10.11.1980
Efri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í B-deild Alþingistíðinda. (380)

85. mál, þingfararkaup alþingismanna

Flm. (Jón Helgason):

Herra forseti. Á þskj. 92 höfum við Helgi Seljan, Egill Jónsson og Kjartan Jóhannsson flutt frv. til l. um þingfararkaup alþingismanna. Við kosningu í þingfararkaupsnefnd í byrjun þessa þings var þess getið, að forsetar Alþingis og formenn þingflokka hefðu samþ. að fela þfkn. að ganga frá frv. um breytingu á lögum um þingfararkaup. Nefndin hefur síðan unnið að málinu og orðið sammála um þetta frv.

Eins og fram kemur í grg. frv. eru nokkrar breytingar frá gildandi lögum í frv. Kjaradómur skal ákveða þingfararkaup alþm. í stað þess að nú njóta alþm. launa samkv. ákveðnum launaflokki opinberra starfsmanna. Það er nokkuð síðan fyrst kom fram till. um slíka skipan, en breyting hefur ekki náð fram að ganga á Alþ. hingað til. Ýmsar aðstæður valda því, að alþm. hafa hallast að þeirri skoðun, að laun alþm. verði ákveðin á sama hátt og laun ráðh. og hæstaréttardómara, þannig að til grundvallar ákvörðun Kjaradóms um þau liggi starf og ábyrgð þm. án beinnar viðmiðunar við aðra.

Þá er í frv. kveðið á um að Kjaradómur ákveði einnig greiðslu á húsnæðis- og dvalarkostnaði þm. ásamt ferðakostnaði innan kjördæma þeirra, sem vegna sérstöðu starfs þeirra er ekki hægt að miða við beinar hliðstæður hjá öðrum.

Í 11. gr. frv. er breytt ákvæði um laun þau sem þm. fær ef hann er í öðru starfi hjá ríkisstofnun. Vegna þess hve störf alþm. eru orðin umfangsmikil kemur varla til greina að þm. sem búsettur er utan Reykjavíkur og nágrennis geti sinnt öðru föstu starfi. Hins vegar getur það farið eftir eðli starfsins að hve miklu leyti aðrir geta sinnt því. Þess vegna er lagt til að viðkomandi rn. meti laun þeirra sem það gera að einhverju leyti, en þó verði þau aldrei hærri en 50% fastra launa viðkomandi starfs.

Þá hafa lög um biðlaun alþm. verið felld inn í þetta frv.

Ákvörðun Kjaradóms skal hverju sinni gilda í eitt ár frá 1. okt. til 30. sept., en sú ákvörðun, sem nú verður gerð ef þetta frv. verður samþ., gildir þó frá 1. maí 1980 til 30. sept. 1981.

Að lokinni þessari umr. legg ég til að frv. verði vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.