14.04.1981
Sameinað þing: 75. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3744 í B-deild Alþingistíðinda. (3843)

384. mál, hjöðnun verðbólgu 1981

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson):

Herra forseti. Mér þykir afar vænt um hvað hæstv. forsrh. les vel greinar sem ég skrifa í blöð. Ég vil upplýsa hann um það, að sú sparifjáraukning, sem varð á árinu í fyrra, varð að megninu til vegna hækkunar vaxta, sparifjáraukningin eftir vaxtafærslur varð nokkru meiri en á árinu á undan og sparifjáraukningin án vaxta var örlítið meiri. En ég held að sú þróun, sem varð þar að þessu leyti, sé ekki til þess að þrefa um hvort það er traust á ríkisstj. eða ekki.

Ég ætlaði bara að taka það fram, ef það hefur valdið misskilningi, að ég sagði ekki að hæstv. ráðh. hefði spáð því að verðbólgan yrði um 30%. Ég skal lesa hér, með leyfi hæstv. forseta, — það er örstutt, — það sem hæstv. ráðh. sagði um þetta:

„Ef þessi spá gengur eftir nema verðhækkanir á fyrstu fjórum mánuðum ársins 10.2%, sem gerir miðað við heilt ár um það bil 33%.“

Þetta sagði hæstv. ráðh. orðrétt. Síðan talaði hann um spár Þjóðhagsstofnunar síðar á árinu og minntist þá á þessi margfrægu 40% sín.