyrst að svara mönnum í gegnum útvarpið, en harðneita að svara sömu spurningu á Alþingi Íslendinga?